Helgarpósturinn - 22.12.1987, Blaðsíða 24

Helgarpósturinn - 22.12.1987, Blaðsíða 24
sem sáu forsætisráðherra, Þorstein Pálsson, í Nærmynd Jóns Óttars Ragnarssonar hafa eflaust undrast hve bragðlaus þátturinn var. Ekki mun vera við Jón Óttar að sakast í þessu sambandi. Þegar að vinnslu þáttarins kom, undir öruggri stjórn Elínar Þóru Friðfinnsdóttur, og klippa átti forsætisráðherra til, þá mættu á Stöð 2 tveir hörðustu stuðningsmenn Þorsteins og tals- menn ,,frjálsrar“ fjölmiðlunar í land- inu, Kjartan Gunnarsson, formað- ur útvarpsréttarnefndar og fram- kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, og Jónína Mikaelsdóttir, aðstoð- armaður forsætisráðherra. Þau héngu yfir klippingu þáttarins á annan sólarhring til að tryggja að ráðherrann ungi segði nú ekki meira en hann gæti staðið við og að það væri innan marka þess sem for- maður Sjálfstæðisflokksins get- ur leyft sér. Vöktu þessir „yfir- frakkar frelsisins" nokkra athygli í sjónvarpsstöðinni ungu. . . U _ Pálsson af störfum hjá Sambandi íslenskra samvinnufélaga fyrir aldurs sakir. Hann hefur verið yfir- maður verslunardeildar SÍS. Það vekur athygli að enn hefur ekki ver- ið gengið frá ráðningu eftirmanns Hjalta. Ein skýring mun vera sú skv. heimildum HP að Guðjón B. Ólafs- son, forstjóri SÍS, hefur ekki komið í gegn skipulagsbreytingum á versl- unardeildinni, eins og gert var ráð fyrir að hann myndi beita sér fyrir. Önnur skýring mun vera sú, að nú- verandi aðstoðarforstjóri SÍS, Axel Gíslason, sem hefur verið nefndur sem eftirmaður Hjalta Pálssonar, mun ekki vera ginkeyptur fyrir því að taka við starfinu vegna halla sem verið hefur á deildinni undanfarið. Samkvæmt heimildum HP er búist við verulegum breytingum á versl- unardeild SÍS á næstunni og að þá fyrst verði gengið frá ráðningu for- stöðumanns. .. v W ið höfum áður greint frá því að nokkrir „máttarstólpar" úr at- vinnulífinu og Sjálfstæðisflokkn- um hafi leitað fyrir sér um stuðning við fyrirtæki Davíðs Schevings Thorsteinssonar vegna þeirra ógangna sem hann rataði í vegna sól-gossins. Um er að ræða hluta- fjáraukningu í fyrirtækjunum. Nú hefur okkur borist til eyrna að mála- leitan þessi hafi m.a. borið þann ár- angur að Eimskip, BM Vallá og jafnvel Hekla hf. hafi ákveðið að styðja við bakið á fyrirtækjum Davíðs með einhverjum hætti og að mál þessi verði gjörð opinber innan skamms... Landsbanki « Banki allra landsmanna Wj.''f) _ 24 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.