Morgunblaðið - 31.12.2015, Page 79

Morgunblaðið - 31.12.2015, Page 79
MENNING 79 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2015 Money Makes the Worldgo Around“ var sungiðí söngleiknum Kaba-rett á sínum tíma eða eins og Veturliði Guðnason íslensk- aði textann: „Í peningum býr aflið til alls“. Þessi sönglína kom upp í hugann undir lok sýningar Þjóðleik- hússins á  [um það bil] eftir sænska leikskáldið Jonas Hassen Khemiri, í ágætri þýðingu Eiríks Arnar Norðdahl. Öll erum við, sem búum í kapítalísku samfélagi, neydd til að hugsa um peninga hvort sem við viljum eða ekki. Flest okkar þurfa að þræla stærstan hluta æv- innar til að hafa efni á þaki yfir höf- uðið og mat á diskinn. Þeir sem eiga enga peninga þurfa að svelta, búa í heilsuspillandi húsnæði, hafa ekki efni á viðeigandi heilbrigðis- þjónustu eða menningarviðburðum sem auðga andann. Þó peningar geti auðvitað aldrei keypt manni hamingju þá geta þeir gert lífsbar- áttuna auðveldari og jafnvel bjarg- að lífi. Það er ekkert göfugt, skemmtilegt eða fallegt við fátækt, eins og ein persóna verksins segir og bætir síðan við: „Hún er engin hetjudáð, mann verkjar undan fá- tæktinni, hún þaggar niður í manni og maður skammast sín fyrir hana.“ Eins og fram hefur komið skrif- aði Jonas Hassen Khemiri leikritið  [um það bil] að beiðni Dramaten- leikhússins í Stokkhólmi þar sem það var frumsýnt fyrir rétt rúmu ári. Leikritið átti að fjalla um Frankenstein, ófreskjuna sem Mary Shelley gaf líf með skrifum sínum, en vinnan leiddi Khemiri í aðra átt. Í stað þess að skrifa um Franken- stein beindi Khemiri, að eigin sögn, sjónum sínum að öðru skrímsli, þ.e. kapítalismanum. Fyrirbæri sem eiga, að mati höfundar, það sameig- inlegt að vera manngerð skrímsli sem skaparinn hefur misst stjórn á. Í viðtali við sænska dagblaðið Dag- ens nyheter er haft eftir leikskáld- inu að hann fordæmi ekki fólk sem drifið er áfram af peningum „því ég veit hversu sterkur sá drifkraftur getur verið. Draumurinn um að öðl- ast frelsi með neyslunni.“ Leikritið byggist að stærstum hluta á frásögnum fjögurra persóna sem deila vonum sínum og sorgum með áhorfendum. Nær allar eiga þær það sameiginlegt að hafa áhyggjur af peningum, enda þýðir ekki að afneita áhrifum kapítal- ismanns á líf okkar – ekkert frekar en við getum afneitað hinum efnis- lega heimi. Áhorfendur fá að kynnast Mána (Stefán Hallur Stefánsson), dokt- orsnema í hagsögu sem vinnur að útópískri ritgerð sem ætlað er að tortíma kapítalismanum innanfrá. Sambýliskona hans, Margrét (Þor- björg Helga Þorgilsdóttir Dýr- fjörð), er af ríku fólki komin en hef- ur valið að standa á eigin fótum. Hana dreymir um að reka sjálfbært bóndabýli. Andrej (Snorri Engil- bertsson) er ungur strákur af er- lendum ættum með óframberanlegt eftirnafn sem er honum fjötur um fót í atvinnuleit. Loks er það Freyja (Guðrún Snæfríður Gísladóttir) sem orðið hefur vitni að atburðum sem ekki má segja of mikið um til