Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2015, Page 60

Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2015, Page 60
Heilsa - Kynningarblað 7Vikublað 8.–10. september 2015 Word Class fagnar þrítugsafmælinu W orld Class fagnar 30 ára afmælinu sínu á þessu ári. Fyrirtækið opnaði sína fyrstu stöð í Skeif­ unni 3c árið 1985 í litlu húsnæði og hefur allar götur síðan leitast við að veita framúrskarandi þjónustu og vera leiðandi í rekstri lík­ amsræktarstöðva. World Class hefur vaxið jafnt og þétt í gegnum árin og eru stöðvarnar orðnar níu talsins í dag, hver annarri glæsilegri, en höf­ uðstöðvarnar eru Laugar í Laugar­ dalnum sem er stærsta heilsuræktar­ miðstöð landsins. Þegar þér hentar og sund á eftir World Class­stöðvarnar níu eru í Reykjavík, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Seltjarnarnesi og Kópavogi. World Class í Kringlunni og í Háskólanum í Reykjavík eru opnar allan sólar­ hringinn. Fyrir þá sem vilja endur­ næra sig eftir æfingu er frítt í sund í þremur sundlaugum á höfuð­ borgarsvæðinu, Lágafellslaug, Sel­ tjarnaneslaug, Laugardalslaug og fljótlega mun fjórða sundlaugin, Breiðholtslaug, bætast í hópinn. Í hverri viku eru yfir 300 fjölbreyttir og opnir tímar þar sem allir geta fund­ ið eitthvað við sitt hæfi. Í World Class er líka boðið upp á lokuð námskeið sem henta þeim sem vilja fá góða leiðsögn, hvatningu og stuðning. Nudd og dekur Hjá World Class snýst líkamsrækt ekki bara um hreyfingu. Í Baðstof­ unni, sem er staðsett á Seltjarnarnesi og í Laugum, er boðið upp á rólegt umhverfi þar sem tilvalið er að slaka á. Í Laugum er líka Laugar Spa sem er glæsileg fyrsta flokks heilsulind að evrópskri fyrirmynd. Laugar Spa er fyrsta flokks snyrti­ og nuddstofa þar sem færustu fagmenn sjá um að veita gestum góða þjónustu og slök­ un frá amstri dagsins. Frír mánuður fyrir 16 ára Hægt er að velja um fjölbreyttar áskriftaleiðir hjá World Class. Við­ skiptavinum stendur m.a. til boða að kaupa stakan mánaðaraðgang, gera samning í þrjá eða sex mánuði, en hagstæðast er að gera ótímabund­ inn samning sem hægt er að segja upp með sex mánaða fyrirvara og er verðið aðeins 6.840 krónur. Hægt að kaupa aðgang að Baðstofunni samhliða aðgangi að líkamsræktar­ stöðvunum en einnig má kaupa stakan aðgang að Baðstofunni eftir hentisemi. Skólafólki bjóðast góð kjör og sömuleiðis öryrkjum og eldri borgurum. Fjölskyldum býðst af­ sláttur af kortum í líkamsrækt og hægt er að nota frístundakortið fyrir unglinga sem verða 17 og 18 ára á árinu. Nú í ár hefur World Class svo ákveðið að bjóða öllum þeim ung­ mennum sem verða 16 ára á árinu frían mánuð í öllum líkamsræktar­ stöðvum sínum. Á vefsíðu World Class, www. worldclass.is, má finna stundatöfl­ ur, opnunartíma, verðskrá og fleira. World Class er líka á Facebook, Instagram og Snapchat. n Leiðandi í rekstri líkamsræktarstöðva Fjölbreytt námskeið Í hverri viku eru yfir 300 fjölbreyttir og opnir tímar þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Líkamsrækt World Class hefur vaxið jafnt og þétt í gegnum árin og eru stöðvarnar orðnar níu talsins í dag. Spa Í Laugum er líka Laugar Spa sem er glæsileg fyrsta flokks heilsu- lind að evrópskri fyrirmynd.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.