Víkurfréttir - 29.10.1999, Blaðsíða 32
FRETTIR
Auglýsingasíminn er421 4717
SÍÐASTI SKILAFRESTUR AUGLÝSINGA TIL KL. 18 Á MIÐVIKUDÖGUM!
Skemmtistaðurinn Club Casino
kominn með áfengisleyfi í eitt ár?
MISSKILNINGUR
hjá Jóni M. Harðarsyni
-segir Ellert Eiríksson, bæjarstjóri.
Er bara með bráðabirgðaleyfi
í óákveðinn tíma.
Ellert Eiríksson, bæjarstjóri í
Reykjanesbæ segir Jón M.
Harðarson vera nieð ein-
hvern misskilning hvað
varðar áfengisleyfi honuni til
handa fyrir Club Casino/
Strikið í Grófinni. Einungis
sé um ótímabundið bráða-
birgðaleyfi að ræða, ekki til
eins árs eins og hann heldur
fram í Víkurfréttum í
fyrradag.
„Það er engin breyting frá
bæjarstjórn. Við samþykktum
að veita honurn bráðabirgðaley-
fi fyrir nokkru síðan með
opnunartíma frá tíu á moignana
til klukkan eitt eftir miðnætti
alla daga. Þegar það var gert á
bæjarstjómarfundi tyrir nokkru
neitaði Jón að móttaka leyfið.
Ennþá hefur hann ekki sótt það
og getur því ekki opnað staðinn
nema að ná í það formlega hér
hjá mér og greiða um 20 þús.
kr. fyrir það“.
Ellert sagði að Dómsmála-
ráðuneytið gæfi ekki út vínveit-
ingaleyfi. Slíkt á hendi bæjar-
stjórnar. Úrskurðnefnd getur
úrskurðað og látið framfylgja
því en ráðuneytið ekki. Þetta sé
því einhver hugarburður í Jóni
að bera því við að ráðuneytið
hafi sagt að hann væri með
leyfi til eins árs. Bráða-
birgðaleyfi til handa Jóni er
einungis í gildi á meðan seinni
stjórnsýslukæra Jóns er í
vinnslu.
Færðu köfunarskóla súrefnisdælu
Tómas Knútsson, skólastjóri Sportköfunarskóla íslands, tekur hér
við gjafabréfi frá foreldrum Rúnars B. Ólafssonar, þeim
Guðlaugu Bárðardóttur og Ólafi Guðmundssyni. Gjafabréfið er
fyrir súrefnisdælu sem notuð verður til að dæla á súrefniskúta
kafara skólans. Gjöfin er til minningar um Rúnar Bárð, en hann
fórst í köfunarslysi í Garðsjó fyrir nokkrum misserum. Gjöfm er
frá fjölskyldu Rúnars. Tómas Knútsson sagði gjöfina koma sér
vel enda tækið mikið þarfaþing. VF-mynd: Hilmar Bragi
Vandræði hjá íslandspósti:
, Peningasending
íslandsbanka týnd
-verið að leita!
Ábyrgðarsending sem innihélt
verulegar peningarfjárhæðir frá
Islandsbanka í Keflavík og átti
að fara til aðalbanka stofnunarin-
nar við Kirkjusand í Reykjavík
8. október sl. hefur ekki skilað
sér á áfangastað.
Eins og greint var frá í fréttum í
vikunni týndist stór sending frá
Tryggingastofnun hjá fsland-
spósti. Svör sem íslandsbanki í
Keflavík hefur fengið síðustu
þrjár vikumar eru einfaldlega á
þann veg að „verið sé að leita að
pakkanum“. íslandsbanki í
Keflavík lítur mjög alvarlegum
augum á þetta mál en þama var
um verulega peningaupphæð að
ræða þó hún hafi oft verið hærri.
Iðulega er upphæðin sem send er
í ábyrgðarsendingu með
póstinum í milljónum talið.
Stdra fíkni-
efnamálið
teygir anga
sína til
-Fertiigiirviaönr
handtekinn íVognm
Fertugur maður í Vogunum
hefur verið dæmdur í gæslu-
varðhald, gmnaður um pen-
ingaþvætti og meðferð fíkni-
efna. Hann er talinn tengjast
stóra fíkniefnamálinu. Við
húsleit á heimili mannsins
fundust um 150 gr. af hassi,
eitthvað af marijúana og þýfi
fýrir fleiri milljónir. Maðurinn
er þekktur í fíkniefnaheimin-
um.
Ung börn voru á heimilinu
þegar húsleitin var gerð og
aðkoman hræðileg. Búið var
að útbúa sérstakt reykherbergi
í húsinu sem börnin höfðu
greiðan aðgang að. Sóðaskap-
urinn var yfirgengilegur.
Fíkniefnaneytendur hafa í
langan tíma, vanið komur sín-
ar í umrætt hús og það fór
ekki framhjá neinum í bæjar-
félaginu hvað þama fór fram.
Yngsta bamið er fimm ára og
móðir þess hafði t.d. ekki far-
ið með það í reglubundið
ungbamaeftirlit og því ljóst að
þarna var um vanrækslu að
ræða. Bamavemdamefnd er
nú komin í málið.
MUNDI
Fóru peningamir
nokkuð í þvott
íVogum?