Morgunblaðið - 31.12.2015, Blaðsíða 92

Morgunblaðið - 31.12.2015, Blaðsíða 92
FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 365. DAGUR ÁRSINS 2015 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 488 ÁSKRIFT 5295 HELGARÁSKRIFT 3307 PDF Á MBL.IS 4696 I-PAD ÁSKRIFT 4696 1. Komust undan með peninga 2. Stjörnuvitlaust veður á Eskifirði 3. Röktu sporin að Öskjuhlíð 4. Óskari Hrafni sagt upp hjá 365 »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  90 ár verða liðin frá stofnun Karla- kórs Reykjavíkur á sunnudaginn, 3. janúar, og mun kórinn minnast tíma- mótanna með ýmsum hætti á árinu. Á afmælisdaginn syngur hann ásamt Kór eldri félaga Karlakórs Reykjavík- ur við hátíðarmessu í Háteigskirkju sem verður útvarpað á Rás 1 og síðar sama dag verður stutt athöfn í Foss- vogskirkjugarði þar sem kórmenn, bæði eldri og yngri, og makar þeirra minnast stofnanda kórsins, Sigurðar Þórðarsonar tónskálds, við leiði hans og Áslaugar Sveinsdóttur, eiginkonu hans. Lagður verður blómsveigur á leiðið og einkennislag kórsins, „Ís- land, Ísland, eg vil syngja“, flutt en það lag samdi Sigurður við ljóð Huldu. Að því loknu syngur kórinn „Lofsöng“ Sveinbjörns Sveinbjörns- sonar og Matthíasar Jochumssonar. Kórinn hefur farið víða á þeim 90 árum sem hann hefur verið starfandi, m.a. til Kína árið 1979 þar sem hann söng fyrstur vestrænna kóra eftir menningarbyltinguna. Morgunblaðið/Golli Karlakór Reykjavík- ur fagnar afmæli  Fyrsti þáttur glæpaþáttaraðarinnar Ófærð var sýndur á RÚV sl. sunnudag og voru viðtökur almennt jákvæðar, ef marka má samfélagsmiðla. Þátt- urinn hlaut einnig jákvæðar viðtökur á kvikmyndahátíðinni í Toronto í haust og meðal þeirra sem fóru fögrum orðum um hann voru gagnrýn- endur The Hollywood Reporter og Twitch og sögðu þeir hann lofa góðu um framhaldið. Ófærð vel tekið inn- anlands sem utan Á föstudag (nýársdagur) Suðlæg átt 8-15 m/s og él, en hægari og þurrt á Norðurlandi. Frost yfirleitt 0 til 8 stig. Á laugardag Suðvestlæg átt 5-13 m/s og dálítil snjókoma eða él. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Sunnan og suðaustan 10-18 m/s og snjó- koma eða él, en úrkomulítið norðaustantil. Dregur úr vindi seint í kvöld. Hiti um frostmark. VEÐUR Eygló Ósk Gústafsdóttir úr Ægi er íþróttamaður ársins 2015 og þar með hefur sundfólk sigrað í þessu ár- lega kjöri Samtaka íþrótta- fréttamanna samtals níu sinnum. Hún er fimmta kon- an í sögunni til að hljóta þennan eftirsótta titil. Gylfi Þór Sigurðsson knatt- spyrnumaður varð annar og Hrafnhildur Lúthersdóttir sundkona hafnaði í þriðja sæti. 1-3 Eygló fimmta kon- an sem er kjörin Ragnar Sigurðsson, landsliðsmaður í knattspyrnu og leikmaður Krasnodar í Rússlandi, kveðst hafa tekið margar lélegar ákvarðanir á ferlinum. En nú vonast hann til þess að komast frá Rússlandi eftir Evr- ópukeppnina í Frakk- landi í sumar og draumur hans er að leika í ensku úrvals- deildinni á næsta keppnistímabili. »1, 4 Ragnar dreymir um ensku úrvalsdeildina „Þetta hefur verið mjög gott ár fyrir ís- lenska sundheiminn. Við höfum unnið mjög vel fyrir þessu og eigum