Iðjuþjálfinn - 01.08.2011, Blaðsíða 14
14 • IðjuþjálfInn 1/2011
Iðjuþjálfun á LSH var sameinuð vorið 2009 og tilheyrir lyflæknissviði en veitir
þjónustu þvert á allar deildir spítalans.
Iðjuþjálfar sem starfa í geðendurhæfingu
þjónusta legu og göngudeildir geðsviðs
og kvenna og barnasviðs. Starfsstöðvar
geðendurhæfingar eru sex og eru á Hring
braut, endurhæfingu á Kleppi og Laugar
ási/Álfalandi, réttargeðdeildinni að Sogni,
samfélagsgeðteymi á Reynimel 55 og
barna og unglingageðdeild (BUGL) við
Dalbraut.
Iðjuþjálfar á Hringbraut, Kleppi,
Laugarási/Álfalandi, í samfélagsgeðteymi
og á Sogni veita þjónustu til
einstaklinga 18 ára og eldri. Á geðsviði
er veitt sérfræðiþjónusta í almennum
geðlækningum, fíknilækningum, geðrænni
endurhæfingu og réttargeðlækningum.
Iðjuþjálfar á BUGL veita þjónustu til
barna og unglinga 18 ára og yngri, sem
eiga erfitt með að sinna sínum daglegu
verkefnum á fullnægjandi hátt. Iðjuþjálfi
metur þátttöku barnsins og færni við
að inna af hendi dagleg viðfangsefni á
heimili, í skóla, við leik og tómstundaiðju.
Íhlutunin er ávallt einstaklingsmiðuð og er
veitt bæði sem einstaklings og hópþjálfun.
Í þessari grein verður stuttlega gerð grein
fyrir starfsemi, áherslum og breytingum
sem hafa átt sér stað í iðjuþjálfun
geðendurhæfingu á Hringbraut og Kleppi.
Breytingar á geðsviði
Í kjölfar stefnumótunarvinnu geðsviðs
2009 hafa miklar breytingar og þróun
átt sér stað á starfsemi og mannauði
iðjuþjálfunar á geðdeildum við Hringbraut
og á Kleppi. Alls starfa tólf iðjuþjálfar
og átta aðstoðarmenn á ofantöldum
starfsstöðum geðendurhæfingar og þar
af voru sex iðjuþjálfar ráðnir sumarið
2010. Helstu breytingar á starfseminni
fela í sér nýja skilgreiningu á skammtíma
og langtímaþjónustu (sjá nánar hér að
neðan). Þjónusta iðjuþjálfa við sjúklinga á
legudeildum geðsviðs hefur aukist ásamt
ráðgjöf og fræðslu til starfsfólks.
Iðjuþjálfun á Hringbraut og
endurhæfing á Kleppi
Iðjuþjálfar geðsviðs starfa eftir
nýjum áherslum og verkferlum í
þverfaglegu samstarfi við móttöku,
göngu, endurhæfingar, öryggis og
réttargeðdeildir. Megináhersla er lögð á að
sinna inniliggjandi sjúklingum með það að
markmiði að auðvelda þeim að takast á við
daglegt líf og auka þjónustu og yfirfærslu
íhlutunar í útskriftarferli til að koma í veg
fyrir endurinnlagnir. Lögð er áhersla á að
þjónusta iðjuþjálfa sé samhæft, samfellt
og markvisst ferli sem byggir á samvinnu
milli sjúklinga, fjölskyldna/aðstandenda og
heilbrigðisstarfsfólks.
Starf iðjuþjálfa er fólgið í mati, íhlutun,
endurhæfingu, eftirfylgd, fræðslu og ráðgjöf
til sjúklinga, aðstandenda og starfsfólks.
Notuð er margs konar iðja sem tengist
daglegu lífi á heimili, í vinnu eða við leik
og tómstundir. Iðjan er þannig nýtt til að
ýta undir eins sjálfstætt og innihaldsríkt líf
einstaklinga og aðstæður leyfa hverju sinni.
Íhlutunin er ávallt einstaklingsmiðuð.
Iðjuþjálfun á geðsviði hefur til umráða
vinnusvæði þar sem unnið er að ýmsum
verkefnum, svo sem handverk, smíðar,
pökkunarvinna, eldhúsþjálfun, tölvuvinna
og fjölritun.
Í samvinnu við einstaklinginn eru sett
markmið með þátttöku í iðjuþjálfun sem
síðan er unnið eftir. Lögð er áhersla á að
finna jafnvægi á milli iðju og hvíldar og
boðið er upp á einstaklings og hópþjálfun.
Í einstaklingsþjálfun er til dæmis unnið
með félagsfærni, slökun, minnistruflanir,
aðra vitræna þætti, heimilisstörf og
svo framvegis. Dæmi um hópþjálfun
væri útskriftarhópar, ævintýrahópar,
sjálfstyrkingarhópar, virknihópar, og stráka
og stelpnahópar.
Iðjuþjálfar á Hringbraut og Kleppi
styðjast við hugmyndafræði um líkanið
um iðju mannins (MOHO), kanadíska
færnilíkanið (CMOP) og valdeflingu
(empowerment). Við íhlutun nota
iðjuþjálfar mismunandi matstæki, svo
sem mat á eigin iðju (OSA), iðjuhjólið,
áhugalistann, framkvæmdagreiningu,
boð og samskipti (ACIS), Occupational
Circumstances Assessment Interview and
Rating Scale (OCAIRS), mælingu á færni
við iðju (COPM), Assessment of Motor
and Process Skills (AMPS), Barthel Index
ADL og Mini Mental State Examination
(MMSE).
Hringbraut
Á Hringbraut er ferli og bráðaþjónusta,
þrjár móttökugeðdeildir, fíknigeðdeild,
dag og göngudeild fíknimeðferðar,
dagdeild Hvítabands og dag og
göngudeild átröskunar.
Iðjuþjálfun á Hringbraut veitir
skammtíma og bráðaþjónustu í 46 vikur
þar sem áhersla er lögð á mat, greiningu,
ráðgjöf og eftirfylgd, svo sem mat á færni
við eigin umsjá, heimilishald, félags og
iðjuþjálfun geðendurhæfing Landspítala
háskólasjúkrahúsi (LsH)
Auður Hafsteinsdóttir,
Yfiriðjuþjálfi geðendurhæfingar
Landspítala háskólasjúkrahúss