Helgarpósturinn - 22.12.1987, Blaðsíða 9

Helgarpósturinn - 22.12.1987, Blaðsíða 9
Matarskattinum mótmælt. Boðskapur stjórnarinnar er 7% launahækkun á árinu — en á Vestfjörðum vilja menn hækka lægstu launin um 5—7% áður en rætt er um almennar launa- hækkanir. Af rausn sinni hefur ríkisstjórnin boðist til að falla frá söluskatti á „neyslufisk almennings" eins og forsætisráðherra orðar það svo smekklega. ÞREIFAÐ I ÞÖGN „Flestir vita ekkert, en þeir sem vita segja ekkert,“ er sagt um stööuna í samningaþreif- ingum aöila vinnumarkaöarins. í gær var haldinn útifundur ýmissa launþegasamtaka gegn matarskattinum svokallaða, en skattur þessi er tal- inn helsti Þrándur í Götu nýrra kjarasamninga. Samning- ar flestra launþegasamtaka verða lausir um áramótin, en lítið hefur enn gerst yfir kaffibollum viðræðuaðila, sem hafa í höndunum þá stefnumótun ríkisstjórnarinnar að laun hækki um 7% á næsta ári. EFTIR FRIÐRIK ÞÓR GUÐMUNDSSON MYND JIM SMART Þeir aðilar sem HP ræddi við um stöðu samningamálanna voru var- kárir í yfirlýsingum sínum eða töldu sig hreinlega ekki vita hver staðan væri! Einn viðmælenda blaðsins í launþegahreyfingunni sagði þannig hreint út: „Flestir sem ég hef haft samband við vita ekkert, en þeir sem vita segja ekkert.“ Mest er þó talað um hækkun lægstu launa og í því sambandi eru málefni fiskverkafólks efst á baugi. Um helgina var haldinn fram- kvæmdastjórnarfundur hjá Verka- mannasambandinu, en þar urðu menn bara sammála um að biðstaða ríkti. í þeim óformlegu viðræðum sem VMSÍ og VSÍ hafa staðið í hefur verið rætt um hvernig tryggja megi kaupmátt launa án þess að verð- bólgan æði af stað. Fulltrúar VMSÍ voru boðaðir á fund ríkisstjórnar- manna og sagt að til að liðka fyrir samningum kæmi til greina að hætta við söluskatt á fisk. VMSI- mönnum þótti þetta engin tíma- mótamarkandi yfirlýsing. Þeim, eins og fleirum, hefur orðið starsýnt til Vestfjarða, þar sem Al- þýðusamband Vestfjarða hefur átt í viðræðum við vinnuveitendur með hagsmuni fiskverkafólksins í for- grunni. Þar um slóðir voru menn með frumkvæðið í tilrauninni með hópbónus og að sögn Péturs Sig- urdssonar, forseta ASV, eru við- ræðuaðilar sammála um lykilatriði í stöðunni: Vinnuveitendur eru sam- mála um að laun fiskverkafólks séu of lág, en viðsemjendurnir hafa sýnt skilning á því að staða fiskvinnsl- unnar til leiðréttingar á þessu sé nokkuð slæm „vegna verðlagning- arinnar á gjaldeyrinum, sem síðan skilar sér að litlu leyti til okkar svæðis á ný, heldur fer í að halda bákninu uppi“. Að öðru leyti ræða menn fyrir vestan um svokallaða „holufyll- ingu", þ.e. að „verðbæta" laun þeirra sem orðið hafa eftir í launakapp- hlaupi síðustu 15 mánuða með 5—7% leiðréttingu áður en hafist er handa við að brúa hið almenna bil, það er rætt um orlofslengingu, einn yfirvinnuflokk að dagvinnu lokinni, að matartíminn á laugardögum og sunnudögum verði borgaður ef hann fellur inn í vinnutímann og fleira. En það þýðir ekki að einblína á Vestfirði. „Við komum ekki til með að gera samninga sem eru allt of mikið í blóra við það sem aðrir gera í landinu. Það ætti að vera hægt að samræma kröfurnar, þótt skipulagið virðist vanta til þess," sagði Pétur. Og víst er að talsmenn ánnarra sam- banda en VMSÍ innan Alþýðusam- bandsins virðast orðnir nokkuð óþolinmóðir gagnvart einstefnunni í kringum fiskverkafólkið. Einn við- mælandi HP sagði þannig hreint út að forystumenn samtaka iðnverka- fólks og verslunarfólks hefðu af þessu áhyggjur og væru sammála um að VMSI væri einum of leiðandi í viðræðunum. Hitt er annað mál að þessir aðilar eru að ræða samninga- atriði sem ekki virðast á skjön við meginlínuna. Þannig er efst á blaði hjá samtökum verslunarmanna að stytta bilið á milli taxtanna og raun- verulega greidds