að eyðileggja ekki fyrir væntanlegum áhorfendum. Sögurnar fjórar tengj- ast með áhugaverðum hætti, en inn í jöfnuna blandast útigangsmað- urinn Pétur (Þröstur Leó Gunn- arsson). Leikarar tala mikið beint til áhorfenda og sambandið við sal- inn er sterkt. Eintölin eru brotin upp með stuttum samtölum við aðr- ar persónur verksins, sem samtals eru rúmlega tuttugu, auk þess sem kröftug dans- og hópatriði eru not- uð til að skipta um takt í sýningunni og koma í veg fyrir að eintölin verði eintóna. Þrátt fyrir alvarlegt umfjöllunar- efni er  [um það bil] bráðfyndin sýning, enda margsannað að hlát- urinn er besta leiðin að hjarta áhorfenda. Húmorinn liggur að hluta til í textanum, en ekki síður í nálgun leikstjórans. Hér sýnir Una Þorleifsdóttir enn og aftur hversu hugmyndarík og flink hún er. Undir hennar stjórn virðast leikarar hreinlega blómstra, því áberandi er í sýningum hennar hversu góður leikurinn er heilt yfir. Einnig tekst henni afar vel að vinna gegn þeirri melódramatík sem í verkinu liggur. Stefán Hallur var frábær Máni og spilaði á mýkri tóna en undir- rituð hefur séð til hans áður, með afar áhrifaríkum hætti. Honum tókst hreinlega að sýna áhorfendum inn í kvikuna á sér. Snorri var góð- ur í hlutverki Andrej og kom vax- andi vonleysi hans vel til skila. Þröstur Leó var kostulegur sem Pétur og náði afar góðu sambandi við salinn í eymd sinni. Guðrún var góð í hlutverki markþjálfa Mar- grétar og skilaði hlutverki Freyju af ógnvænlegri einlægni með skemmtilegri raddbeitingu. Þor- björg Helga var fín Margrét, en hefði að ósekju mátt gefa aðeins meira af sér, t.d. með skýrara augn- sambandi við áhorfendur. Katrín Halldóra Sigurðardóttir er gaman- leikari af guðs náð því hún hefur frábært vald á kómískum tímasetn- ingum auk þess sem hún hefur góða söngrödd. Hún brá sér í fjögur ólík hlutverk, þar á meðal sem innri rödd Margrétar, og gerði vel. Odd- ur Júlíusson brá sér í hvorki fleiri né færri en sjö hlutverk, allt frá 13 ára strák í samtímanum til virðu- legs súkkulaðiframleiðanda frá 19. öld. Líkt og Katrín hefur Oddur verulega gott vald á kómískum tímasetningum sem skilaði sér mjög vel t.d. í hlutverki hins ofurhressa en um leið ögn ógnvænlega hlémæl- is. Leikmynd Evu Signýjar Berger er einföld og stílhrein. Leikrýmið er klætt skjannahvítum flísum með þrennum földum dyrum sem auð- veldlega má smeygja sér inn og út um auk þess sem tröppur hægra megin á sviðinu minna á tröppur á neðanjarðarlestarstöð eða í verslunarmiðstöð. Hvíti liturinn vís- ar með snjöllum hætti annars vegar í dauðhreinsað umhverfi þar sem ekki er pláss fyrir skítuga fátæk- linga og hins vegar í sakleysislegan heim himnaríkis. Efst á hvítum bakveggnum úir og grúir af neon- ljósaskiltum sem birta áhorfendum alls kyns tölur og hagfræðiformúlur auk þess sem kunnugleg heiti úr viðskiptalífinu fá að fljóta með, eins og t.d. Nasdaq. Nær engir leik- munir eru nýttir í sýningunni, enda iðulega aðeins