Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1978, Side 19

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1978, Side 19
inu. Ég fór að gagnrýna starfsliðið opinskátt fyrir að vera stefnulaust, fyrir að skipuleggja ekki daglegt líf okkar - fyrir að láta allt vaða á súð- um — fyrir að láta sjúklinga, sem höfðu þörf fyrir ákveðnari reglur, sjálfa hafa ofan af fyrir sér, svo þeir urðu enn ringlaðri og óákveðnari. Hátt risa bylgjurnar Það varð mér til happs, að með nýju ári komst ég í nýja grúpu, sem stjórnað var af dugandi geðlækni. Við sjúklingarnir létum í ljósi von- brigði með daglegt umhverfi. Við sögðum, að skoðun okkar á starfslið- inu væri sú að það væri samanþjöpp- uð klíka, sem einangraði sig og héldi saman gegn sjúklingunum og van- rækti okkur vegna eigin fundahalda. Bylgjurnar risu hátt í grúpunni. Þetta orsakaði enn meiri leynd og fundavirkni hjá starfsliðinu, þar til dag einn var komið fram og fyrir- skipuð morgunleikfimi - skyldumæt- ing á morgunfundi — skylduverkefni — sem sagt skipulagning á okkar dag- lega lífi. En starfsliðið einangraði sig enn. Læknirinn var þó undantekning. Hann var, þrátt fyrir vinnuálag, mik- ið á deildinni og talaði við okkur einslega og gaf sér tíma. Hann var á móti sálkönnun — dáðist að Frankl og Laing - og maður gat ekki alltaf verið honum sammála. En það var mikil hjálp í því að geta talað við hann í ró og næði stöku sinnum. Einkaviðtöl höfðu áð- ur verið í banni - það hafði alltaf einhver af starfsliðinu verið við- staddur, þegar maður talaði við lækninn utan grúpunnar (auðvitað þurfti það að hafa eitthvað til að gefa skýrslu um). Ómanneskjulegt Ég byrjaði nú að láta þekkingu mina koma fram í grúpunni. Smám saman varð ég reiðubúinn til að taka á mig ábyrgð. Skoðun mín eftir þessa sjúkrahús- vist er að: Sé maður nokkurn veginn í jafnvægi, áræðinn og gagnrýninn, getur maður fengið góða hjálp og uppörfun á þessari deild. En sé maður þunglyndur og kvíð- inn - eða risglaður er meðferðin slæm. Mér finnst það ómanneskju- legt að sjúklingnum sé ekki sinnt betur á hans slæma tímabili - hann fái ekki stuðning — og að starfsliðið reyni ekki að gera raunveruleikann áhugaverðari fyrir sjúklinginn. A þessu stigi ætti maður ekki að hugsa sig um tvisvar að taka ábyrgðina frá sjúklingnum. Dugandi starfslið læt- ur ekki þennan tíma ábyrgðarleysis og ósjálfstæðis vara að eilífu. Þessi frásögn mín af reynslu minni sem geðhjúkrunarfræðingur í hlutverki sjúklings er mjög persónu- bundin. Mér þykir líklegt að hefði ég starfað á umræddri deild sem hjúkrunarfræðingur hefði ég áreið- anlega fundið afsakanir fyrir sjálf- an mig og lokuðu dyrnar. Ég hefði afsakað mig með að skrifa þyrfti um sjúklingana, að vaktin þyrfti að líta vel út, að leiðbeina þyrfti hjúkrunar- nemunum o. fl. Því miður. Auk þessa væri deildin á tilraunastigi og mark- mið og leiðir enn óákveðið. En í þessu tilraunaástandi var vissulega ekki þægilegt að vera veik- ur og líða illa á þessari deild. Greínargerð um menntunarmál Framh. aj bls. 12. stöður nefndar skipaðri af menntamálaráðuneytinu 15. fe- brúar 1974. 3. Óraunhæft er að ætla að hægt sé að stunda almennt undirbúnings- nám samhliða svo umfangsmiklu sérnámi sem hjúkrunarfræðinám er. 4. Sjúkraliðamenntun er á engan hátt æskilegur undanfari hjúkr- unarfræðimenntunar. 5. Hjúkrunarfélag Islands álítur að fólk innan 18-20 aldurs hafi ekki nægan þroska til þess að mæta þeirri ábyrgð sem starfið leggur þeim á herðar og veita þá þjón- ustu sem einstaklingar eiga rétt á. 6. Álit Hjúkrunarfélags íslands er að hjúkrunarfræðinám eigi að samræma og verði allt á háskóla- stigi. 7. Hjúkrunarfélag Islands skal eiga fulltrúa í öllum nefndum, starfs- hópum og ráðum, sem gera áætl- anir um og skipuleggja menntun á sviði heilsugæslu og hjúkrunar og álits leitað, vegna sérþekking- ar þeirra. Mannfrœðí - Heílbrígðísþjónusta Framh. aj bls. 14. J. K. Skipper, Robert C. Leonard: Social interaction and patient care. J. B. Lipp- encott Company, Philadelphia, 1%5. F. C. MacGregor: Social Science in Nurs- ing. John Wiley and Sons, New York, 1960. Sigurður IJjartarson: Þœttir úr Sögu Rúmönsku Ameríku. Mál og menning, Reykjavík, 1976. P. J. Brink: Nursing in Other Cultures: An Experimental Course. International Nursing Review, Vol. 19, No 3, 1972. M. W. Herntan: Developing Objectieves jor a Core Program on Social Aspecls oj Medicine. Journal of Medical Educa- tion, apríl 1975. S. II. Katz, A. F. C. Wallace: An Anthro- pological Perspective on Behavior and Disease. American Journal of Puhlic Health, Vol. 64, No. 11. nóv. 1974. K. Lorig: lnternational jamily planning. Nursing Mirror, 26. júní, 1975. A. Forsdabl, H. Salmi o. fl.: Finsk-ættede i Sör- Varanger Kommune, I og II. Syke- pleien, 5. og 20. ágúst 1975. M. Primeaux: Caring jor the American lndian Patient. American Journal of Nursing, jan. 1977. M. Kniep-Hardy, M. A. Burkhardt: Nurs- ing the Navajo. American Journal of Nursing, jan. 1977. □ HJÚKRUN 17

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.