kaups, að tryggja kaupmáttinn og að verðbólgan fari ekki á skrið á ný. Mismunurinn virð- ist helst fólginn í þvi hvort einhverj- ar umframhækkanir komi til fisk- verkafólks. Sem fyrr segir verða samningar lausir um áramótin, en það eru ekki fyrst og fremst þau tímamót sem setja þrýsting á viðræðurnar. Sam- kvæmt heimildum HP horfa menn fremur til þess að opinberir starfs- menn fá hækkun í janúar og febrúar og talið mikilvægt að tekið verði mynduglega á samningamálunum áður en of mikið misræmi myndast við þau tímamörk, sem yrði þá að taka inn í æ erfiðara dæmi, og þá yrðu enn sem komið er hjáróma raddir um aðgerðir háværari. ERLEND YFIRSÝN eftir Magnús Torfa Ólafsson Vígbúnaðinum kennt um vand- ann í bandarísku hagkerfi Svarta mánudaginn 19. október í haust varð verð- hrun á kauphöllum heims, sér í lagi þeirri í Wall Street. Dagana áður hafði sýnt sig, að samkomulag sjö helstu iðnríkja um að vinna saman gegn stórfelldum gengis- sveiflum, kennt við höllina Louvre í París, þar sem fjár- málaráðuneyti Frakklands hefur aðsetur, var runnið út í sandinn. leiðsluiðnaði var 4,3% á ári ára- tugina 1950 til 1970. Á árabilinu 1970 til 1984 var meðalframleiðni- aukning 1,4% árlega. Árið 1978 var vélakostur bandarísks málm- smíðaiðnaðar eldri en með nokk- urri annarri iðnvæddri þjóð. Y firburðasamkeppnisstaða Hervæðingarkostnaðurinn er tvöfaldur, bæði beinn og óbeinn. Karnorku- eldflaug í byrgi sinu í Warren-flugherstöðinni i Wyoming. Þá tvo mánuði sem síðan eru liðnir hefur ríkt óvissa á peninga- og verðbréfamarkaði. Bandaríkja- dollar hefur haldið áfram að lækka og hefur misst nær tíunda hluta af verðgildi sínu gagnvart öðrum helstu gjaldmiðlum á þessu tímabili. Fjármálamenn eru orðn- ir langeygir eftir að stjórnir iðn- veldanna sjö láti til sín taka og eigi sameiginlegt frumkvæði til að efla á ný traust i alþjóðafjármálum og viðskiptum og draga úr óvissu. Hafa margir í þeim hópi spáð, að verði ríkisstjórnirnar of svifasein- ar muni nýtt kauphallarhrun skella yfir með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Mánaðartogstreita milli þings og ríkisstjórnar Bandaríkjanna um ráðstafanir til að draga úr fjár- lagahalla þar í landi skýrði töfina á aðgerðum. Hallabúskapur Bandaríkjastjórnar er að allra dómi helsta orsök jafnvægisleysis og óvissu í heimsviðskiptum. Ráð- stafanir til að draga úr hallanum eru óhjákvæmileg forsenda fyrir að viljayfirlýsingar bandarískra stjórnvalda séu teknar alvarlega. Nú er í höfn áform um að lækka hallann á ríkissjóði Bandaríkjanna um tæpa fimmtíu milljarða dollara á tveim árum. Þá ætti stjórnum sjöveldanna, Bandaríkjanna, Bret- lands, Frakklands, Ítalíu, Japans, Kanada og Vestur-Þýskalands, ekki að vera margt að vanbúnaði að láta til sín taka. Vænst hafði verið fundar fjármálaráðherra þessara ríkja. Svo er að sjá að af honum verði ekki í bili, heldur verði látið nægja að gefa út yfirlýs- ingu til vitnisburðar um nýja stefnumörkun sjöveldanna. Búið hefur verið í haginn fyrir slíkt frumkvæði með ýmsum ráð- stöfunum, einkum i Vestur-Þýska- landi, en Bandaríkjastjórn hefur lengi sakað þá vestur-þýsku um að fylgja of aðhaldssamri stefnu í fjár- málum og halda þannig hagvexti niðri. Nú hafa vextir á vestur-þýsk- um fjármagnsmarkaði verið lækk- aðir nokkuð og lánsfé sem sveitar- félögum og fyrirtækjum þeirra stendur til boða til nýfram- kvæmda verið aukið um rúma tuttugu milljarða marka. En enn sem fyrr er það afstaða Bandaríkjastjórnar sem mestu ræður um efni og áhrif væntan- legrar sjöveldayfirlýsingar. Eftir því sem næst verður komist vill James Baker, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, að megináhersla verði lögð á aðgerðir til að sam- ræma efnahagsstefnu og draga þar með úr ójafnvægi í heimsvið- skiptum. Er