Jökull


Jökull - 01.12.1979, Síða 96

Jökull - 01.12.1979, Síða 96
Sjávarhiti hér viö land á hlýskeiðum isaldar hefur verið svipaður og nú er, en þó virðast sæ- dýrasamfélög í seti frá síðasta hlýskeiði i Fossvogi við Reykjavík gefa til kynna lítið eitt hærri meðal- hita. I byrjun og lok jökulskeiða hafa hins vegar lifað við strendur landsins einkennisdýr ískalds sjávar, svo sem jökultodda, og hefur þá meðalhiti sjávar verið um eða lægri en 0° C. Slíkt samfélag frá lokum síðasta jökulskeiðs er þekkt í Saurbæ í Gils- firði. Fyrir 18.000—15.000 árum tók að hlýna í lok síðasta jökulskeiðs, en loftslagsbreytingin til hins betra var þó ekki samfelld og a.m.k. tvö kuldaköst eru þekkt frá þessum tíma (síðjökultíma). Gengu þá jöklar fram og ýttu upp allmiklum jökulgörðum og eru þeir eldri, Álftanesröðin, 12.000—12.500 ára, en hinir yngri, Búðaröðin, um 11.000 ára. í byrjun nútíma fyrir 9000—10.000 árum óx birki á Norðurlandi, en ekki er vitað til þess að það hafi þá vaxið sunnanlands. Þetta gæti bent til þess, að hluti íslensku flórunnar hafi lifað af kulda síð- asta jökulskeiðs á jökulskerjum á Norðurlandi. Fyrir 9000 árum breiddist birki allhratt út og hefur meginhluti láglendisins líklega fljótlega klæðst birkiskógi, svo sem sjá má af frjórannsóknum og lurkalögum í mýrum. Á þessum tíma, birkiskeiðinu fyrra, hefur meðalárshiti verið um það bil 2° C hærri en nú er og úrkoman eitthvað minni. Fyrir 6500 árum jókst úrkoman og mýrar blotnuðu og breiddust út á mýraskeiðinu fyrra. Meðalárshiti hefur þó verið lítið eitt hærri en nú er, því að svarðmosi var algengur og gróbær á þessum tíma, en það er hann tæplega hér á landi í dag. Fyrir 5000 árum dró úr úrkomu og birki breiddist aftur út á birkiskeiðinu síðara. Talið er að allt að þvl helm- ingur landsins hafi verið klæddur birkiskógi á þessum tíma og meðalárshiti hefur líklega verið 2—3° C hærri en nú er. Urkoman var minni og vetur mildari. Fyrir 2500 árum versnaði loftslag og mýrar blotnuðu og urðu aftur útbreiddar á mýra- skeiðinu siðara. Birkiskógarnir eyddust enn frekar upp úr land- námi, en grös urðu útbreidd og plöntutegundir, sem fylgja manninum, skutu upp kollinum. I kjöl- farið fylgdi jarðvegseyðing af völdum vatns og vinds. ÁGRIP JARÐHITIÁ ISLANDI Ingvar Birgir Fridleifsson Orkustofnun Hitastigull er mjög hár á Mið-Atlantshafs- hryggnum eins og öðrum plötumótum þar sem tvær plötur rekur hvora frá annarri. Island myndar um 500 km breiða spildu á hryggnum miðjum og er hitastigull á allri þeirri spildu mun hærri en meðalhitastigull jarðar. Hitastigull á landinu er hæstur við gosbeltið, sem liggur frá Reykjanesi norður í Langjökul, en lækkar tiltölulega reglulega útfrá gosbeltinu jafnframt því sem jarðlögin eldast. Hæsti hitastigullinn utan þekktra jarðhitasvæða mælist 165°C/km á Kjalarnesi, en hinn lægsti 37°C/km á Eiðum (mynd 1). Vegna hins háa hitastiguls er jarðhiti mjög víða á landinu (mynd 2) og eru þekktir um 1000 jarðhitastaðir. Varma- magnið, sem út streymir, er þó mjög mismunandi mikið. Jarðhitasvæðum landsins er skipt í lághita- svæði og háhitasvæði eftir hámarkshita í efstu jarðlögunum og er hámarkshiti á 1 km dýpi < 150°C á lághitasvæðunum en 200°C á há- hitasvæðunum. Mynd 4 sýnir dæmigerða hitaferla í borholum á lághita- og háhitasvæðum. Lághitasvæðin einkennast af laugum og hverum og eru einkum í rofnum jarðlögum frá tertíer og plíó-pleistósen. Heita vatnið er að uppruna regn- vatn, sem nær að síga djúpt niður í berggrunninn og hitnar við að renna um heit jarðlög. Með samanburði á tvívetnishlutfalli regnvatns víðs vegar á landinu og vatns í laugum hefur komið i ljós, að heita vatnið á flestum vatnsmestu jarðhita- svæðum landsins hefur fallið sem regnvatn inni á hálendinu og hripað þar niður í berggrunninn, en síðan runnið djúpt i jörðu í átt til sjávar. Saman- burður á rennslisstefnum vatnsins út frá tvívetnis- mælingum og jarðlagabyggingu landsins (mynd 3) bendir til að auðveldustu rennslisleiðir vatnsins séu eftir göngum, sprungum og á jarðlagamótum, og því gjarnan samsíða jarðlagastrikinu. Á mörgum vatnsmestu jarðhitasvæðum landsins er strikið i stórum dráttum hornrétt á jafnhæðarlínur lands- ins, en rofstefna einstakra dala og fjarða samsíða strikinu (t.d. Borgarfjörður, Mosfellssveit, Hruna- mannahreppur). Þar sem strikið er samsíða ströndum landsins er jarðhiti hins vegar óveru- legur, eins og t.d. á Austfjörðum. Við slíkar að- stæður þyrfti vatnið að renna þvert á jarðlaga- 94 JÖKULL 29. ÁR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Jökull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.