Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.05.2006, Blaðsíða 2

Víkurfréttir - 11.05.2006, Blaðsíða 2
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjanesbæ á mikilli siglingu: Fístunda- hátíð í Reykja- nesbæ Tómstundabandalag Reykjanesbæj ar heldur n.k. laug- ardag 13. maí Frístunda- hátíð í Reykjanesbæ þar sem boðið verður upp tóm- stundasýningu, handverks- sýningu, mótorhjólasýn- ingu og handverkssýningu eldri borgara. Frístundahátíðin verður haldin í Reykjaneshöllinni og stendur frá kl. 11:00 - 19:00. Handverkssýning eldri borg- ara verður opnuð kl. 14:00 í Selinu við Vallarbraut en þar kemur fram Idolstjarnan Briet Sunna Valdimarsdóttir. Ýmis félög og klúbbar kynna starfsemi sína á frístundahá- tíðinni s.s.félag harmonikku- unnenda, skátafélagið Heiða- búar, mótorhljólaklúbburinn Ernir, Flugmódelfélag Suður- nesja og smábílaklúbburinn auk annarra. Á dagskrá er m.a. kassaklifur skáta, hraðskákmót, nikkur og trúbadorar. Rás 2 verður með beina út- sendingu frá Reykjanesbæ þennan laugardag. □4104000 Landsbankinn MUNDI Tja..., nú „Reynir“ á A-listamenn...! Yfírburðastaða með 67,5% atkvæða og 8 bæjarfulltrúa -samkvæmt nýrri skoðanakönnun Félagsvísindastofnunnarfyrir NFS. Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjanesbæ bætir við sig 15% fylgi frá síðustu kosningum, fengi 67% at- kvæða og 8 bæjarfulltrúa af 11 ef gengið yrði til kosninga nú, samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar sem Félagsvísindastofnun gerði fyrir NFS. A-listinn mælist með 32% fylgi samkvæmt þessari könnun en hann er myndaður af Framsókn- arflokki og Samfylkingu. I síð- ustu kosningum fengu þessir flokkar samanlagt 47,2% fylgi, Framsóknarflokkurinn 13,6% og Samfylkingin 33,6% Sameig- inlegt framboð þessara flokka tapar því um 15% fylgi frá því sem flokkarnir fengu saman- lagt í kosningunum 2002. Sam- kvæmt þessu fengi A-listinn þrjá bæjarfulltrúa. Vinstri grænir og Reykjanesbæj- arlistinn mælast með óverulegt fylgi, eða 0,2%. Könnunin var gerð 2. - 4. maí og stuðst var við 800 manna úrtak 18 ára og eldri. Svarhlutfall var 68%. Tæplega 6% sögðust ekki ætla að kjósa eða skila auðu eða ógildu. Tæp 15% svarenda voru óákveðnir og 5% vildu ekki gefa upp afstöðu sína. Eigum töluvert fylgi inni -segir Reynir Valbergsson, bœjarstjóraefni A-listans Reynir Valbergsson, bæjarstjóra- efni A-Iistans, segist taka niður- stöðum könnunarinnar með nokkrum fyrirvara en út úr henni megi lesa að A-listinn eigi inni talsvert fylgi. „Við erum óhress með þessa nið- urstöðu en erum sannfærð um að við eigum inni meira fylgi en þarna kernur fram. Ef við skoðum dreifinguna, þá taka 50% allra svarenda afstöðu með D-listanum. Þar af leiðandi eru ennþá í pottinum 50% atkvæða sem dreifast á milli okkar, hinna framboðanna og óákveðinna. meðftlnMfei Alexandra Chernyshova, sópran, heldur tónleika sunnudaginn 14.maí í Duus salnum, Reykja- nesbækl. 15:00, miðaverðkr. 1500. Und- irleikari: Thornas R. Higgerson, píanó Á dagskrá eru verk eftir höfunda eins og Verdi, Rachmaninoff, Puccini, Mozart, Vlasov, Gershwin og Tchaikovskiy. Tilgangur tónleikanna er að kynna Al- exöndru væntanlega útgáfu geisladisks. Diskurinn kemur í búðir í júní. Alexandra er búin að halda tvenna einsöngstónleika í vor við mjög góðar undirtektir, bæði í Varmahlíð, Skagafirði og Laugarborg, Eyjafjarðarsveit. Okkur skilst að þegar spurt var hvað fólk hefði kosið síðast, hafi aðeins 12% svarað því til að hafa kosið Samfylkinguna. Það er í engu samræmi við niðurstöðu síðustu kosninga þar sem Sam- fylkingin fékk tæp 34% og hún ásamt Framsóknarflokknum samanlagt 47%. Þetta gefur til kynna að við eigum talsvert inni þannig að núna liggur fyrir að brýna verkfærin á endasprettinum og kynna vel fyrir íbúum Reykjanes- bæjar fyrir hvað við stöndum”, sagði Reynir. Tölur sem koma á óvart -Árni Sigfússon, oddviti D, listans er hœstánœgður með skoðanakönnun NFS „ I pólitík koma svona tölur alltaf á óvart “, svaraði Árni Sig- fússon, oddviti D-listans, þegar hann var spurður að því hvort niðurstaða skoðanakönnunar- innar hefði komið honum á óvart. „Ég er auðvitað mjög ánægður að finna svona gríðarlegan stuðning við okkur en ég minni á að þetta er skoðanakönnun og það eru ennþá rúmar tvær vikur í kosningar. Ef þetta verður raun- inn á kjördag þá þurfa bæjar- búar ekki að sjá eftir því. Þessu mun fylgja öflug uppbygging og bætt aðstaða til að gera Reykja- nesbæ að besta samfélagi til að búa í”, sagði Árni. LAUSAR STÖÐUR VIÐ AKURSKÓLA Reykjanesbær auglýsir lausar stöður við Akurskóla frá 15. ágúst 2006. Óskað er eftir: Umsjónarkennurum í 1. - 6. bekk. Tónmenntakennara í hlutastarf. Þroskaþjálfa í hlutastarf. Starfsmanni í Frístundaskóla. í Akurskóla verður áhersla lögð á raunvísindi, fjölbreytta kennsluhætti og einstaklingsmiðað nám. Einkunnarorð skólans eru: Börn eru gleðigjafar, skapandi og fróðleiksfús. Nánari upplýsingar gefur Jónína Ágústsdóttir skólastjóri í síma 420 4550 og 893 4550. Laun samkvæmt kjarasamning Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknir skulu berast Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar, Flafnargötu 57, 230 Reykjanesbæ, fyrir 25. maí. Starfsþróunarstjóri. 2 IVIKURFRÉTTIR I 19.TÖLUBLAÐ 27.ÁRGANGUR VÍKURFRÉTTIR Á NETINU -www.vf.is- LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.