Félagsbréf - 01.06.1961, Blaðsíða 5

Félagsbréf - 01.06.1961, Blaðsíða 5
En við íslands allar síðan aldir bundið nafn þitt skal — þannig kvað Gísli Brynjúlfsson um Jón Sigurðsson vorið 1851, og hefur spádómur sjaldan rætzt svo bókstaflega á íslandi, enda var stundum því líkast sem Gísli hefði sagnaranda. Nokkrum vikum síðar sat Jón for- seti þjóðfundinn, og var þá skorið úr um forystu hans í sjálfstæðisbaráttu íslendinga. Annars virðist mega ætla, að þeir, sem gerst þekktu Jón Sigurðsson, hafi fljótt haft hugboð um, til hvaða hlutverks hann var borinn. Þurfti þar ef til vill ekki mikla skarpskyggni til, því að við augljósa forystuhæfi- leika bættist snemma gífurlegur áhugi hans á velferðarmálum þjóðarinnar. „Honurn var allt höfðinglegast gefiS,“ sagði Gísli Brynjúlfsson um hann löngu síðar og heimfærði upp á hann orð Njálu um Flosa. Yar Gísli þá orðinn andstæðingur Jóns og hefði áreiðanlega látið þetta ósagt, ef honum hefði ekki fundizt það réttmæli. Enda hitti hann víst naglann á höfuðið þarna. Er mér eigi grunlaust, að þessi orð hafi átt enn betur við um Jón Sigurðsson en þann, sem þau voru í fyrstu ætluð. Á signetið, sem íslendingar í Höfn færðu Jóni forseta að gjöf vorið 1851, er letrað: Eigi víkja.. Það var kjörorð hans og því fylgdi hann alla tíð. Afstaða hans var hrein og afdráttarlaus, og hann veik aldrei frá sannfæringu sinni. Þess vegna var hann traustari og sterkari en aðrir menn. Allt miðaði þannig að einu um Jón forseta, — hann hlaut að verða þjóð- hetja íslendinga. Og nú, þegar við höfum eignazt þjóðhátíðardag, hlýtur °kkur að finnast það góð tilviljun, að Jón forseti skyldi einmitt vera fæddur á þéim tíma árs, þegar fegurst er á íslandi og okkur er hentugast að halda þjóðhátíð. Fyrir því hlutum við að stofna lýðveldið á afmælis- degi hans, sem við gerðum þá um leið að þjóðhátíðardegi. Varð það til þess, að spádómur Gísla Brynjúlfssonar 1851 rættist enn rækilegar en ella. Um þessar mundir eru liðin 150 ár frá fæðingu Jóns Sigurðssonar. Hans verður vitaskuld minnzt veglega um allt land. En ytra skraut er ekki aðalatriði, heldur hugarfar hvers einstaklings. Minningu Jóns Sig- urðssonar verður ekki sýndur verðskuldaður sómi á 150 ára afmæli hans Uema sérhver íslendingur heiðri hann í hjarta sínu. Og það held ég, að hver og einn fái bezt gert með því að leitast við að kynnast sem nánast Uíanninum Jóni Sigurðssyni, gera sér sem Ijósasta grein fyrir persónu hans °g lyndiseinkunn, áhugamálum og ævistarfi. Slík viðkynning mundi vissu- lega svara fyrirhöfn og vel það. Eiríkur Hreinn Finnbogason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Félagsbréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.