Morgunblaðið - 10.06.2000, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 10.06.2000, Blaðsíða 1
132. TBL. 88. ÁRG. LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Brúðhjón rændu banka The Daily Telegraph. DORELL Mainer, 38 ára verðandi brúður í New York, og unnusti hennar vissu ekki sitt rjúkandi ráð í vikunni þeg- ar í ljós kom að þau höfðu ekki efni á að halda brúðkaups- veislu eins og þau höfðu stefnt að. Mainer hafði átt von á end- urgreiðslu frá skattinum en bandarísk skattayfirvöld (IRS) tóku einhverra hluta vegna þá ákvörðun að greiða henni ekki út féð. Það leit því allt út fyrir að Mainer og unn- ustinn, Kevin Rainey, hefðu ekki ráð á að halda brúðkaups- veisluna. Aflienti gjaldkera miða Til að valda ekki ættingjum sínum vonbrigðum með því að aflýsa veislunni, brugðu hjónaleysin á það ráð að ræna banka. Skömmu eftir hádegið sl. fimmtudag gekk Mainer inn í útibú Chase Manhattan banka í Brooklyn-hverfi með- an Rainey stóð vörð fyrir utan. Konan lét gjaldkera hafa miða þar sem sagði að sprengja væri tengd við símalínur bankans sem myndi springa ef hringt yrði á lögreglu. Einnig kom þar fram að konan ætti veikt barn og hefði því engu að tapa þótt hún gerðist brotleg við lög. Hik kom á gjaldker- ann og við það guggnaði Main- er og hljóp á dyr án þess að bera nokkuð úr bítum. Lögregla hafði hendur í hári bankaræningjanna skömmu síðar en Rainey hefur neitað að hafa vitað að unnusta hans hygðist fremja bankarán, hélt hún ætlaði að taka út fé. Eng- um sögum fer af því hvort eða hvenær af brúðkaupinu verð- ur. 35.000 hjóluðu yfir Eyrarsund TALIÐ er að 35.000 hjólreiðamenn á öllum aldri hafi hjólað yfir nýju Eyrarsundsbrdna, sem tengir Dan- mörku og Svíþjóð, í gær. Tilefnið var upphaf fjögurra daga hátiðarhalda vegna verkloka við brúna en hún verður formlega opnuð fyrir umferð 1. júlí næstkom- andi. Veður var gott á Eyrarsundi í gær, 22 stiga hiti og heiðskírt. Alls eru brúin og tengd mannvirki 17 kílómetrar á lengd og tók fimm ár að ljúka stórvirkinu. Kosningasvik talin geta skaðað orðspor Chiracs Routors París. Reuters. BORGARSTJÓRI Parísarborgar, Jean Tiberi, liggur undir grun um að hafa átt aðild að kosningasvik- um til að tryggja flokki Gaullista (RPR) sigur í borgarstjórnar- kosningum fyrir um áratug. Málið er talið hafa _____________ skaðað orðspor Jacques Jacques Chirac, Chirac forseta Frakk- lands, en Tiberi var lengi einn af nánustu samstarfsmönnum hans. Yfirheyrslur hófust í gær yfir 15 háttsettum embættismönnum á veg- um borgarinnar sem gnmaðir eru um að hafa falsað kosningaúrslit í borginni árið 1989 og tryggt þannig sigur hægrimanna. Því er haldið fram að mennirnir hafi bætt 859 nöfnum á kjörskrá í einu af kjör- dæmum borgarinnar en um hafi ver- ið að ræða fólk sem ekki var búsett þar. Fjölmiðlar í Frakklandi hafa einnig komist á snoðir um léynilega lögregluskýrslu þar sem fram kem- ur að fjöldi kjósenda hafi verið skráður í kjördæmi Tiberi í borginni en enginn þeirra átt þar heimili. Tiberi var aðstoðarborgarstjóri Parísar meðan Chirac var þar borg- arstjóri á árunum 1977-1995. Þótt ekki hafi verið sýnt fram á að Chirac tengist málinu þrýsta fjölmiðlar nú á hann að tjá sig um það. „Yfirvöld dómsmála eiga að hraða rannsókn málsins og Jaeques Chirac ætti að gefa skýringar fljótlega,“ leiðara Le Monde í gær. Rússar lýsa áhuga á sameiginlegum eldflaugavörnum með NATO Segja ekki þurfa að breyta ABM-samningnum Brussel. AP, AFP, Reuters. VARNARMALARAÐHERRA Bandaríkjanna, William Cohen, hafnaði í gær tillögum Rússa um sameiginlegt eldflaugavarnakerfi Atlantshafsbandalagsins (NATO) og Rússlands. Igor Sergeyev, varn- armálaráðherra Rússlands, kynnti tillögurnar í gær á fundi með varn- armálaráðherrum NATO-ríkja í Brussel. Ekki hefur verið greint frá efni tillagnanna en Rússar stað- hæfa að