Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1987, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1987, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1987. Fréttir „Bestu ávöxtunarmögu- leikamir á markaðnum“ Sagði fjámálaráðherra er hann kynnti nýjar útgáfur ríkisskuldabréfa „Ríkissjóður hefur sett sér það markmið að selja ný spariskírteini fyrir 1,3 milljarða króna það sem eftir er ársins. Þegar því marki er náð mun ríkissjóður ekki keppa um nýtt ijármagn við atvinnulíf og banka umfram það sem áætlun gerir ráð fyrir á þessu ári,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson ijármálaráð- herra á blaðamannafundi sem hann hélt í tilefni nýrrar útgáfu ríkis- skuldabréfa. Sala nýju spariskírteinanna mun hefjast mánudaginn 17. ágúst. Nýju spariskírteinin eru verðtryggð og bera 7,2% til 8,5% ársvexti. Spariskírteini sem greiðast í einu lagi eftir tvö ár bera 8,5% ársvexti, skírteini sem greiðast eftir fjögur ár bera 8% ársvexti en skírteini sem bundin eru í 6-10 ár bera 7,2% árs- vexti. Jón Baldvin Hannibalsson á blaðamannafundinum í gær. DV-mynd JAK Fj ármálaráðherra sagði að vextir af spariskírteinum til skamms tíma væru hærri en af langtímaspariskír- teinum vegna þess að raunvextir hefðu hækkað tímabundið vegna efnahagsþenslu en slíkt tímabundið ástand mundi ekki hafa áhrif á raun- vexti til langs tíma. Jón Baldvin sagði ennfremur að sala spariskírteina ríkissjóðs hefði gengið treglega að undanfómu. Það væri hins vegar skoðun sín að með þessum vöxtum og þvi öryggi sem því fylgdi að kaupa spariskírteini ríkissjóðs væru þau núna bestu ávöxtunarmöguleikamir á mark- aðnum. „Ég á því von á því að sala skír- teinanna muni nú ganga samkvæmt áætlun." ATA Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR Innlán óverðtryggð (%) hæst Sparisjóðsbækur ób. 14-15 Lb.Sp, Úb.Bb. Ab Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 15-18 Ab 6 mán. uppsögn 16-20 Ib.Vb 12 mán. uppsögn 17-26,5 Sp.vél. 18mán. uppsögn 25,5-27 Ib.Bb Ávísanareikningar 4-15 Ab.lb, Vb Hlaupareikningar Innlán verðtryggð 4-8 Ib.Lb Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 2 Allir 6 mán. uppsögn Innlán meo sérkjörum 3-4 14-24 Ab.Úb Bb.Sb Innlán gengistryggð Bandaríkjadalir 5,5-6,5 Sp.Vb. Ab Sterlingspund 7,5-9 Vb Vestur-þýsk mörk 2,5-3,5 Vb Danskarkrónur 8,5-10 Vb ÚTLÁNSVEXTIR Útlán óverðtryggð (%) lægst Almennir víxlar(forv.) 27-28,5 Lb Viðskiptavíxlar(forv.)(1) 25-26 eða kge Almenn skuldabréf 25-31 Úb Viöskiptaskuldabréf(1) kge Allir HlaupareikningarMirdr.) Útlán verðtryggð 28.5-30 Lb Skuldabréf Að 2.5árum 7,5-9 Úb Til lenari tima Utlántiltramleiðslu 7,5-9 Úb Isl. krónur 23-29 Vb SDR 7,75-8 Bb.Lb. Úb.Vb Bandaríkjadalir 8,5-9,25 Bb.Lb. Úb.Vb Sterlingspund 10-10,75 Sp Vestur-þýsk mörk 5,25-5,5 Úb Húsnæðislán Lífeyrissjóðslán 3,5 5-6,75 Dráttarvextir VÍSITÖLUR 36 Lánskjaravísitala júlí 1721 stig Byggingavísitala 320stig Húsaleiguvísitala Hækkaði 9% 1. júlí VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa veröbréfasjóða (uppl. frá Fjárfestin< arfélaginu): Ávöxtunarbréf 1,1634 Einingabréf 1 2,163 Einingabréf 2 1,283 Einingabréf 3 1,337 Fjölþjóðabréf 1,030 Kjarabréf 2,158 Lífeyrisbréf 1.088 Markbréf 1,075 Sjóðsbréf 1 1.058 Sjóðsbréf 2 1,058 Tekjubréf HLUTABRÉF 1,174 Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Almennar tryggingar 114 kr. Eimskip 255 kr. Flugleiöir 175kr. Hampiðjan 118 kr. Hlutabr.sjóðurinn 114 kr Iðnaðarbankinn 137 kr. Skagstrendingur hf. 182 kr. Verslunarbankinn 120kr. Útgerðarf. Akure. hf. 160 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki kaupir viðskiptavixla gegn 25% ársvöxtum, Samv.banki 25%pg nokkrir sparisj. 26%. