Jökull - 01.01.2011, Blaðsíða 100
Halldór Ólafsson
Jaki í sprungunni norðvestan í Bárðarbungu, horft til Trölladyngju og Dyngjufjalla. – The snowcat, Jaki, in a
crevasse at northwestern Bárðarbunga. View towards the Trölladyngja lava shield and Dyngjufjöll.
fyrir katlana bilaði íssjáin svo alvarlega, að ekki varð
mælt meira að sinni. Það var því ekki um annað að
ræða en fara til Jökulheima og freista viðgerðar þar.
Við komum niður að jökulröndinni kl. 06 á mánudags-
morgni 12. júní og í Jökulheimaskála klukkutíma síð-
ar. Þar eldaði Sævar góða máltíð og að henni lokinni,
um kl.10 um morguninn, lögðumst við allir til svefns
enda þreyttir eftir strangan sólarhring. Farið var á fæt-
ur kl. 16 og fóru þeir Marteinn og Ævar strax að gera
við íssjána, en komið var fram yfir miðnætti þegar við-
gerð var lokið.
Risið var úr rekkju kl. 09:30 þriðjudaginn 13. júní.
En nú hafði veður breyst á ný, komið var suðaust-
an rok með úrhellisregni svo ljóst var að ekki yrði
mælt þann daginn. Þar sem áætlunin var sú að við
yrðum sóttir næsta dag, miðvikudag, ákváðum við að
fara upp á jökul og safna saman öllum okkar bún-
aði og flytja niður á rönd. Þar tókum við vélsleða-
kerruna af stóra sleðanum og gerðum hana klára fyrir
sitt hlutverk. Allt gekk þetta nokkuð vel þrátt fyrir
mikla rigningu og töluverðan krapa neðst á jöklinum.
Meðan þessu fór fram hafði Hannes farið niður í Búr-
fellsvirkjun, en hann kom svo til baka kl. 19:30. Í
fylgd með honum var stór vörubíll með tengivagn sem
skyldi taka Jaka og annan búnað úr ferðinni er átti að
fara til Reykjavíkur.
Er nú skemmst frá því að segja, að daginn eftir
miðvikudaginn 14. júní, var farið snemma á fætur og
hélt allur mannskapurinn fljótlega af stað inn að jökli
til að ferma farartækið stóra og koma öðrum búnaði
til Jökulheima. Lagt var af stað áleiðis í bæinn um
hádegi, eftir að hafa borðað og skálinn verið þrifinn.
Við Sigöldu kom Bryndís Brandsdóttir á móti okkur
á sínum bíl og fengum við Helgi, Marteinn og Sæv-
ar far með henni til Reykjavíkur, en Hörður og Ævar
fóru með vörubílnum í bæinn og var öll heimferðin
frá Jökulheimum tíðindalaus.
Hér með lýkur þessari frásögn af viðburðamik-
illi og árangursríkri mælingaferð á Vatnajökul vorið
1978.
100 JÖKULL No. 61, 2011