Skírnir - 01.01.1961, Blaðsíða 37
Skírnir
Jón Sigurðsson
35
urðsson ekki öruggur um að hljóta kjör í Isafjarðarsýslu, og
sá ótti hans mun hafa haft við rök að styðjast. Hann átti við
andspyrnu að stríða, eða a. m. k. talsvert almennt hlutleysi
sýslubúa. Það, sem einkum hefur valdið, mun að líkindum
vera það álit manna, að Jón væri alltof dýr þingmaður vegna
búsetu sinnar í Kaupmannahöfn. En hér hefur ugglaust dreg-
ið nokkuð til hefðbundin trú manna á gagnsleysi þingsins.
Og svo mikið er víst, að niðrunarbréf um Jón gekk um sýsl-
una, runnið undan rifjum ókennds bónda norður við ísa-
fjarðardjúp. Öánægja þessi með Jón hefur einkum fundið
sterkan hljómgrunn í heimabyggð hans, Arnarfirði, hvað svo
sem valdið hefur. Beztu styrktarmenn Jóns vestra, s. s. Ásgeir
í Kollafjarðamesi, Þorvaldur í Hrappsey og klerkarnir Ólafur
á Stað og Ólafur í Flatey, voru svo alvarlega hræddir um
fall hans, að þeir bundust samtökum um það að fá hann kos-
inn í öðru kjördæmi. Hins vegar réðst svo vel úr málum
þessum, að Jón hlaut þrátt fyrir allt kjör sem fyrr í kjör-
dæmi sínu. Hlaut hann 50 atkvæði, þ. e. öll greidd nema eitt,
en þess ber að gæta, að 358 voru á kjörskrá, svo að hér var
um afar laklega kjörsókn að ræða. Sá, sem einna dyggilegast
hefur að því unnið, að ekki fór þá verr en við mátti búast,
mun hafa verið Gísli Ivarsson á Isafirði, fátækur verzlunar-
þjónn, en drengilegur fylgismaður Jóns á þeim slóðum, með-
an hans naut við. — Þegar hugsað er til þess, hversu ræki-
lega Jón hafði staðfest, hve hátt hann bar höfuð og herðar
yfir alla samþingsmenn sína og að enginn þurfti að efast um
óumdeilanlega forystu hans á þjóðfundi — getur það tæpast
orðið vansalaus vitnisburður fyrir kjósendur í Isafjarðar-
sýslu að hafa stutt Jón svo illa sem raun varð á. En slík af-
staða mun aðeins hafa orðið greinanleg í þetta eina sinn.
Síðar mun vart nokkru sinni hafa leikið vafi á öruggu kjör-
fylgi Jóns vestra.
Alkunnugt má vera, hver afdrif þjóðfundarins urðu, sem
og hvern höfuðþátt Jón Sigurðsson lék í aðgerðum þessarar
merku þjóðarsamkomu. Skal því aðeins rifjað hér upp í sem
stytztu máli, hvað fram fór og hvernig málum lyktaði, en
hér eins og víða annars staðar á stjórnmálasviðinu er Jón svo