Jón á Bægisá - 01.12.2001, Síða 71

Jón á Bægisá - 01.12.2001, Síða 71
Ljósið er eins og vatnið forstofunnar. Geisli af gullnu ljósi sem var svalt eins og vatn fór að vella út úr perunni og þeir létu rennslið halda áfram þar til dýpið var orðið næstum fjögur fet. Þá rufu þeir strauminn, sóttu bátinn og sigldu eins og þá lysti milli eyja í húsinu. Þessi furðusaga varð til vegna gáleysislegra orða sem ég lét falla þeg- ar ég tók þátt í ráðstefnu um skáldlegheit búsáhalda. Tótó spurði mig hvernig á því stæði að ljós kviknaði við það eitt að maður ýtti á takka og ég hafði ekki dug í mér til þess að hugsa málið tvisvar. „Ljósið er eins og vatnið,“ svaraði ég. „Maður skrúfar frá krana og út kemur það.“ Og þannig héldu þeir áfram að sigla á hverju miðvikudagskvöldi og lærðu að nota áttavitann og sextantinn, allt þar til foreldrar þeirra komu heim úr kvikmyndahúsinu og fundu þá sofandi eins og engla á þurru landi. Nokkrum mánuðum síðar, þegar drengirnir voru orðnir áfjáðir í að halda lengra, báðu þeir um búnað til grunnvatnsköfunar. Ef allt er talið: grímur, blöðkur, geyma og loftbyssur. „Það er nógu slæmt að þið skulið vera með árabát inni í vinnukonu- herberginu sem er ykkur til einskis gagns,“ sagði faðirinn. „En það er að bæta gráu ofan á svart að þið skulið nú vilja fá köfunarbúnað líka.“ „Og hvað ef við fengjum nú geislamöðruna úr gulli í verðlaun fyrir fyrstu önn?“ sagði Jóel. „Nei,“ sagði móðirin óttaslegin, „Nú er nóg komið.“ Faðirinn álasaði henni fyrir ósveigjanleikann. „Þessir drengir vinna sér ekki inn skóbótarvirði þegar um er að ræða að þeir geri það sem þeim ber,“ sagði hún, „en til þess að fá það sem þeir vilja gætu þeir náð sér í hvað sem vera skal, jafnvel stól kennarans.“ Að síðustu gerðu foreldrarnir þó hvorki að játa eða neita. En Tótó og Jóel, sem tvö undanfarin ár höfðu verið neðstir í bekknum, hlutu í júlí- mánuði geislamöðrurnar tvær úr gulli og opinbera viðurkenningu skóla- stjórans. Það sama síðdegi fundu drengirnir köfunarbúnaðinn í órofnum umbúðum inni í svefnherbergi sínu, enda þótt þeir hefðu ekki ítrekað óskir sínar um að fá hann. Þannig að rétt eins og undangengna miðviku- daga, meðan foreldrar þeirra voru í bíó að horfa á Síðasta tangó í París, fylltu þeir íbúðina upp í tveggja faðma dýpi, stungu sér eins og tamdir hákarlar undir húsgögnin, þar á meðal rúmin, og drógu upp af botni ljós- hafsins hluti sem árum saman höfðu verið týndir í myrkrinu. Við afhendingu lokaverðlaunanna voru bræðurnir hylltir sem fyrir- myndarnemendur skólans og fengu skírteini sem staðfestu yfirburði þeirra. Nú þurftu þeir ekki að biðja um neitt, því foreldrarnir spurðu þá hvers þeir óskuðu. Þeir voru svo sanngjarnir að það eina sem þeir fóru á .ifftVýr/iiá - Elepter djákni var meira fyrir sopann en sálina 69
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Jón á Bægisá

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.