Embla - 01.05.1986, Blaðsíða 6

Embla - 01.05.1986, Blaðsíða 6
6 EHBLA KUENNALISTINN A SELFOSSI - STEFNA I BÆJARHALUM VORIÐ 1986 Kvennalistinn stefnir aö samfélagi þar sem virðing fyrir lífi og samábyrgð sitja í öndvegi. Kvennalistinn vill standa vörð um hagsmuni kvenna og barna og leggja sitt af mörkum til að auka áhrif kvenna í þjóðfélaginu og búa börnum betra lif. Uegna starfa sinna og uppeldis búa konur yfir annarri reynslu en karlar. Konum er tamara að hugsa um þarfir annarra. Þær hafa löngum borið ábyrgð á heimilum og börnum, öldruðum og sjúkum. Reynsla kvenna leiðir af sér annað verðmætamat, önnur lífsgildi en þau sem ríkja í veröld karla. Þekking og viðhorf kvenna koma þó lítt við sögu þar sem ákvarðanir eru teknar. Kvennalistinn vill breyta samfélaginu og telur að besta leiðin til þess sé að taka mið af aðstæðum og kjörum kvenna. Konur hafa lægstu launin, minni möguleika á vinnumarkaðinum en karlar, minnstan frítíma og vinna ólaunuð störf á heimilunum. Allt sem getur orðið til að bæta stöðu kvenna skilar sér í réttlátara og betra þjóðfélagi. Framboð til bæjarstjórnar á Selfossi er ein þeirra leiða sem við viljum fara til að auka áhrif kvenna og bæta stöðu þeirra. Með því viljum við tryggja að kvennapólitík eigi sér málsvara í stjórn kaupstaðarins. Atvinnu- og launamál """" Réttur til vinnu og mannsæmandi launa er grundvallarmann- réttindi. Nauðsyn- legt er að fólk þurfi ekki að sækja vinnu um langan veg í önnur sveitar- f élög. Kvennalistinn telur rétt að bæjarfélagið standi að atvinnu- rekstri og styðji atvinnufyrirtæki gerist þess þörf. Kvennalistinn vill * að það teljist sjálfsögð mann- réttindi að geta lifað af dag- launum eða tryggingagreiðslum. Lægstu laun hjá bænum verði aldrei lægri en nemur fram- færslukostnaði einstaklings (sbr. Bolungarvíkursamkomulag). * að störf kvenna verði virt að verðleikum og sú ábyrgð sem þeim fylgir metin á nýjum for- sendum. * að bætt verði aðstaða húsmæðra sem leita sér annarra starfa eftir að hafa unnið eingöngu að heimi1isstörfum. Til þess verða þær að fá tækifæri til menntunar og starfsþjá1funar. Starfs- reynsla við heimi1isstörf verði metin á vinnumarkaði. * hvetja önnur verkalýðsfélög til að fara að dæmi Uerka1ýðsfé1- agsins Þórs og greiða námsgjöld félaga vegna fullorðinsfræðslu. * að Bæjarstjórn Selfoss geri átak til að efla samvinnu sveitar- félaga um atvinnuþróun í byggð- arlaginu. * að sem mest af þeim hráefnum sem framleidd eru austan fjalls séu unnin til fullnustu á Suður- landi. * að rannsóknarstarfsemi verði efld sem miði að því að finna nýjar leiðir í matvælaiðnaði. * að innlent hráefni verði nýtt miklu betur en nú er gert og með því verði stuðlað að aukinni atvinnu. * fullnýta grænmeti bæði með niðursuðu og frystingu og koma upp dreifingarstöð fyrir græn- meti á Se1fossi. * að þjónusta við ferðamenn verði aukin til muna og að unnið verði að því með öllum ráðum að gera Selfoss að ákjósanlegum viðkomustað ferðamanna. Innan Kvenna1istans hafa margar skemmtilegar hugmyndir komið fram í því sambandi.

x

Embla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Embla
https://timarit.is/publication/1240

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.