Freyr - 01.12.1924, Blaðsíða 6

Freyr - 01.12.1924, Blaðsíða 6
6. SÍÐA F R E Y R EYGLO Barnastáka Freys Eg vildi ei setja í vina minna röð, þó væri hlaðinn siðfágun og gáfum, ef viðkvæmnina vantaði, þann mann, sem vildi fótum troða lítinn orm. —Cowper.— Þú sem skapaðir lög og land og lýstir sólum stjörnugeim og samtengingar bazt það band, sem blysi lífsins glæðir heim. Vernda hvern þegn er þögull flýr til þín í bæn — hvert mállaust dýr. Með oss þau stríða og enda skeið vort æfistarf að gera létt. Hver dirfist þeirra lífs á leið að leggja bönd, að skerða rétt? Glæðum þann helga hjartans yl með hverju dýri að finna til. Emily B. Lord.— Áform mitt er að hafa barna- deild í blaðinu. Verða það smá- sögur, smákvæði og vísur, sem eg álít að séu við hæfi smá- barna. Með þessu vil eg sUá tvær flugur í einu höggi. Fyrst, gefa börnunum eitthvað Ijúft að lesa, og annað, nota það tækifæri til að tala máli dýr- anna við börnin. Eg tek á móti smásögum og ritgerðum frá börnum til birt- ingar í þessari deild. Langar mig til að geta gefið prís fyrir beztu sögu, en er ekki tilbúinn með það ennþá. Kæru börn! Sendið mér hugs- anir yðar í söguformi eða ljóði, eins vel úr garði gert og þér getið. Efnið ætti helzt að vera um dýr og fugla og um náttúru fegurð. Þegar næsta blað kem- ur út, ætla eg að hafa ákveðið um hvaða prís eg get gefið. Trúarjátning dýrverndunax'- félaganna er: “Dýrð sé guði”! “Friður á jörðu!” “Réttlæti, miskunn og blíðleiki gagnvart öllum lifandi skepnum.” Ef engir fuglar væru til, gætu mennirnir ekki lifað á jörðinni. Sælir eru miskunnsamir. Sérlivert hlýtt orð, sem !þú talar til dýranna eða fuglanna, eykur á farsæld þína. Það eitrar mjólkina í kúnni að fara illa með hana, jafnvel það að tala hranalega til henn- ar. Það er gæfuvegur að sýna foreldrum sínum virðingu. Það þykir naumast fallegt að áVarpa þau “gamli maðurinn” og “gamla konan”. Miklu fegurra væri að segja “elsku pabbi” og “elsku mamma”. Edward Everett, Ilale sagði eitt sinn í sæðu, er hann flutti á fundi dýraverndunarfélags í Chicago, að menn og skepnur ættu samleið í lífinu, og ef börnunum væri leyft að vera vondum við skepnur, myndu þau einnig verða vond við menn; í stað þess að ef þeim væri kent að vera góðum við skepnur, myndu þau verða góð- lyndari á öllum sviðum lífsins. Gleymið ekki kettinum yðar, þegar þér flytjið búferlum. “Hefir þú á móti öllum stríð- um?” spurði. maður eítt þinn Geo. T. Angell, dýravininn nafnkunna. Hann svaraði: “ó, nei. Ef þeir menn, sem setja af stað ó- nauðsynleg stríð, aðeins /vildu heyja alla bardagana sjálfir og það leiddi engar þjáningar yfir aðra menn eða skepnur, þá hefði eg ekkert á móti þeim. Eg myndi finna líkt til og gamla konan, sem sagði, að sér væri sama hvor þeirra hefði sigur, þegar maðurinn hennar flaugst á við skógarbjörn. En eg myndi ganga ögn lengra, því eg skoða þvílíka menn óvini mannkyns- ins, úlfa í voru hálfsiðaða mann félagi. Vafalaust munu vera til nauðsynleg stríð, en níu af hverjum tíu eru verk manna, sem miklu fremur verðskulda að vera í fangelsl, heldur en flestir þeirra, sem þar eru.” Nú eru bindindisfélög orðin fá meðal íslendinga. Gömlu fé- lögin í Winnipeg lifa þó enn og blómgast vel, þó lítið heyrist ai gerðum þeirra út í frá. En á Gimli er til allfjölmenn barnastúka. Hefir frú Kristjana Chiswell baríst hart fyrir til- veru hennar og viðhaldi. Frú Chiswell er víst sú eina mann- eskja á Gimli, sem lætur sig bindindismálið nokkru skifta. Hún leggur á sig mikla vinnu til að halda þeirri stúku við. Ekki veit eg með vissu hve marg- menn stúkan er, en það veit eg að hún heldur reglulega fundi og starfar vel. Þjóðræknisfé- lagið veitti medalíu fyrir upp- lestur í þessari stúku í vor sem leið. Frú Chiswell á stóran heiður skilið fyrir elju þá og at- orku, sem hún sýnir í því góða starfi. Bindindið er ein stærsta dygð mannanna.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/1347

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.