Þjóðmál - 01.09.2017, Qupperneq 7

Þjóðmál - 01.09.2017, Qupperneq 7
ÞJÓÐMÁL Hausthefti 2017 5 En þá að öðru, en þó í samhengi við slæmar kerfisbreytingar. Nú hefur vinstrimeirihlutinn í Reykjavík samþykkt að borgarfulltrúum verði fjölgað um helming, úr 15 í 23. Hingað til hefur verið nógu erfitt að finna nefndir og önnur störf fyrir þá 15 sem nú sitja. Þegar núverandi meirihluti var myndaður var búin til sérstök nefnd, sem er með öllu tilgangslaus, til að borgarfulltrúi Pírata hefði eitthvað að gera á kjörtímabilinu. Kostnaður við stjórnsýslu borgarinnar er nú þegar um fimm milljarðar króna á ári, þar af um þrír vegna miðlægrar stjórnsýslu. Þessi kostnaður á eftir að aukast um hundruð milljóna króna á ári hverju með átta borgar- fulltrúum til viðbótar. Það er ekki aðeins vegna launakostnaðar og annars kostnaðar sem fylgir hverjum borgarfulltrúa. Miðlægum verkefnum á eftir að fjölga, til verða fleiri ráð og nefndir, utanlandsferðum á eftir að fjölga og þannig mætti áfram telja. Það er algjör barnaskapur að halda öðru fram. Það hefur enginn innan borgarstjórnar viðrað hug- myndir um að minnka kerfið í borginni. Til upprifjunar er vert að taka fram að ný lög um sveitarstjórnir voru samþykkt í tíð vinstri- stjórnarinnar sem var við völd frá 2009-13, m.a. vegna þrýstings frá samflokksmönnum hennar í borgarstjórn. Það var því hjákátlegt að heyra meirihluta borgarstjórnar, þ.m.t. Dag B. Eggertsson borgarstjóra, bera því við að borgarstjórn væri einungis að fylgja lögum – svona eins og hún hefði bara ekkert með málið að gera. Reykjavíkurborg er illa stödd fjárhagslega, skuldar mikið og nær ekki að sinna því hlut- verki sem henni er ætlað. Fyrir utan hrokann og yfirlætið í borgarfulltrúum meirihlutans er almennur skortur á þjónustuvilja gagn- vart íbúum borgarinnar. Báknið er mikið og kostnaðurinn við það er gífurlegur. Það lagast ekki með fleiri borgarfulltrúum, þvert á móti. Það hafa gefist tækifæri til að snúa þessari vitleysu við. Sigríður Á. Andersen, sem þá var óbreyttur þingmaður Sjálfstæðisflokksins, mælti í febrúar 2016 fyrir frumvarpi sem átti að afnema fjölgun borgarfulltrúa. Það fékk ekki afgreiðslu á þingi. Jón Gunnarsson, ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála, lagði fram sambærilegt frumvarp fyrr á þessu ári (sem fékk heldur ekki afgreiðslu) og til stóð að leggja fram aftur nú á haustþingi. Sjálfstæðisflokkurinn var eini flokkurinn sem studdi frumvarpið; aðrir flokkar voru fylgjandi því að stækka báknið í Reykjavík. Þeir flokkar sem hafa á síðustu árum notað frasa um sérhagsmuni sýndu það að orð þeirra hafa enga alvöru merkingu. Viðreisn, Samfylkingin, Vinstri græn, Píratar og Framsóknarflokkurinn eru öll flokkar sem hafa hagsmuni af því að stækka báknið og fjölga borgarfulltrúum. Með því að setja sig upp á móti fyrrnefndum frumvörpum um afnám á fjölgun borgarfulltrúa, eins og þeir gerðu, gættu þeir eigin hagsmuna. Með öðrum orðum; í þessu tiltekna máli ákváðu allir þessir flokkar að stunda sérhagsmuna- gæslu á kostnað útsvarsgreiðenda í Reykjavík – sem fá reikninginn sendan síðar. Frábær kerfisbreyting það. Gísli Freyr Valdórsson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Þjóðmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.