kerfið sem þær fela í sér brjóti ekki ákvæði ABM-samnings- ins, sem er samningur Bandaríkj- anna og Rússlands um bann við eld- flaugavörnum frá árinu 1972. Samkvæmt samkomulagi um breytingar á ABM-sáttmálanum frá árinu 1997, sem ekki hefur verið staðfest, er gerður greinarmunur á sk. staðbundnum gagneldflaugum og langdrægum gagneldflaugum. Eru langdrægar gagneldflaugar skilgreindar sem þær flaugar sem geta drifið 3.500 kílómetra eða lengra. Samkomulagið felur í sér að ríkin mega koma upp staðbundnum eldflaugavarnakerfum en ekki langdrægum kerfum. Sergeyev sagði á fréttamannafundi í gær að tillögur Rússa væru í samræmi við þetta óstaðfesta samkomulag frá 1997. Bandarfkin lýsa efasemdum Bandaríkjamenn hafa í óþökk Rússa haft uppi áform um að setja upp eldflaugavarnakerfi til að verj- ast hugsanlegum árásum frá sk. „útlagaríkjum" og hafa íran og Norður-Kórea einkum verið nefnd í því sambandi. Þeir lýstu í gær mikl- um efasemdum um rússnesku til- lögurnar. „Ef þetta er það sem Rússar hafa í hyggju er það alvar- legt vandamál," sagði bandaríski varnarmálaráðherrann. „Öflugt eldflaugavarnakerfi fyrir Rússland, Bandaríkin eða Evrópu yrði að vera nothæft gegn langdrægum eld- flaugum og til að setja upp varnir gegn slíkum flaugum þarf að breyta ABM-samningnum.“ Cohen sagði að flest Evrópuríki væru í yfir 3.500 kílómetra fjarlægð frá hugsanleg- um eldflaugaskotpöllum í Iran og Norður-Kóreu. Hann bætti við að Bandaríkin litu svo á að naumur tími væri til stefnu. Að mati banda- rísku leyniþjónustunnar (CIA) munu sum útlagaríkjanna verða fær um að skjóta langdrægum eld- flaugum árið 2005. Bandaríkja- menn stefna að því að þá verði búið að gera varnarkerfí þeirra virkt. Vilja höfða til Evrópuríkja? Því var í gær haldið fram að Rússar vildu með tillögunum höfða til Evrópuríkja, sem mörg hver hafa lýst andstöðu við áætlanir Bandaríkjanna. Talið er að tillög- urnar geri ráð fyrir því að árásar- eldflaugum yrði grandað skömmu eftir að þeim yrði skotið á loft. Það myndi að óbreyttum ABM-samn- ingi þýða að skotpallar gagneld- flauga þyrftu að vera staðsettir ná- lægt landamærum þeirra ríkja sem ógn er talin stafa af. Slíkt fæli að líkindum í sér að eldflaugavarnir fyrir Evrópu og Bandaríkin byggð- ust að miklu leyti á skotpöllum staðsettum í Rússlandi. Kvennaráðstefna SÞ Yerslun með konur fordæmd Sameinuðu þjóðunum. Reuters. í LOKAYFIRLÝSINGU kvenna- ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna (SÞ),- sem lauk í gær, eru karl- menn hvattir til að taka virkari þátt í að koma í veg fyrir óæski- legar þunganir og sýna meiri að- gæzlu í kynlífi til þess að hefta frekari útbreiðslu alnæmis. Einnig er hvatt til þess að heimilisofbeldi, sem sumir segja að sé menningar- bundið fyrirbæri og umborið í ýmsum löndum, verði lýst glæp- samlegt. Angela King, aðstoðarfram- kvæmdastjóri SÞ, er hefur umsjón með kvennamálum, sagði að í loka- yfirlýsingunni nú væri hvergi bakkað frá því sem samþykkt var á ráðstefnunni í Peking fyrir fimm árum. „A sumum sviðum þykir okkur gott að sjá að tekið er jafn- vel sterkar til orða en í Peking um HIV og alnæmi og ýmis önnur mál og ný málefni hafa verið rædd.“ I yfirlýsingunni er sala á konum og stúlkum fordæmd harðlega, en slík verzlun hefur stóraukist með auknum heimsviðskiptum undan- farin fimm ár. ■ Auðug Vesturlönd/24 AP EM hefst í dag ÚRSLITAKEPPNI Evrópu- keppninnar í knattspyrnu (EM), sem haldin er í Hollandi og Belgíu, hefst í dag með leik Belga og Svía. 16 þjóðir eiga lið í keppninni og er þeim skipað í fjóra riðla. Alls verða leikirnir 31 og fer úrslitaleikurinn fram 2. júlí í Rotterdam. Á myndinni má sjá fræga styttu í Brussel, Mannekin-pis, sem fengið hefur nýjan búning í tilefni af Evrópukeppninni. ■ C-blað MORGUNBLADIÐ10. JÚNÍ 2000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.