Morgunblaðið - 31.12.2015, Page 20
2016
Staðgreiðsla
Staðgreiðsla skatta 2016 er reiknuð í þremur þrepum.
Útreikningur fyrir mánaðartekjur er sem hér segir:
Af fyrstu 336.035 kr. .............................. 37,13%
Af næstu 500.955 kr. .............................. 38,35%
Af fjárhæð umfram836.990 kr. ............ 46,25%
Frádráttur vegna lífeyrisréttinda
Heimill frádráttur vegna greiðslu launþega til almennra
lífeyrisréttinda er 4% af iðgjaldsstofni. Frádráttur vegna
séreignarsparnaðar er 4%.
Persónuafsláttur
Persónuafsláttur er 51.920 kr. á mánuði.
Skattlagning barna
Börn fædd 2001 og síðar greiða 6% af tekjum yfir 180.000 kr.
Laun frá fleiri en einum
launagreiðanda
Þeir sem hafa laun frá fleiri en einum launagreiðanda þurfa
að gæta þess að rétt hlutfall sé notað við útreikning á stað-
greiðslu. Fari laun yfir 336.035 kr. hjá einum launagreiðanda
þarf að reikna 38,35% staðgreiðslu af launum hjá öðrum
launagreiðendum, eða eftir atvikum 46,25%.
Tryggingagjald
Tryggingagjald er 7,35%.
Fjársýsluskattur
Fjársýsluskattur er 5,5%.
Fjármagnstekjuskattur
Skattur á fjármagnstekjur er 20%.
Skattar, gjöld
og bætur