þar að sjálfsögðu átt við gífurlegan halla á utanríkisvið- skiptum Bandaríkjanna en sam- svarandi afgang á viðskiptareikn- ingum Japans og Vestur-Þýska- lands við önnur lönd. Þessi framsetning gefur til kynna, að enn þyki Baker sem Bandaríkjadollar hafi ekki fallið nóg, ella yrði áfram rætt í sameig- inlegri yfirlýsingu um aðgerðir til að hindra gengissveiflur, eins og gert var í Louvre-yfirlýsingunni. Efnahagsmálafréttaritari breska útvarpsins BBC telur sig hafa heimildir fyrir, að Baker vilji gjarnan sjá dollarann falla niður fyrir 110 japönsk jen, eða um 10% í viðbót við það sem þegar er orð- ið. Starfsbræður Bakers eru ekki hrifnir af slíkum fyrirætlunum þeirra sem stjórna bandarískum fjármálum. Áður en dollarinn tók síðustu dýfuna fyrir rúmri viku áfelldist franski fjármálaráðherr- ann Bandaríkjastjórn fyrir að nota sér stöðu dollars á alþjóðlegum peningamarkaði á ótilhlýðilegan hátt. Edouard Balladur komst svo að orði á ráðstefnu um evrópska einingu, að dollarinn væri kominn niður fyrir eðlilegt verðgildi og viðleitni Bandaríkjastjórnar til að halda honum vanmetnum jafngilti viðskiptahömlum gagnvart Evrópuríkjum. Kallaði Balladur vanmetinn dollar „efnahagslega og viðskiptalega ógnun" við Evrópu, sér í lagi vegna þess að sú gengisskráning bætir samkeppn- isstöðu nýiðnvæddu ríkjanna í Suðaustur-Asíu, sem láta gjald- miðla sína fylgja Bandaríkjadollar langleiðina niður á við. En Baker getur bent á það á móti, að viðskiptahalli f^andaríkj- anna reyndist setja nýtt met í október. Hann komst þá upp í 17,6 milljarða dollara, sem jafngildir 175 milljarða árshalla. Fór við- skiptahallinn langt fram úr spám og bera tölurnar síður en svo vott um að bandarískir útflytjendur hafi getað notfært sér lággengið gagnvart keppinautum á alþjóð- legum markaði. Seymour Melman, prófessor í iðnverkfræði við Columbia-há- skólann í New York, segir nýlega í New York Times, að mein banda- rísks atvinnulífs sé að bandarískt hagkerfi sé orðið annars flokks miðað við helstu keppinauta í Vestur-Evrópu og Asíu. Vöxtur framleiðni í bandarískum fram- Bandaríkjanna á alþjóðamarkaði er farin forgörðum, segir Melman, og um leið hefur lífskjörum lands- manna hrakað. Um langan aldur greiddi bandarískur iðnaður hæsta verkamannakaup í heimi. Árið 1980 voru verkamannalaun hjá sjö þjóðum komin fram úr þeim bandarísku. Melman er kunnastur fyrir rit sín um samhengið milli herkostn- aðar og framleiðni í atvinnulífinu. 1 greininni í New York Times dreg- ur hann saman niðurstöðurnar af rannsóknum sínum. Þær eru á þá leið, að útþensla hergagnaiðnað- arins sé orðin alvarlegur dragbítur á bandaríska hagkerfið. Ahrifa- mesta ráðið til að leysa vandann sem við blasir sé að skera niður hervæðingarkostnaðinn svo um munar. Hergagnaframleiðendur þurfa ekki að hugsa um kostnað, segir Melman, þeir fá greitt í Pentagon eftir reikningi. Nú hafa 35.000 bandarísk fyrirtæki með höndum verkefni fyrir landvarnaráðuneyt- ið samkvæmt beinum samning- um, og undirverktakar þeirra eru yfir 100.000. í stað þess að þurfa að keppa í framleiðni og vörugæð- um á markaði er þessi stóri hluti iðnaðarins kominn á opinbert framfæri, og það dregur niður allt hagkerfið og frammistöðu þess. Ein meginástæðan til að Banda- ríkin hafa dregist aftur úr keppi- nautum sínum ; . að dómi Mel- mans, hve stór hluti af rannsókna- og þróunarstarfsemi fer fram í þágu hervæðingarinnar. Frá lok- um heimsstyrjaldarinnar síðari hefur tvöfalt meiri mannafli og vélakostur starfað við vopnaþró- un en við allar aðrar rannsóknir og tilraunastarfsemi samanlagt. Bandaríkjastjórn þarf líkt og sú sovéska að létta vígbúnaðarbyrð- ina til að bæta hagkerfið, segir prófessor Melman. HELGARPÓSTURINN 9

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.