Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.01.1972, Side 215

Skírnir - 01.01.1972, Side 215
SKÍRNIR IÍITDOMAR 213 vitað, þýðir að vera sér ómeðvitandi um mörk mannlegs persónuleika" (bls. 39). Öðru máli gegnir um skáldin að fornu. Skáldin, en nöfn margra þeirra eru þekkt, litu á sig sem höfunda formsins, en ekki innihaldsins. Þar er því einnig um að ræða annan skilning á höfundarhugtakinu en tíðkast í dag. Haf- andi þetta í huga er engan veginn rétt að tala um höfunda í nútímamerkingu, er rætt er um fornan skáldskap og sögur. Hið sama á einnig við um heimildir sagnanna. Allt þetta verður vísindamaðurinn að hafa í huga. Ræði hann um höfund sagnanna, felur það í sér mat á þeim í samræmi við nútímaskilning. Fornmálið sýnir hins vegar, að aðeins lágu skýr mörk milli bundins máls og óbundins. Aðeins bundið mál var skáldskapur að fomu. I íslendingasögunum birtist maðurinn ekki sem einstaklingur. Eintöl fyrir- finnast ekki og persónulegar tilfinningar tjá menn aðeins í deilum og viðskipt- um við aðra menn. „Áhugi á mannlegum persónuleika sem slíkum var ekki fyrir hendi. í hugmynd fólks var mannlegur persónuleiki óskýr“ (bls. 51). Ef haft er í huga, að sögurnar eru heildarsannleikur, þá skýrist, hvers vegna í þeim birtast slík ógrynni nafna. „Nafnið var hluti mannlegs persónuleika" (bls. 55), en þó í annarri merkingu en í nútímaþjóðfélögum. Fjórði kafli nefnist „Hvað er form og hvað er innihald?" Höfundur ræðir í þessum kafla ýtarlega mun á raunsæi í Islendingasögum og raunsæi í verk- urn raunsæisstefnunnar og nútímaverkum. Túlkun hans og rökræður ganga hér út frá sannleikshugtakinu, sem skilgreint var í öðrum kafla. Stíll Islend- ingasagna sýnir, að ekki voru glögg skil á milli forms og innihalds. I bundnu máli gat formið hins vegar verið verið óháð innihaldinu og jafnvel í mótsögn við það (bls. 60-61). Sú staðreynd, að landslags- og náttúrulýsingar vantar í Islendingasögur, sýnir, að einingin milli manns og náttúru var órofin. Sé litið til atburða í íslendingasögum, þá eru þeir einkum deilur og þrætur, sem persónur sagnanna eru þátttakendur í. Persónurnar eru hins vegar sér- stakt sambland af sögulegum persónum og manngerðum, en slíkt er aðeins hugsanlegt í þjóðfélagi, þar sem ekki er greint á milli ríkis og einstaklings. Gagnstætt ýmsum fullyrðingum, þá geta því persónur íslendingasagna ekki verið ímynd hugmyndar. Þær eru lifandi mannverur, sem tjá sig, finna til og skilgreinast í gegnum samband við aðrar mannverur í atburðarás sagnanna. I fimmta kafla „Hvað er gott og hvað er illt?“ ræðir höfundur um afstöðu fornmanna til vígaferla. Vígaferli að fomu vitna ekki um grimmd - gagn- stætt því sem styrjaldir og glæpir í nútímaþjóðfélögum gera - heldur að- eins um þá sterku kvöð, sem hefndarskyldan lagði mönnum á herðar. Einnig er sú hugmynd röng, að vígaferli hafi verið sérlega almenn að fornu. Ef styrj- aldir eru teknar með, þá verður vogin mjög í óhag nútímanum. Sannleikurinn er sá, að frá fornum tíma eru aðeins varðveittar frásagnir af deilum og þræt- um. Hvað skyldu komandi kynslóðir halda um nútímann, ef aðeins varðveitt- ust í framtíðinni dómarabækur og lögregluskýrslur? Með sannfærandi rök- færslu sýnir höfundur fram á, að skyldan ein - en ekki heiður eða annað - hafi hvatt menn til hefnda. Þar eð blóðhefnd var skylda, var eðlilega litið á hana sem blessun og afrek. I seinni hluta kaflans ræðir höfundur um áhrif kristindómsins og kristni-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212
Side 213
Side 214
Side 215
Side 216
Side 217
Side 218
Side 219
Side 220
Side 221
Side 222
Side 223
Side 224
Side 225
Side 226
Side 227
Side 228
Side 229
Side 230
Side 231
Side 232
Side 233
Side 234
Side 235
Side 236
Side 237
Side 238
Side 239
Side 240
Side 241
Side 242
Side 243
Side 244

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.