Morgunblaðið - 21.03.1987, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.03.1987, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR OG LESBÓK STOFNAÐ 1913 67. tbl. 75. árg. LAUGARDAGUR 21. MARZ 1987 Prentsmiðja Morgunblaðsins Her Chad eyddi líbýskri herdeild Afiidjan, Fflabemsströndinni, AP. ÚTVARPIÐ í Chad sagði í gœr að stjómarher landsins hefði nær stráfellt lfbýska herdeild í The Rolling Stones: Hættir eft- ir aldar- fjórðung London, AP. BILL Wyman, bassaleikari bresku rokkhljómsveitarinnar The Roll- ing Stones, segir að verið geti að hljómsveitin leiki aldrei saman aftur. Hann kenndi Mick Jagger söngvara um sundrungu innan hljómsveitarinnar í viðtali, sem sjónvarpað var um Evrópu gegn- um gervihnött. „Þetta er honum að kenna. Hann ákvað að eltast við frægð og frama upp á eigin spýtur. Ég held að allir vilji standa einir að velgengni sinni, en menn geta farið aðrar leiðir en Jagger," sagði Wyman í viðtali við sjónvarpsrásina Music Box. „Þar kemur að allir góðir hlutir taka enda. Synd að við skyldum kveðja með geispa, en ekki látum. Ég veit ekki hvort við förum nokk- um tímann aftur í hljómleikaferða- lag. Það veltur á hvort Mick og Keith [Richards gítarleikari] verði vinir á ný. Þar stendur hnífurinn í kúnni.“ ^ Wyman sagði að fyrst hefði soðið upp úr sumarið 1985. Hljómsveitin The Rolling Stones öðlaðist frægð og frama á sjöunda áratugnum. Hljómsveitin kom síðast fram á sviði í London fyrir nokkrum mánuðum. Um þijú hundruð manns voru á tónleikunum, sem ekki var boðað til fyrirfram. „Ef til vill kom- um við þama fram í síðasta skipti," sagði Wyman. bardaga í eyðimörkinni f norð- austurhluta landsins. Útvarpið sagði að stjómarher Chad hefði umkringt líbýska her- deild á svæðinu milli milli Bir Kora og Ouadi Doum. Hefðu 384 líbýsk- ir hermenn verið felldir og 47 teknir til fanga. Enginn hefði komist und- an. Jafnframt sagði útvarpið að stjómarherinn hefði tekið trausta- taki eða eyðilagt Marchetti flugvél- ar, 15 sknðdreka og ýmiss önnur hergögn. Átökin hefðu átt sér stað í fyrradag. Hefðu sex stjómar- hermenn fallið og 22 særst. Síðasta lota í bardögum stjómar- hers Chad og innrásarhers Líbýu- manna hefur staðið yfir frá því um miðjan desember sl. Stjómarherinn reynir að hrekja Líbýumenn, sem styðja uppreisnarmenn í norður- hluta Chad, úr landi. Ýmsir hópar í Chad hafa barizt um völd í landinu um tveggja áratuga skeið. Ronald Reagan, Banda- ríkjafor- seti, leggur áherzlu á mál sitt á blaða- manna- fundinum íWas- hington í fyrra- kvöld. Reuter Reagan sagður hafa unnið mikinn sierur Washineton, frá ívari Guðmundssyni, fréttaritrara Morrrunblaðins. AP. Reuter. Stuðningsmenn Ronalds Reagan, Bandaríkja- forseta, eru himinlifandi vegna þess hve vel hann þykir hafa staðið sig á blaðamannafundin- um i fyrrakvöld. Jafnvel andstæðingar forset- ans viðurkenna að hann hafi farið með mikinn sigur af hólmi á fundinum, sem beðið hafði verið eftir með mikilli eftirvæntingu. Stjórn- málaskýrendur austan hafs og vestan eru sammála um að Reagan hafi unnið á með fund- inum og að hann hafi verið fuUur sjálfstrausts og öruggur í fasi á fundinum. Flestar spumingar frétta- manna vörðuðu vopnasöluna til írans og segja fréttaskýrendur að ekkert nýtt hafí komið fram í málinu. Hafí forsetinn reyndar ekki virst taka gagnrýni Tower- nefndarinnar til sín því hann hafí varið eigin framgöngu í málinu af mikilli fími. Robert Strauss, fyrrverandi formaður Demókrata- flokksins, lét