Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2000, Síða 18

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2000, Síða 18
Ljóst er að ekki sýna allir þá ábyrgð að nota getnaðar- varnir við hverjar samfarir. Auk þess er hópur fólks sem að jafnaði gerir engar ráðstafanir til að forðast getnað og tekur því stöðugt áhættuna. Neyðargetnaðarvörn er ætluð konum í þeim tilvikum þegar engin getnaðarvörn hefur verið notuð, getnaðarvörn hefur brugðist eða ef um nauðgun er að ræða. Rannsóknir sýna að meirihluti (45-67%) þeirra kvenna, sem sækist eftir neyðargetnaðarvörn, hefur ekki notað neina getnaðar- vörn (WHO, 1998). Ýmsar ástæður geta legið að baki að fólk vilji grípa til neyðargetnaðarvarnar og ástæður geta verið mjög misjafnar eins og eftirfarandi dæmi gefa til kynna. Fyrstu tvö dæmin eru frá Bretlandi en gætu alveg eins átt við hér á landi (Pappenheim, 1995). Síðari dæmin eru tilbúin til að gefa mynd af tilvikum sem koma til ráðgjafa FKB í Hinu húsinu. Tilvik 1 18 ára stúlka hafði kynmök í fyrsta skipti og notaði enga getnaðarvörn. Stúlkan hafði ekki gert ráð fyrir að hafa kynmök og þau notuðu ekki neitt til að hindra getnað. Var hún mjög miður sín og þorði ekki til læknis. Hún rakst af tilviljun á bækling um neyðargetnaðarvörn á göngudeild fyrir skólafólk og hringdi í hjálparlínu fyrir ungt fólk og ræddi þar við hjúkrunarfræðing sem kom henni í samband við heilsugæslu i hennar byggðarlagi. Tilvik 2 41 árs gömul gift kona hafði kynmök við eiginmann sinn. Þau notuðu smokk en hann brást. Þau hjón áttu tvö börn, 15 og 18 ára. Hún gat ekki hugsað sér að verða þunguð á ný. Hafði hún áhyggjur af þessu og greindi vinnufélaga sínum frá því. Vinnufélaginn sagði henni frá neyðargetnaðarvörn. Eftir það hringdi hún í hjálparlínu til að fá frekari upplýsingar og gat farið til heimilislæknis þá um kvöldið. Ráðgjöf FKB í Hinu húsinu Árið 1995 byrjuðu Fræðslusamtök um kynlíf og barneignir með fræðslu og ráðgjöf fyrir ungt fólk í Hinu húsinu, þ.e. í gamla Geysishúsinu, Aðalstræti 2 í Reykjavík. Ungt fólk hefur samband við ráðgjafa í Hinu húsinu og getur fengið fræðslu og ráðgjöf um kynlíf, getnaðarvarnir, barneignir, neyðargetnaðarvörn, kynsjúkdóma og þungunarpróf án endurgjalds. Daglega er hægt að ná í ráðgjafa Hins hússins í gegnum símboða 842 3045 eða GSM 861 6186. Vaktráðgjafi hittir ungt fólk eftir þörfum. Á síðasta starfsári fengu þar 76 stúlkur neyðargetnaðarvörn. Voru þær flestar á aldrinum 14-16 ára. Rúmlega þriðjungur þeirra kom í fylgd með vinkonu eða vinkonum sínum (Sóley S. Bender, 2000). Hér eru sett fram þrjú tilbúin tilvik sem gefa mynd af þeim einstaklingum sem leita til ráðgjafa FKB. Umfjöliun hér á eftir um upplýsingasöfnun, fræðslu og ráðgjöf byggist að miklu leyti á leiðbeiningarefni frá Alþjóðaheilbrigðismála- stofnuninni (WHO 1998) og sameiginlegu leiðbeiningarefni frá Concept Foundation, International Planned Parenthood Federation, Pacific Institute for Women s Health, Pathfinder International, Population Council, Program for Appropriate Technology in Health og WHO Special Programme of Reasearch, Development and Research Training in Human Reproduction (Camp, 1996). Tilvik 3 19 ára piltur hringdi og var miður sín yfir því að smokkurinn hafði runnið af og sagði að þau væru bæði hrædd um að hún gæti orðið ófrísk. Hann hafði fyrst samband við Húð- og kynsjúkdómadeildina í Þverholti og var þar vísað á ráðgjafa FKB í Hinu húsinu. Um sólarhringur var liðinn frá samförunum. Stúlkan reyndist einnig vera 19 ára gömul. Þau komu síðan saman í ráðgjöf í Hitt húsið. í Ijós kom að þau voru búin að vera saman í hálft ár og höfðu notað smokka á þessum tíma en voru að velta fyrir sér notkun pillunnar. Tilvik 4 15 ára stúlka hringdi og sagði að vinkona hennar hefði haft kynmök án þess að nota neina getnaðarvörn. Hún hafði fyrst haft samband við apótek* í nágrenninu en fékk þær upplýsingar að þar væri ekki hægt að fá neyðargetnaðarvörn án lyfseðils. Hún hafði heyrt um ráðgjafarstarf FKB hjá vinkonu sinni. Vinkonurnar mættu saman í ráðgjöfina. í Ijós kom að stúlkan, sem átti í hlut, var einnig 15 ára gömul. Hún var búin að vera með stráknum í mánuð. Hún sagðist hafa verið undir áhrifum áfengis þegar þetta atvik átti sér stað og þau hefðu því ekki notað neitt. *Sumarið 1998 var unnt að fá neyðargetnaðarvörn (Tetra- gynon) afgreidda í apótekum landsins án lyfseðils (Tetragynon í lausasölu bundið við afhendingu lyfjafræðings, 1998). Tilvik 5 17 ára stúika hafði samband við ráðgjafa FKB. Hún sagðist vera búin að fara á heilsugæslustöð en ekki hafa haft erindi sem erfiði. Hún hafði í framhaldi af því samband við Rauðakrosshúsið sem benti henni á ráðgjafa FKB í Hinu húsinu. Hún var búin að vera með strák í nokkra mánuði og höfðu þau alltaf notað smokkinn nema í þessu eina tilviki. Hún sagðist vera búin að fá lyfseðil á pilluna en hefði ekki enn þá komið því í verk að fara í apótek til þess að ná í lyfið. 142 Tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 76. árg. 2000

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.