Þjóðmál - 01.03.2012, Síða 9

Þjóðmál - 01.03.2012, Síða 9
8 Þjóðmál VOR 2012 hann samstundis afsökunar opinberlega, leið réttir missögnina og gefur bókina út á ný þar sem villan er leiðrétt . Ætti málið þá ekki að vera úr sögunni? Það er öllum ljóst að hér var ekki um vísvitandi villu að ræða, heldur mannleg mistök sem hlutaðeigandi harmaði . Og það er einmitt kjarni málsins . Var hér um að ræða missögn sem gerð var af ráðnum hug til að skaða mannorð einstaklings eða voru þetta augljós pennaglöp? Í þessu máli blasir við að um pennaglöp er að ræða . Í raun skaðaði missögnin miklu fremur höfundinn sjálfan og heiður hans en Jón Ásgeir Jó ­ hann es son . Enda höfðaði Baugsmaðurinn ekki málið vegna mann orðs hnekkis, eins og lög maður Björns, Jón Magnússon, benti á, heldur til að reyna að þagga niður í þeim sem gagnrýna framgöngu hans í ís lensku viðskipta lífi undanfarin ár . Fróðlegt verður að vita hvort Rithöfundasamband Íslands og Hagþenkir, félag fræðihöfunda, láti frá sér heyra vegna þessa dóms . Rithöfundar og fræðimenn mega eiga á ýmsu von ef þessi dómsniðurstaða stendur . Ótrúlegt er að fylgjast með því hvern­ig forystumenn Samfylking ari nnar ganga erinda kínverska ríkis­auð mannsins Huangs Nubos og reyna að hnekkja sköru­ leg um ákvörðunum Ögmundar Jónasson ar innan ríkisráðherra um að fara að ís lensk­ um lögum og meina þessum manni, sem að flestra dómi er leppur kínverskra stjórn­ valda, að eignast stóran hluta af íslensku landi . En einmitt svona gengu for ystu menn Samfylkingar innar erinda Baugs, Kaup ­ þings, Jóns Ólafs sonar og Öskju hlíðar­ Pálma á útrásartím anum . Erind rekstur Sam fylkingar forystunnar í þágu nýríkra auð manna, jafnt innlendra sem erlendra, hlýt ur að vekja grunsemdir um að ýmislegt í fjár málum flokksins þoli ekki dagsljósið . Tveimur öldum áður en Huang Nubo var á ferð á Grímsstöðum á Fjöllum tjald aði þar skoskur prestur að nafni Ebenezer Henderson . Hann hreifst þó meira af ábú endum á Grímsstöðum en staðháttum og brá upp þessari skemmtilegu mynd af heimilisfólkinu í ferðabók sinni frá Íslandi: „Á jörðinni býr ekkja með aðstoð bróður hins látna manns síns, gamals manns um sjötugt . Hún á þrjá syni og sjö dætur, sem öll eru ung og æskuglöð . Sumir unnu að heyþurki, aðrir að binda úr sæti og flytja í garð, en tveir unglingsmenn voru að starfa að torfi, til þess að þekja með heyið . Jeg gat ekki annað en dáðst að þeirri gleði og ánægju, er skein út úr hverju andliti, og jeg var sannfærðari um það en nokkru sinni fyr, að hamingjan er ekki bundin við neina stjett og því færri sem okkar eiginlegu þarfir eru, því betur njótum við lífsins, ótruflaðir af þeirri löngu lest, sem áhyggjur og hugarvíl mynda, en sú fylking herjar á þá, er elta tilbúinn munað og ruglar rósemi þeirra . Óskemt af samneyti við þá, er við fágaðar lífsvenjur lifa, varðveitir fólkið á þessum afskekta bæ allan hinn frumlega einfaldleik nátt úru legra lifnaðarhátta . Það hefir ekkert af að segja þeim klókskap og yfirdrepskap, þeirri ótrúmensku og þeim brögðum, sem alt of oft gegnsýrir fjölmennara samfjelag . Það er í hæsta máta ótortryggið, veglynt og góðgjarnt . Næstu mannabústaðir eru í þrjátíu mílna fjarlægð, og það hefir því ekkert af að segja kotungslegum erjum og ná granna kryt, og með því að heimilið er svona vel liðað, þarf það ekki á annara hjálp að halda .“ Minningu þess konar Íslendinga er Ög­ mundur Jónasson að heiðra með staðfestu sinni gagnvart hinni kínversku ágengni . Að svo mæltu óska ég lesend um gleði­legra páska — um leið og ég vek athygli á þeirri gleðilegu staðreynd að með þessu hefti hefst áttundi árgangur Þjóðmála .
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.