talað um hluti og þeir ekki sýndir í leik. Ekkert er á sviðinu nema átta appelsínugulir stólar gerðir úr plexígleri sem minna í formi sínu á línurit. Bún- ingar Evu Signýjar eru flestir lát- lausir, en þjóna persónum vel. Tónlist Gísla Galdurs Þorgeirs- sonar og hljóðmynd hans í sam- vinnu við Kristin Gauta Einarsson er áhrifarík í einfaldleika sínum. Iðulega heyrast áhrifshljóðin aðeins veikt í bakgrunni, en magna með áhorfendum réttu stemninguna. Lýsing Halldórs Arnar Óskars- sonar þjónar sýningunni vel. Þjóðleikhúsið á hrós skilið fyrir að bjóða leikhúsáhorfendum upp á spennandi samtímaleikrit sem talar sterkt inn í íslenskt samfélag.  [um það bil] felur í sér beitta ádeilu á samfélag þar sem settur er verð- miði á allt, hvort heldur er hluti eða mannleg samskipti, samfélag þar sem þáttastjórnendur sjá ekkert at- hugavert við að „keppt sé í fátækt“, líkt og ónefnd útvarpsstöð bauð upp á í aðdraganda jóla. Það felst ætíð ákveðin áhætta í því að veðja á ný verk, en að þessu sinni borgaði sú áhætta sig. Frelsi með neyslunni Ljósmynd/Eddi Áhætta „Það felst ætíð ákveðin áhætta í því að veðja á ný verk, en að þessu sinni borgaði sú áhætta sig,“ segir í rýni um  [um það bil] í Kassanum. Þjóðleikhúsið  [um það bil] bbbbn Eftir Jonas Hassen Khemiri. Íslensk þýðing: Eiríkur Örn Norðdahl. Leik- stjórn: Una Þorleifsdóttir. Dramatúrg: Símon Birgisson. Leikmynd og bún- ingar: Eva Signý Berger. Lýsing: Halldór Örn Óskarsson. Tónlist: Gísli Galdur Þorgeirsson. Hljóðmynd: Gísli Galdur Þorgeirsson og Kristinn Gauti Einars- son. Dansatriði: Selma og Birna Björns- dætur. Leikarar: Guðrún Snæfríður Gísladóttir, Katrín Halldóra Sigurðar- dóttir, Oddur Júlíusson, Snorri Engil- bertsson, Stefán Hallur Stefánsson, Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir Dýrfjörð og Þröstur Leó Gunnarsson. Frumsýn- ing í Kassanum í Þjóðleikhúsinu þriðju- daginn 29. desember 2015. SILJA BJÖRK HULDUDÓTTIR LEIKLIST Gleðilegt leikhúsár! Njála (Stóra sviðið) Lau 2/1 kl. 20:00 2.k Mið 13/1 kl. 20:00 7.k Sun 24/1 kl. 20:00 11.k Sun 3/1 kl. 20:00 3.k Fim 14/1 kl. 20:00 8.k Fim 28/1 kl. 20:00 Mið 6/1 kl. 20:00 4.k Sun 17/1 kl. 20:00 9.k Sun 31/1 kl. 20:00 Fim 7/1 kl. 20:00 5.k Mið 20/1 kl. 20:00 10.k Sun 10/1 kl. 20:00 6.k Fim 21/1 kl. 20:00 aukas. Njáluhátíð hefst í forsalnum klukkan 18 fyrir hverja sýningu Hver er hræddur við Virginíu Woolf? (Nýja sviðið) Fös 15/1 kl. 20:00 Frums. Sun 24/1 kl. 20:00 6.k Fös 5/2 kl. 20:00 11.k Lau 16/1 kl. 20:00 2.k Fim 28/1 kl. 20:00 7.k Lau 6/2 kl. 20:00 12.k Sun 17/1 kl. 20:00 3.k Fös 29/1 kl. 20:00 8.k Sun 7/2 kl. 20:00 aukas. Fim 21/1 kl. 20:00 4.k Lau 30/1 kl. 20:00 aukas. Fim 11/2 kl. 20:00 13.k Fös 22/1 kl. 20:00 aukas. Sun 31/1 kl. 20:00 9.k Lau 23/1 kl. 20:00 5.k Fim 4/2 kl. 20:00 10.k Margverðlaunað meistarastykki Billy Elliot (Stóra sviðið) Fös 8/1 kl. 19:00 Fös 15/1 kl. 19:00 Fös 22/1 kl. 19:00 Lau 9/1 kl. 19:00 Lau 16/1 kl. 19:00 Lau 23/1 kl. 19:00 Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - sýningum lýkur í janúar Lína langsokkur (Stóra sviðið) Sun 3/1 kl. 13:00 Sun 10/1 kl. 13:00 Sýningum lýkur í janúar Flóð (Litla sviðið) Fim 21/1 kl. 20:00 Frums. Mið 27/1 kl. 20:00 3.k. Sun 31/1 kl. 20:00 5.k Sun 24/1 kl. 20:00 2 k. Fim 28/1 kl. 20:00 4.k. Mið 3/2 kl. 20:00 6.k Nýtt íslenskt verk um snjóflóðið á Flateyri Sókrates (Litla sviðið) Sun 10/1 kl. 20:00 Sun 17/1 kl. 20:00 Trúðarnir hafa tekið yfir dauðadeildina Vegbúar (Litla sviðið) Lau 9/1 kl. 20:00 Fös 15/1 kl. 20:00 Lau 16/1 kl. 20:00 Nýtt verk þar sem KK sýnir á sér óvænta hlið Kenneth Máni (Litla sviðið) Fös 8/1 kl. 20:00 Lau 23/1 kl. 20:00 Lau 30/1 kl. 20:00 Kenneth Máni stelur senunni TJARNARGÖTU 12, 101 REYKJAVÍK SÍMI 527 2100 TJARNARBIO.IS Frami (Salur) Lau 9/1 kl. 20:30 Fös 15/1 kl. 20:30 Fös 22/1 kl. 20:30 Predator (Salur) Mið 13/1 kl. 21:00 Lífið (Salur) Sun 17/1 kl. 13:00 Sun 7/2 kl. 13:00 Sun 24/1 kl. 13:00 Sun 21/2 kl. 13:00 65 20151950 5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is DAVID FARR Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið) Lau 2/1 kl. 15:00 39.sýn Sun 24/1 kl. 19:30 43.sýn Fös 12/2 kl. 19:30 47.sýn Lau 2/1 kl. 19:30 40.sýn Fös 29/1 kl. 19:30 44.sýn Lau 13/2 kl. 19:30 48.sýn Sun 10/1 kl. 19:30 41.sýn Lau 30/1 kl. 19:30 45.sýn Sun 21/2 kl. 19:30 49.sýn Fim 14/1 kl. 19:30 42.sýn Fös 5/2 kl. 19:30 46.sýn Eldfjörug fjölskyldusýning, uppfull af leikhústöfrum í anda Vesturports! Sporvagninn Girnd (Stóra sviðið) Sun 3/1 kl. 19:30 3.sýn Lau 16/1 kl. 19:30 6.sýn Sun 7/2 kl. 19:30 9.sýn Fös 8/1 kl. 19:30 4.sýn Sun 17/1 kl. 19:30 7.sýn Sun 14/2 kl. 19:30 10.sýn Lau 9/1 kl. 19:30 5.sýn Sun 31/1 kl. 19:30 8.sýn Eitt af meistaraverkum 20. aldarinnar Um það bil (Kassinn) Sun 3/1 kl. 19:30 2.sýn Fös 15/1 kl. 19:30 5.sýn Fös 22/1 kl. 19:30 8.sýn Fös 8/1 kl. 19:30 3.sýn Sun 17/1 kl. 19:30 6.sýn Lau 9/1 kl. 19:30 4.sýn Fim 21/1 kl. 19:30 7.sýn Glænýtt verk eftir þekktasta samtímaleikskáld Svía, bráðfyndið og harkalegt í se Yfir til þín - Spaugstofan 2015 (Stóra sviðið) Fim 7/1 kl. 19:30 12. sýn Fös 15/1 kl. 22:30 13.sýn Mið 13/1 kl. 19:30 aukasýn Fim 21/1 kl. 19:30 15.sýn Sprellfjörug gleðisýning fyrir alla fjölskylduna! Umhverfis jörðina á 80 dögum (Stóra sviðið) Lau 23/1 kl. 13:00 Frums. Lau 6/2 kl. 13:00 4.sýn Sun 7/2 kl. 13:00 6.sýn Sun 31/1 kl. 13:00 3.sýn Lau 6/2 kl. 16:00 5.sýn Eldfjörug barnasýning eftir Sigga Sigurjóns og Karl Ágúst! Klókur ertu, Einar Áskell (Brúðuloftið) Sun 10/1 kl. 14:00 aukasýn Sun 17/1 kl. 14:00 aukasýn Sun 10/1 kl. 16:00 aukasýn Sun 17/1 kl. 16:00 aukasýn Hinn uppátækjasami Einar Áskell í fallegri og skemmtilegri brúðusýningu Mið-Ísland 2016 (Þjóðleikhúskjallari) Fös 8/1 kl. 20:00 Frums. Lau 9/1 kl. 22:30 3.sýn Lau 9/1 kl. 20:00 2.sýn Fim 14/1 kl. 20:00 4.sýn Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland að ódauðleika!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.