Gerðir kirkjuþings - 01.01.2013, Page 20

Gerðir kirkjuþings - 01.01.2013, Page 20
21 Starfshópar kirkjuráðs Starfshópar kirkjuráðs eiga sér samsvörun í föstum þingnefndum kirkjuþings og eru skipaðir formanni viðkomandi þingnefndar, fulltrúa úr kirkjuráði og fulltrúa biskups Íslands. Starfsfólk kirkjuráðs Starfsmenn kirkjuráðs eru: Guðmundur Þór Guðmundsson, framkvæmdastjóri kirkjuráðs, Guðrún Finnbjarnardóttir fulltrúi, Arnór Skúlason, arkitekt, verkefnastjóri viðhaldsmála á fasteignasviði en Kristín Mjöll Kristinsdóttir, innanhúsarkitekt, sem gegnt hafði því starfi áður, lét af störfum 31. mars sl. Einnig starfaði fyrir kirkjuráð Kristín Björg Albertsdóttir, verkefnastjóri lögfræði­ og stjórnsýslumála á fasteignasviði, en hún sagði starfi sínu lausu frá 1. september sl. Ekki hefur verið ráðinn lögfræðingur í hennar stað. Þá starfar Ólína Hulda Guðmundsdóttir fulltrúi á fasteignasviði í hlutastarfi. Verkefnastjóri á sviði fjármála sókna er Magnhildur Sigurbjörnsdóttir. Á sviði upplýsingatæknimála starfar Örvar Kárason verkefnisstjóri. Framkvæmdastjóra kirkjuráðs hefur verið veitt launalaust leyfi frá störfum í eitt ár að eigin ósk frá næstu áramótum og mun hann fara til starfa á fasteignasviði í leyfi sínu. Fjármálastjóri Biskupsstofu, Sigríður Dögg Geirsdóttir, mun leysa hann af í leyfinu. Ragnhildur Benediktsdóttir, skrifstofustjóri Biskupsstofu lét af störfum 31. maí sl. Nýr skrifstofustjóri er Sveinbjörg Pálsdóttir, guðfræðingur og stjórnsýslufræðingur. Verkefni kirkjuráðs á starfsárinu Reglulegt kirkjuþing, 49. kirkjuþing 2012, hófst í Grensásskirkju þann 11. nóvember 2012. Það var frábrugðið fyrri þingum því það kom saman í þremur lotum, í nóvember, í desember og í mars en á kirkjuþingi í nóvember 2012 var samþykkt bráðabirgðaákvæði við starfsreglur um þingsköp kirkjuþing nr. 949/2009, að fresta mætti þinginu í allt að sex mánuði. Þingfundir voru haldnir frá 11. nóvember til fimmtudagsins 15. nóvember, laugardaginn 15. desember s.á og 1. og 2. mars 2013. Tveir seinni þingfundir voru haldnir í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu. Á þinginu voru lögð fram 46 mál þar af voru 31 þingmannamál, kirkjuráð flutti sjö mál, biskup Íslands fjögur, milliþinganefnd flutti eitt mál og innanríkisráðherra tvö mál. Eitt mál var flutt af fulltrúa kirkjuþings unga fólksins. Alls voru 32 mál afgreidd á 49. kirkjuþingi. Gerðir kirkjuþings eru gefnar út og þeim dreift til þingfulltrúa, presta, formanna sóknarnefnda o. fl. Þar er finna breytingar á starfsreglum, nýjar starfsreglur og ályktanir og samþykktir kirkjuþings. Kirkjuráð hefur unnið að framkvæmd og kynningu þeirra mála sem kirkjuþing fól ráðinu að sinna. Jafnframt hafa samþykktar starfsreglur verið birtar í Stjórnartíðindum. Skal nú gerð grein fyrir störfum kirkjuráðs við framkvæmd samþykkta kirkjuþings.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.