Skólavarðan - 01.08.2001, Qupperneq 21
sáum strax að þetta er lykilatriði í tölvu-
notkun, að fá tækniaðstoð og geta einbeitt
sér að kennslunni. Hér sem í öðrum grein-
um var ritun mikilvægur þáttur svo og að
hanna ýmislegt efni tengt verkefnum, til
dæmis í Publisher.
Mat á skólastarfi
Mikið er um margskonar mat á skóla-
starfi, árangri kennara og nemenda. Einn
stjórnandi sagði við okkur „there is no
teaching only testing“. Honum fannst of
mikið af því góða. Auk samræmdra prófa
geta skólarnir pantað ýmis próf frá prófa-
stofnun til að kanna stöðu nemenda
sinna. Fjárframlög til skólanna eru
háð frammistöðu þeirra á ýmsan
hátt. Þeir skila skýrslum yfir mæt-
ingar nemenda og árangur þeirra í námi og
eru þær m.a. teknar inn í matið. Þeir sem
standa sig illa fá minna fjármagn til rekst-
urs svo að mikið er í húfi. Laun kennara
eru árangurstengd að því leyti að gæðamat
kemur inn í þau, kennarar þurfa að taka
þátt í því og skila skýrslu um það til launa-
greiðanda. Ef allt er í lagi hækka menn ár-
lega í launum upp að vissu marki og svo
eru nokkur stig stjórnenda og aðstoðar-
manna þeirra sem þeir geta sótt um hafi
þeir staðið sig vel. Athyglisvert þótti mér
að kennarar fá yfirleitt ekki stöðuhækkun
við þá skóla sem þeir kenna við heldur í
öðrum skólum.
Gæðamatið fer þannig fram að hver
kennari og stjórnandi er metinn af yfir-
manni sínum og síðan er skólastjórinn
metinn af fræðslustjóra. Að hausti hittast
menn, ræða saman og setja markmið fyrir
veturinn. Síðan fer matið af stað og getur
m.a. falist í því að matsmaðurinn situr í
kennslustundum og skoðar tiltekin atriði.
Að vori fara menn svo yfir árangurinn, gera
skýrslu og senda hana áfram til launagreið-
anda. Skýr ákvæði eru um hvernig mark-
mið menn eiga að setja sér. Þau eiga að
fjalla um mat á frammistöðu nemenda, um
bættan árangur nemenda svo og persónu-
lega færni kennarans. Hann þarf að sýna
fram á færni í kennslu og miðlun þekking-
ar, góða fagþekkingu og að hann geti metið
árangur nemenda sinna, þá færist hann upp
í launum. Reyndar er kennaraskortur tals-
verður sem tengist lágum launum og miklu
vinnuálagi kennara.
Eins og áður sagði var heimsóknin mjög
gagnleg. Ég lít starfsumhverfi mitt öðrum
augum að henni lokinni og hef m.a. hugsað
mikið um hvort við hér leggjum meiri
áherslu á ytri ramma skólastarfsins og að-
búnað en innra starf. Ekki má gleyma því
hversu góð svona ferð er fyrir starfsmanna-
hópinn. Menn fá tækifæri til þess að kynn-
ast betur og eiga saman góðar stundir sem
skila sér í enn betra samstarfi.
Hafdís Bára Kristmundsdóttir
Höfundur er grunnskólakennari og deild-
arstjóri við Garðaskóla í Garðabæ og
útskrifaðist úr KHÍ 1986.
Evrópa
23
14. ágúst 2001
Óskað eftir viðræðum við einkaskóla um gerð kjarasamnings
Félag grunnskólakennara hefur ritað sex einkaskólum á grunnskólastigi bréf fyrir
hönd Kennarasambands Íslands þar sem óskað er eftir formlegum viðræðum um
gerð kjarasamnings við þá.
13. ágúst 2001
Ráðning í stöðu aðstoðarskólastjóra dæmd ólögmæt
Héraðsdómur Norðurlands vestra hefur dæmt ráðningu í stöðu aðstoðarskólastjóra
við Grunnskólann á Blönduósi vorið 1999 ólögmæta og dæmt Blönduósbæ til að
greiða umsækjanda sem hafnað var 700 þúsund krónur í skaða- og miskabætur ásamt
vöxtum. Kennarasamband Íslands stóð að baki málsókn vegna ráðningarinnar.
10. ágúst 2001
Nýr forstöðumaður Námsmatsstofnunar
Menntamálaráðherra hefur skipað Júlíus K. Björnsson í embætti forstöðumanns
Námsmatsstofnunar til fimm ára frá 1. september 2001 að telja.
23. júlí 2001
Brotthvarf deildarstjóra úr FG í SÍ veldur manneklu í stjórnum og ráðum
Ljóst er að tveir af formönnum svæðafélaga verða deildarstjórar á komandi skóla-
ári og færast, skv. nýjum kjarasamningi, úr FG í SÍ. Sama er að gerast víða í öðrum
stjórnum og ráðum innan félagsins. Þetta var meðal umfjöllunarefna á fundi for-
manna svæðafélaga FG sem var haldinn á Egilsstöðum 15. og 16. júlí sl.
7. júlí 2001
Fimmtungur félagsmanna DLF giftur eða í sambúð með öðrum kennara
Næstum 15 þúsund, eða um 20% af um 75 þúsund félagsmönnum Danmarks
Lærerforening, eru í hjónabandi eða sambúð með öðrum kennara. Um 26% karl-
kennara eiga maka sem er kennari. Til samanburðar eiga um 15% kvenkennara
maka sem einnig er kennari.
5. júlí 2001
Nemendum skylt að mæta í skólann 180 daga á ári
Grunnskólanemendum er skylt að mæta í skólann 180 daga á ári, þ.e. einnig þá tíu
viðbótardaga á hverju ári sem samið var um við gerð nýs kjarasamnings sl. vetur.
Þetta kemur fram í svari menntamálaráðuneytis við fyrirspurn um þetta efni sem
birt er á heimasíðu ráðuneytisins.
18. júlí 2001
Kennaraskortur í Bandaríkjunum
Kennaraskorturinn segir víða til sín. Þegar skólar hefjast í Georgíufylki í Bandaríkj-
unum í haust verða þeir meðal annars mannaðir af kennurum sem hófu kennara-
nám sitt núna í júlí.
Ítarlegri fréttir um þessi mál auk fjölda annarra frétta eru á heimasíðu Kennara-
sambandins www.ki.is
Heimasíðufréttir
Nemandi að vinna við nýjustu gerð af skólatöflu
sem er nokkurs konar snertiskjár og kallast
smartboard.
Athugið að dagskrár haustþinga
grunnskólakennara verða birtar á
heimasíðu KÍ jafnóðum og þær berast.
Lestu heimasíðuna? Fyrst með þínar fréttir!