Morgunblaðið - 02.04.1997, Blaðsíða 12
Morgunblaðið/Kristinn Ben.
Konunglegar mótlökur
GRINDAVÍKURSTÚLKUR fengu góöar móttökur þegar þær komu meö íslandsbikarinn heim eftir aö hafa sigraö KR þriðja sinni.
Grindvíkingar íslandsmeistarar í kvennaflokki í fyrsta sinn
Ævintýrin gerast enn
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
Ævintýrin gerast enn og einu
slíku lauk í íþróttahúsi
Hagaskóla á skírdag þegar Grinda-
víkurstúlkur urðu ís-
landsmeistarar
fyrsta sinn í körfu-
knattleik kvenna,
lögðu KR 62:55 í
framlengdum leik, en UMFG sigraði
einnig í tveimur fyrstu leikjum lið-
anna. Arangur Grindavíkurstúlkn-
anna er frábær. Eftir rysjótt gengi
í vetur komu þær tvíefldar til leiks
í úrslitakeppnina, unnu Keflavík í
tveimur leikjum og síðan KR í þrem-
ur, nokkuð sem enginn bjóst við.
„Það er ótrúlegt að vinna 5:0 í
úrslitakeppninni," sagði Ellert
Magnússon þjálfari stúlknanna eftir
sigurinn á skírdag. „Það hafði eng-
inn trú á að við myndum sigra. Við
trúðum því ekki einu sinni sjálf í
upphafi. Svo unnum við Keflavík í
fyrsta leik, og svo aftur og þá sáum
við að þetta var hægt, en Keflavík
hefur verið sú grýla sem hefur stað-
ið í okkur,“ sagði Ellert.
Þegar tíu mínútur voru til leiks-
loka á skírdag hafði KR 11 stiga
forystu, 46:35, og fátt sem benti til
að Grindavíkurstúlkur myndu
tryggja sér titilinn. En Ellert þjálf-
ari lumaði á trompi. Hann lét súlk-
urnar breyta í svæðisvörn og hún
gekk svo ljómandi vel að á síðustu
tíu mínútunum gerðu KR-ingar að-
eins þtjú stig á meðan Grindavík
gerði 11 og þegar klukka tímavarðar
gall var staðan jöfn, 49:49, og því
þurfti að framlengja, þar sem Grind-
víkingar voru mun sterkari og sigr-
uðu. KR-ingar geta engum kennt
um hvernig fór nema sjálfum sér.
Eftir góðan fyrri hálfleik þar sem
baráttan var til fyrirmyndar, bæði í
sókn og vörn, var með ólíkindum
að þær skyldu tapa leiknum. Lið sem
tekur 21 sóknarfrákast á móti 6 hjá
móthetjunum á ekki að tapa. En það
gerðist nú samt og þetta er í fjórða
sinn á fimm árum sem KR-stúlkur
verða að sætta sig við silfurpening.
Helga Þorvaldsdóttir var mjög góð
framan af leik og Kristín Jónsdóttir
einnig, hún gerði t.d. öll sex stig KR
í framlengingunni. Nafna hennar
Magnúsdóttir lék vel í vörninni, þar
sem hún gætti Penni Peppas, og
Linda Stefánsdóttir gerði slíkt hið
sama. Sóley var grimm í fráköstun-
um en Guðbjörg Norðfjörð náði sér
ekki vel á strik.
Hjá nýbökuðum Islandsmeistur-
um var Peppas best og fer ekkert á
milli mála að hún er best kvenna
hér á landi í körfuknattleik, enda
varð hún íslandsmeistari í hitteð-
fyrra með Breiðabliki. „Svæðisvörn-
in gekk mjög vel hjá okkur og þetta
er frábært. Við erum með ungt lið,
tvær stelpur í 10. bekk og ein var
að fermast í dag,“ sagði Peppas eft-
ir leikinn.
„Það var rosalega gaman að vinna
með Blikum á sínum tíma en þetta
er ekki síðra,“ sagði hún. Anna Dís
Sveinbjörnsdóttir átti mjög góðan
leik og Sólveig Gunnlaugsdóttir var
sterk í svæðisvörninni. Þá átti Rósa
Ragnarsdóttir einnig góðan dag en
annars var liðsheildin sterk hjá
Grindvíkingum.
Fögnuður
Morgunblaðið/Kristinn Ben.
ELLERT Magnússon, þjálfari Grindvíkinga, fagnaði innilega
þegar Ijóst var að stúlkurnar hans höföu komið öllum á óvart
meö því að sigra í fimm leikjum í úrslitakeppninni. Fyrir aft-
an þjálfarann er Rósa Ragnarsdóttir og aftast er fermingar-
barniö, Hekla M. Siguröardóttir.
Dagur með
stórleik
DAGIJR Sigurðsson átti stór-
leik með Wuppertal þegar lið-
ið lagði Flensburg II að velli
í Flensburg í norðurrili 2.
deildar í þýska handknatt-
leiknum, 28:18. Dagur skoraði
fimm mörk. Meiðsli Ólafs
Stefánssonar á ökkla tóku sig
upp í byijun leiks og lék hann
ekki með. „Ég var ipjög
ánægður með leik liðsins og
vona að strákarnir haldi
áfram á þessari braut. Það
er jjóst að um hreint einvígi
um fyrsta sætið er á milli
okkar og leikmanna Bad
Schwartau. Þeir unnu þýðing-
armikinn leik gegn Rostock,
26:20. Við erum með eins stigs
forskot á þá og þrjátíu mörk
í plús þegar fjórar umferðir
eru eftir,“ sagði Viggó Sig-
urðsson, þjálfari Wuppertal.
Gummers-
bach náði að
bjarga sér
FORRÁÐAMENN þýska
handknattleiksliðsins Gumm-
ersbach náðu að bjarga þessu
heimsfræga liði frá gjaldþroti
um helgina. Þeir fengu verð-
bréfafyrirtæki í Diisseldorf til
að verða aðalstyrktaraðili
Uðsins. Fyrirtækið gerði
þriggja ára samning við
Gummersbach, sem fær 200
miLIj. ísl. króna.
Villeneuve
sigraði í
Brasilíu
JACQUES Villeneuve frá
Kanada, sem ekur fyrir Mans-
ell, sigraði í brasilíska kapp-
akstrinum á sunnudaginn.
Villenevue hóf keppni fremst-
ur en þrátt fyrir það blés
ekki byrlega fyrir honum í
byijun; bíll Kanadamannsins
skaust út af brautinni strax í
fyrstu beygju, fjórir fylgdu í
kjölfarið og því var keppni
stöðvuð og ökuþórarnir ræst-
ir á ný.
Villeneuve, sem er 25 ára,
kom 4,1 sekúndu á undan
Austurríkismanninum Ger-
hard Berger í mark, en hann
ekur fyrir Benetton. Frakk-
inn Oliver Panis varð þriðji á
bíl nýja Prost liðsins.
Úrslitakeppnin
í körfuknattleik 1997
Þriðji leikur liðanna fúrslitum,
leikinn i Reykjavik 27. mars
KR Grindavik
55 Skoruð stig 62
5/13 Vítahfttni 12/17
4/22 3ja stiga skot 4/10
19/49 2ja stiga skot 19/45
26 Varnarfráköst 20
21 Sóknarfráköst 6
14 : Boita náð 8
18 Bolta tapað 17
6 Stoðsendingar 8
21 Villur 17