þetta skilið. Þessi árangur sem hefur náðst er mjög góður fyrir okkur öll í landsliðinu, ekki bara mig, Hrafnhildi og Eygló, því þetta sýnir að Íslendingar geta verið í fremstu röð í sundi. Það hefur vantað síðustu ár,“ sagði Anton Sveinn McKee, fremsti sund- karl þjóðarinnar síðustu ár. »2-3 Mjög gott ár fyrir íslenska sundheiminn ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Vilhjálmur A. Kjartansson Kristján H. Johannessen Vínardrengjakórinn er líklega einn allra þekktasti kór Evrópu og þarf ekki að vita mikið um tónlist eða menningu til að vita að eingöngu þeir allra bestu komast að í þeim forn- fræga kór. Einn þeirra fáu útvöldu er Ís- lendingurinn Magnús Kiljan Hlyns- son en hann hefur sungið með kórn- um í að verða þrjú ár. „Já, ég byrjaði að syngja með kórnum árið 2013 og get sungið með honum í eitt ár í viðbót eða þangað til ég verð 14 ára gamall,“ segir Magnús en aldursmörkin eru milli 10 og 14 ára í kórnum. Alltaf haft gaman af söng Ísland og Austurríki eiga marga góða kóra og mikil sönghefð í báðum löndum. Söngurinn er Magnúsi því meðfæddur en móðir hans, Eleonore Guðmundsson, segir hann hafa byrj- að að syngja löngu áður en hann fór að ganga. „Já, hann hefur alltaf haft gam- an af söng en það er eitt skilyrða þess að drengir komist inn í Vínar- drengjakórinn, þ.e. að geta hvort tveggja í senn sungið vel og líka haft gaman af því að syngja,“ segir hún. Heimsækir Ísland í febrúar Mikil ferðalög fylgja því að vera í Vínardrengjakórnum en einn áfangastaður kórsins á næsta ári er Ísland. „Ég hef ferðast til Síle, Brasilíu, Bandaríkjanna, Kanada og Japans með kórnum svo nokkrir staðir séu nefndir. Í febrúar á næsta ári komum við svo til Íslands þar sem ég held að við eigum að syngja í Hörpu,“ segir Magnús en hann er farinn að hlakka til að sýna vinum sínum Ísland. „Mig langar að sýna þeim Þing- velli, Gullfoss, Geysi og Bláa lónið en mest af öllu vona ég að við sjáum norðurljósin.“ Feðgar Magnús ásamt föður sínum áður en hann fór í ferð til Japans. Hlakkar til að sjá norðurljósin þegar hann heimsækir Ísland með einum þekktasta kór Evrópu Íslendingur syngur í Vínar- drengjakórnum Vínardrengjakórinn á sér langa sögu, hann var formlega stofnaður árið 1498, þegar Maximilian fyrsti Austurríkiskeisari flutti hirð sína frá Innsbruck til Vínar. Ákvað hann að meðal tónlistar- manna sem ráðnir voru við hirðina skyldu jafnan vera sex drengir, sem hefðu það hlutverk að syngja fyrir hirðina við hirðmessur, á einkatónleikum keisarans og við opinber tækifæri. Á fimm öldum hafa margir merkir tónlistarmenn og tónskáld verið viðriðin kórinn, s.s. endur- reisnartónskáldið Heinrich Isaac, Christoph Willibald Gluck, bræð- urnir Josef og Michael Haydn, Wolfgang Amadeus Mozart, Anton- io Caldara, Antonio Salieri, Franz Schubert og Anton Bruckner. Vínardrengjakórarnir eru í raun fjórir talsins, hver þeirra er rekinn sem sérstök eining, og nefndir eft- ir tónskáldunum Bruckner, Haydn, Mozart og Schubert. Formlega stofnaður árið 1498 VÍNARDRENGJAKÓRINN Í AUSTURRÍKI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.