Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.1994, Blaðsíða 5

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.1994, Blaðsíða 5
Tímarit hjúkrunarfræðinga 1. tbl. 70. árg. 1994 Fyrir greinahöfunda Stefna Tímarit hjúkrunarfræðinga er gefið út fjórum sinnum á ári, að vori, sumri, hausti og vetri. Það er fyrst og fremst vettvangur fræðilegrar umræðu um hjúkrun. Jafnframt er því ætlað að endurspegla fjölbreyttan starfsvettvang hjúkrunarfræðinga. í tímaridnu eru birtar greinar um hjúkrunarstörf, nýjar rannsóknir í hjúkrun, viðtöl við fólk um hjúkrun og aðrar faglegar upplýsingar sem eiga erindi til hj úkrunarfræðinga. Tímarit hjúkrunarfræðinga er ekki vettvangur fyrir félags- og sérhags- munamál hjúkrunarfræðinga. Ritstjóri ber ábyrgð á að efni, útgáfa og rekstur blaðsins sé í samræmi við ritstjórnarstefnu þess. Ritnefnd ber ábyrgð á faglegu efni blaðsins, að það sé í samræmi við rit- stjórnarstefnu þess. Ritstjóri ásamt ritnefnd leggur metn- að í að tímaritið sé vandað að því er varðar málfar, údit og efni. Ahersla er lögð á að faglegar greinar standist vís- indalegar kröfur. Þess vegna setur rit- nefnd reglur um það hvernig höfund- um ber að skila efni til blaðsins. Ritnefnd áskilur sér rétt til að birta greinar eða hafna þeim og til að setja greinar upp og aðlaga að útliti blaðs- ins. Ávallt er leitað umsagnar utanað- komandi aðila um rannsókna- og fræðigreinar. Leiðbeiningar Greinahöfundar eru vinsamlegast beðnir um að skila greinum til Tíma- rits hjúkrunarfræðinga, Suðurlands- braut 22, 108 Reykjavík. Ef um rannsóknagreinar er að ræða þá tekur vinnsla þeirra lágmark tvo mánuði eftir að þær berast til blaðsins. Yfir- leitt tekur skemmri tíma að ganga frá öðru efni í blaðið. Greinum skal skilað í þríriti hverju sinni. Endanlegri gerð skal skila á tölvudisklingi. Hafið 4 sentimetra spássíu á alla vegu. Þannig verður línulengdin 13 sentimetrar á A4 en 14 á „US letter“ síðustærð. Jafnið vinstra megin en ekki hægra megin, nodð tvöfalt línubil og 12 punkta Times letur. Heimildalisti takmarkast af tilvísunum í viðkomandi grein. Vandið málfar og íslenskið erlend orð ef unnt er. Sé um sjaldgæfa þýðingu orða að ræða skal setja erlenda orðið aftan við það íslenska í sviga. Skammstafanir skulu útskýrðar í fyrsta skipti sem þær koma fram. Myndir og teikningar skulu vera nægilega skýrar til að hægt sé að prenta eftir þeim. Uppsetning greinanna skal vera samkvæmt reglum ameríska sálfræð- ingafélagsins. Upplýsingar um þær er að finna í bókinni Publication Manu- al of the American Psychological Association og í íslenskri þýðingu í bókinni Gagnfræðakver handa há- skólanemum, eftir Friðrik H. Jónsson og Sigurð J. Grétarsson. Rannsóknagreinar Um rannsóknagreinar gildir eftirfar- andi sérstaklega: Titilsíða: Þar skal koma fram nafn greinar og höfunda(r), starfsheiti og upplýsingar um náms- og starfsferil. Utdráttur: Utdráttur á að vera stuttur (hámark 150 orð) og ensk þýðing á honum skal fylgja. í útdrættinum á að koma fram: Tilgangur rannsóknar- innar, aðferð í grundvallaratriðum, helstu athuganir, niðurstöður og ályktanir. Frœðilegur bakgrunnur: f inngangi þessa kafla á tilgangur rannsóknarinn- ar að koma skýrt fram. í fræðilegri umfjöllun skal vísa á nauðsynlegar heimildir en ekki gera víðtæka fræði- lega úttekt á viðfangsefninu. Athugið vel að heimildalistar og tilvísanir séu rétt og samræmd. Aðferð: Lýsið úrtaki, rannsóknaraðferð (tilraun, könnun, magnbundin, gæða- bundin o.s.frv.), mælitæki/spurninga- lista og tölfræðiathugunum nægilega vel til að aðrir geti endurtekið rann- sóknina. Vísið í heimildir að þeim aðferðum sem beitt er ef þær eru til. Getið þess ef leyfi rannsókna- eða siðanefnda var fengið til að gera rannsóknina. Niðurstöður: Niðurstöður skulu settar skipulega fram með töflum og mynd- um sem skal vísað skýrt í í texta. Endurtakið ekki nákvæmlega í textan- um það sem töflurnar sýna heldur dragið saman aðalatriði. Stundum nægir að setja einstaka niðurstöður fram með fáum orðum í texta. 5 Umrœða: Hér skal leggja áherslu á þau atriði í rannsókninni sem eru ný og ályktanir sem draga má af þeim. Dragið ekki saman niðurstöður úr næsta kafla á undan. Látið koma fram hvaða máli niðurstöður rann- sóknarinnar skipta, takmarkanir þeirra og tengsl við aðrar rannsóknir. Skoð- ið niðurstöðurnar út frá tilgangi rannsóknarinnar en varist alhæfingar sem ekki eru studdar af niðurstöðum. Gefið hugmyndir að nýjum rann- sóknum og tilgátum. Þakkir: Berið einungis fram þakkir til fólks sem hefur veitt mikla aðstoð við verkefnið, og að fengnu leyfi viðkom- andi. Heimildir: Fylgið reglum APA eins og að ofan greinir, og þá sérstaklega ís- lensku þýðingunni í Gagnfræðakver- inu. Fylgið þessum reglum nákvæm- lega og frá byrjun, það sparar mikla vinnu áður en yfir lýkur. Ljósrit af reglum þessum er hægt að fá hjá Tímariti hjúkrunarfræðinga.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.