Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1978, Qupperneq 8

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1978, Qupperneq 8
af því, sem gert verður hjá hjúkrunarfræðingum í þjónustu ríkisins. 4. Með hliðsjón af framansögðu ákveðst sérkjara- samningur málsaðila þannig: 1. Röðun í launaflokka. 1.1. Störfum félaga í Hjúkrunarfélagi íslands, sem vinna hjá Reykjavíkurborg eða stofnunum hennar, skal raðað í launaflokka skv. aðalkjarasamningi sem hér segir: Launajl. Starjsheiti 11 Hjúkrunarfræðingur. 12 Hjúkrunarfræðingur með 10 starfsstig, sbr. 2. gr. 13 Hjúkrunarfræðingur með 15 starfs- eða námsstig, sbr. 2. gr. 14 Hjúkrunarfræðingur með 30 starfs- eða námsstig, sbr. 2. 2. 15 Hjúkrunarfræðingur með 45 starfs- eða námsstig, sbr. 2. gr. Deildarstjóri á göngudeild. 16 Deildarstjóri. Iljúkrunarfræðingur með 60 starfs- eða námsstig, sbr. 2. gr. 17 Hjúkrunarnámsstjóri á sjúkrahúsi. H j úkrunarstj óri. 19 Hjúkrunarframkvæmdastjóri. 23 Hjúkrunarforstjóri Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur. 24 Hjúkrunarforstjóri Borgarspítala. 2. Starfs- og námsstig. 2.1. Fyrir hvert ár í fullu starfi vinnast 2,5 stig, að há- marki samtals 15 stig, fyrir vinnu við hjúkrunar- störf. 2.2. Fyrstu tvö námsár eftir hjúkrunarpróf í námi, er nýtist í starfi og viðurkennt er af menntamálaráðu- neytinu, gefa 15 stig hvort. Þriðja ár við nám af þessu tagi frá hjúkrunarprófi veitir 20 stig. 3. Deildarstjórn. 3.1. Gegni hjúkrunarfræðingur, sem hefur 60 starfs- eða námsstig, starfi deildarstjóra, skal hann fá greidda þóknun fyrir deildarstjórnina er svarar til mismunar launa í launaflokki 16 og 17. 3.2. Deildarstjóri í 16. launaflokki skal eftir fimm ára starf í slíkri stöðu taka laun samkvæmt launaflokki 17. 3.2. Deildarstjóri í 16. launaflokki skal eftir fimm ára starf í slíkri stöðu taka laun samkvæmt launaflokki 17. 3.3. Aðstoðardeildarstjóri við hjúkrun fái greidd laun skv. starfs- og námsstigum sínum að viðbættum einum launaflokki. 4. Heilsuverndarhjúkrunarfrœðingur með sérnám. 4.1. Heilsuverndarhjúkrunarfræðingur með sérnám, sem nú tekur laun samkvæmt 15. lfl., sbr. 12. gr. áður gildandi kjarasamnings, skal halda þeim launaflokki. 5. Utkallsvakt. 5.1. Greiðsla fyrir fasta útkallsvakt, sem yfirmaður hef- ur ákveðið, skal nema sömu fjárhæð og vaktaálag skv. aðalkjarasamningi. 6. Hlutastarf. 6.1. Hjúkrunarfræðingur, sem vinnur fastan hluta úr staríi, fái hlutfallslega styttingu á vinnuskyldu sinni, þegar helgidagar falla inn í vinnuviku. 7. Námsleyji. 7.1. Hjúkrunarfræðingur, sem með sérstöku leyfi hjúkrunarforstjóra stundar viðurkennt sérnám í hjúkrun eða sækir framhalds- eða endurmenntun- arnámskeið í hjúkrunarfræðum, sem nýtur viður- kenningar heilbrigðisyfirvalda, skal halda föstum launum með fullu vaktaálagi meðan slíkt nám var- ir allt að 3 mánuði á hverjum 5 árum. Heimilt er að veita hjúkrunarfræðingi námsleyfi með þessum kjörum tiðar en að framan greinir, en þá skemur hverju sinni, þó ekki umfram 1 mánuð á hverjum 20 mánuðum, enda leiði ekki af því aukinn kostn- að. 8. Gildistími. 8.1. Samningur þessi gildir frá 1. júlí 1977 og fer um gildistíma hans og uppsögn skv. lögum nr. 29/ 1976. Benedikt Blöndal Jón Finnsson Jón Sigurðsson Jón G. Tómasson. Athugasemd Inga Kristinssonar Ég tel að byrjunarlaunaflokkur hjúkrunarfræðinga ætti ekki að vera lægri en lfl. 12, að öðru leyti get ég fallist á úrskurðinn. Ingi Kristinsson. 6 HJUKRUN

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.