Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1978, Qupperneq 32

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1978, Qupperneq 32
Raddir hjúkrunarnema Það hefur vonandi ekki farið fram hjá neinum innan heilbrigðisstétt- anna að hjúkrunarnemar áttu í kjaradeilu seinni hluta ársins 1977. Forsaga er sú að stjórn og kjara- nefnd HNFÍ skrifaði hréf 4. maí til skólanefndar, og fór þess á leit að samningi um kjör nema frá 30. apríl 1974 yrði sagt upp frá og með 1. júli 1977. Tilnefndi skólanefnd fulltrúa til að sjá um þetta mál í sínu nafni, og ræða við viðsemjendur skóla- nefndar, þ. e. stjórnarnefnd ríkisspí- talanna og stjórn Borgarspítalans i Reykjavík. Voru það Þorbjörg Jóns- dóttir skólastjóri, en síðar tók Sig- þrúður Ingimundardóttir við af henni, Sigurveig Sigurðardóttir, full- trúi HFÍ í skólanefnd, og Herdís Al- freðsdóttir hjúkrunarnemi. Ilelstu kröfur hjúkrunarnema voru hækkuð laun fyrir yfirvinnu, 75% af launum hjúkrunarfræðings fyrir 1. árs nema, 85% fyrir 2. árs nema og 100% fyrir 3. árs nema. Einnig vild- um við skjaldfesta í samningi ýmsar hefðir og munnleg loforð. T. d. að fá borgaða yfirvinnu fyrir aukavaktir, sem nemar taka, meðan á bóklegu námi stendur. Lílið eða ekkert var gert í þessu máli meðan BSRB var í samningum. Svo átti að taka lil óspilltra málanna í nóvember. Þá var fjármálaráðu- neytið komið með fingurna í málið. Komu fulltrúar ríkisspítalanna með tilboð sem hljóðaði upp á gífurlega hækkun yfirvinnu en lækkun á pró- sentuhlutfalli dagvinnu, frá því sem verið hafði, sem hækkaði vegna lág- launauppbóta. Sögðum við nei við þessu rausnarboði og virtist málið því útkljáð frá þeirra hálfu. Var borgað út samkvæmt þeirra tilboði. Þá tókum við til okkar ráða. Þann 16. desember lýstum við yfir yfir- vinnubanni, og siðan á félagsfundi 21. desember var ákveðið að hjúkr- unarnemar segðu sig úr skóla frá og með 1. janúar 1978. Þar með var komin harka í málið og samstaðan gífurleg meðal nema. 170 nemar skrifuðu undir úrsagnarlista, málið kynnt fyrir starfsfólki sjúkrahúsanna með dreifibréfi og almenningi gef- inn kostur á að heyra málavöxtu í dagblöðunum. 29. desember voru borin fram samningsdrög að kjarasamningi á fé- lagsfundi HNFÍ, sem voru samþykkt og þar með úrsögn úr skóla dregin til baka. Þegar samningar tókust hafði þó nokkuð verið slegið af upp- haflegum kröfum um yfirvinnu, íil að halda dagvinnunni óskertri. Og eins og sagt er eftir samninga, þá teljum við okkur hafa náð viðunandi samningum. Það sem háir hjúkrunarnemum í baráttu sem þessari, er að skólanefnd er samningsaðili fyrir hjúkrunar- nema, þ. e. við höfum ekki beinan samningsrétt. Þarf þetta lagfæringar við eins og margt annað. Hvaða lærdóm getum við svo dregið af kjarabaráttu okkar? Jú, þann sama og áður: „Samein- aðir stöndum vér, en sundraðir föll- um vér“. Skráð í janúar 1978. F. h. HNFÍ, Margrét Tómasdóttir. Hjúkrunargagnasýning Dagana 5. og 6. nóvember sl. stóð Hjúkrunarnemafélagið fyrir hjúkr- unargagnasýningu, sem haldin var í H. S. í. Sýndar voru nýjungar í hjúkrun- argögnum og lækningatækjum frá eftirtöldum umboðs- og heildversl- unum: Austurbakki hf., Snorri hf., Glopus hf., Aðalsteinn Karlsson hf., Remidia hf., Hjálpartækjabankinn, Ilerakles hf., H. Ólafsson & Bern- höft hf., Skóverslun Þórðar Péturs- sonar, Iceport hf., Tryggingastofnun ríkisins. — Aðilum þessum færum við bestu þakkir. Það sem merkilegast þótti við sýn- 26 HJUKRUN

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.