Jón á Bægisá - 01.12.2001, Page 46

Jón á Bægisá - 01.12.2001, Page 46
Revaz Mishveladze Þraut Við Matjakhelagötu bjó í einsherbergis íbúð eftirlaunamaður að nafni Filip Bolotashivili. Laugardagsmorgun einn vaknaði hann seint. Áður en hann svo mikið sem fengi sér morgunverð, hugsaði hann með sér: „Það er varla skaði skeður, þótt ég fari ekki í Kirovsgarð í dag. Mér leið- ist svo að hlusta alltaf á sömu tugguna þar. Það væri réttara að heim- sækja minn gamla vin, Jakint. Sá verður nú glaður að sjá mig.“ Filip átti fleiri vini, en Jakint var í sérstöku uppáhaldi hjá honum. Hann bjó á Mskhaloanisgötu. Það voru aðeins átta strætisvagnastöðvar á milli húsanna, þar sem vinirnir bjuggu. Þegar komið var á strætisvagna- stöðina hjá honum Jakint þurfti bara að ganga upp eina brekku og þá var maður kominn heim til hans. Jakint bjó einn, eins og Filip. En hann var ekki í Félagi eldri borgara eins og hann. Hann taldi sig hafa annað þarfara við tímann að gera. Til dæmis þurfti að aðstoða lögregluna við umferðarstjórnina. Þá veitti nú ekki af að sýna hjálpsemi á markaðnum. Og oft mátti sjá hann Jakint gamla í miðri fólksþvögu á bændamarkaðinum, þar sem hann útskýrði einhverja reglugerðina fyrir fólki. Það vildi nefnilega stundum brenna við, að fólk tæki reglur ekki of bókstaflega á slíkum stöðum. Einmitt þennan sama góðviðrisdag skreiddist Jakint seint á lappir og hugsaði með sér: „Nú er lag að fara og heimsækja Filip. Það er svo langt síðan við höfum hist. Við ættum að geta spjallað saman, þar til ég fer heim og fæ mér miðdegisverð." Um hádegi sátu þeir vinirnir báðir í strætisvagni og skunduðu hvor á leið heim til hins. Enda þótt brekkan að húsi Jakints væri nokkuð brött, komst Filip á leiðarenda. Hann hringdi gamalli dyrabjöllunni drykklanga stund. „Kannski Jakint hafi farið til mín,“ hugsaði hann. Hann tók nýtt dagblað úr póstkassanum, reif af því smáhorn og skrifaði á það: „Hingað kom ég, en þú varst ekki heima. Filip.“ Hann skorðaði miðann milli stafs og hurðar og hraðaði sér heim á leið í þeirri von, að þar mundi hann hitta vin sinn. 44 ffist á- Æayráá - Tímarit þýðenda NR. 6 / 2001

x

Jón á Bægisá

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.