svo ummælt í sjónvarpsviðtali eftir fundinn að SAS krefst aukinna fliig- réttínda tíl Bandaríkj anna Hótar ella að hætta við kaup á bandarískum þotum Stokkhólmi, Reuter. STJÓRN SAS hótaði I gær að afpanta 12 bandarískar farþegaþot- ur að verðmæti 60 mi][jarða ísl. króna og kaupa evrópskar Airbus-þotur í staðinn nema bandarisk stjómvöld heimili félag- inu flug tíl fleiri áfangastaða í Bandaríkjunum. Stjóm SAS ákvað á fundi um 1990-1992 og leysa DC-10 sínum í Kaupmannahöfn í fyrra- kvöld að fresta frágangi samn- inga um kaup á 12 nýjum meðaldrægum breiðþotum af gerðinni MD-11 af McDonnell Douglas-verksmiðjunum til þess að þrýsta á um aukin réttindi til flugs til Bandaríkjanna. Félagið undirritaði viljayfírlýsingu um kaup á vélunum í desember sl. og áttu þær að afhendast á árun- þotur, sem teknar eru að eldast, af hóími. Embættismaður í danska sam- gönguráðuneytinu sagði í dag að bandarískir ráðamenn hefðu í síðustu viku lýst sig jákvæða gagnvart óskum samgönguráð- herra Noregs, Danmerkur og Svíþjóðar um aukin flugréttindi SAS til Bandaríkjanna. Loft- ferðasamningur ríkjanna við Bandaríkin er SAS mjög óhag- stæður miðað við þau réttindi sem hann veitir bandarískum flugfé- lögum til flugs til Norðurland- anna. Hefur SAS nú ákveðið að bíða og sjá hvað kemur út úr næsta samningafundi um nýjan loftferðasamning, sem fyrirhug- aður er í júní, en um mánaðamót- in rennur út frestur, sem McDonnell Douglas gaf félaginu til að staðfesta pöntun sína á MD-11 þotunni. Stjóm SAS ákvað að íhuga í staðinn kaup á Airbus A340- þotum. Ekki hefur enn verið ákveðið hvort ráðist verði í smfði þeirrar þotu vegna ónógra pant'- ana. Hætti SAS við kaup á MD-11 og panti A340 í staðinn yrði það mikill sigur fyrir evrópsku flug- vélaverksmiðjuna Airbus Ind- ustrie í Frakklandi og gæti ráðið úrslitum um hvort flugvélin verð- ur smíðuð. Hún stendur höllum fæti í samkeppninni við MD-11 þar sem hún verður ekki tilbúin fyrr en eftir 1992. Kaupi SAS A340 myndi félagið notast við DC-10 þangað til þær yrðu tilbún- ar. í fyrradag urðu verksmiðjum- ar fyrir því áfalli að Swissair tók bandarísku flugvélina framyfír A340 og staðfesti pöntun á sex MD-11. almenningur í Bandaríkjunum væri orðinn hundleiður og þreytt- ur á að þvæla um málið. Reagan hélt því að vísu fram að lausn gíslamálsins hafi verið í sjónmáli þegar vopnasalan til Ir- ans komst í hámæli. Mannræn- ingjar í Líbanon hafi þá verið í þann mund að sleppa nokkmm bandarískum gíslum. Forsetinn viðurkenndi hinsvegar að áætlun um bætt samskipti við hófsöm öfl í íran hefði farið úr böndunum og reynt hefði verið að kaupa gfslana lausa. Forsetinn bar sig fíjálsmann- lega er hann kom til fundar við blaðamennina, gekk rösklega að pontunni og bað strax um fyrstu spuminguna. Afgreiddi hana fljótt og bað um næstu. Hann var í essinu sínu og svaraði spumingum fljótt og vel, stundum með gaman- yrðum og af kankvísi. Er ýjað var að því að forsetinn hefði ef til vill ekki sagt satt og rétt frá um vopnasöluna til íran og peningagreiðslur til skæruliða í Nicaragua, svaraði hann: „Nei, ég ætla ekki að skrökva að banda- rísku þjóðinni. Ég læt öðmm það eftir." Bandarískir fréttaskýrendur vom á því að Reagan hefði staðið sig vel á fundinum og sögðu að svo virtist sem hann væri að rétta úr kútnum eftir fremur erfíða tíð í Hvíta húsinu í vetur. Sjá ennfremur fréttir um blaðamannafund Banda- ríkjaforseta á bls. 30.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.