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb= Búnaðarbankinn, lb= Iðnaðarbank- inn, Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnu- bankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb = Versl- unarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir. Nánari upplýsingar um peningamarkaðlnn birtast f DV á fimmtudögum. Akureyrarkirkja: Grafið fyrir safnaðar- heimili Jón G. Haukssan, DV, Akureyn: Stór gmnnur hefur nú verið grafinn bak við Akureyrarkirkju en þar er verið að reisa safhaðarheimili kirkj- unnar. Byggingin verður fokheld í haust og þá á jafhframt að vera búið að ganga frá lóðinni að utan. í kring- um kirkjuna verður hellulagt þannig að safiiaðarheimilið verður hálfgert jarðhús. Að sögn Þórhalls Höskuldssonar sóknarprests verður safriaðarheimilið um 700 fermetrar að flatarmáli. Núver- andi safnaðarheimili, sem einnig er neðanjarðar, undir kór kirkjunnar, er fyrir löngu orðið allt of lítið. Akureyrarkirkja verður fimmtíu ára 17. nóvember 1990 og gera menn sér vonir um að þá verði safhaðarheimilið fullbúið. Þess má geta að vinnupallamir, sem hafa verið utan á Akureyrarkirkju síð- astliðið ár, verða senn teknir niður. Gert hefur verið við steypuskemmdir á kirkjunni og ný klæðning úr stein- mulningi sett á hana. Svona er Akureyrarkirkja séð bakatil þessa dagana. Stór grunnur nýs safnaðar- heimilis blasir við. Bítveita á JÖkuldal: Bíllinn valt 30 metva -ökumaðurinn ómeiddur Um miðjan dag í fyrradag valt japanskur fólksbíll á Jökuldal. Til- drög slyssins voru þau að kind var að sleikja salt sem borið hafði ve- rið á veginn. Bílstjóri, sem kom akandi, hafði aðeins um tvennt að velja, aka út af eða á kindina þar sem'hún hreyfði aig ekki. Bflstjór- inn tók fyrri kostinn með þeim afleiðingum að bíllinn valt 30 metra niður bratta hlíð. Bílstjórinn slapp ómeiddur og þakkar lögregl- an á Egilsstöðum það bílbeltunum. Bíllinn er gjörónýtur. Að sögn lögreglunnar á Egils- stöðum hefur veríð mikið um að ekið sé á kindur þar sem þær eru að sleikja saltið sem Vegagerðin ber á vegina. Á einum bæ á Jökuld- al hafa þegar drepist átta kindur vegna þessa. Lögreglan á Egils- stöðum segir saltburðixm algjöra plágu. -sme Viötaliö „Hestamennskan og laxveiðin heilla“ - segir Pétur Magnússon, útibússtjóri Höfdabakkaútibús „Þótt mér lítist vel á að taka við nýju útibúi í nýju hverfi á ég eftir að sakna þeirra einstaklega góðu samstarfsmanna minna hér á Hellu, sem hafa reynst mér mjög vel, og fólksins í héraðinu," segir Pétur Magnússon, nýráðinn útibússtjóri Höfðabakkaútibús Búnaðarbankans í Reykjavík en það tekur til starfa í haust. Pétur er 48 ára gamall og hefur verið útibússtjóri Búnaðarbankans á Hellu undanfarin átta ár. Hann hóf störf hjá bankanum árið 1962, fyrst sem gjaldkeri í aðalbanka í þrjú ár en þá tók hann við forstöðu Melaútibús í Reykjavík. „Það var smærra í sniðum í Bændahöllinni þá miðað við hvemig það er í dag. Ég var bara einn þama til að byrja með. Ætli að það megi ekki segja að ég hafi verið hvort tveggja í senn útibússtjóri og af- greiðslumaður á þessu tímabili. Þetta var þó aðeins fyrstu þijú árin því síðan var útibúið stækkað og starfsemi þess aukin. Þama gegndi ég síðan forstöðu útibúsins þar til ég tók við starfi mínu á Hellu. Reykvíkingur segist Pétur vera og hálfgerður vesturbæingur að auki „þótt ég geti rakið ættir mínar hing- að austur í sveitir en það er ekkert náskylt," segir hann. Eiginkona Pét- urs er Sigurveig Hauksdóttir og eiga þau eitt bam. „Ég á mér ýmis áhugamál,“ segir Pétur. „Ég hef gaman af því að bregða mér í veiði og um síðustu helgi tókst mér að næla í 23 punda lax úr Hvítá. Það er ágætt að bregða sér svona í helgarveiðiferðir þegar tækifæri gefast. Svo fer ekki hjá því að maður fái áhuga á hestamennsku hér á Hellu. Ég á þrjá hesta, að vísu hef ég sjaldan komist á bak upp á síðkastið og líklega fer ég enn sjaldn- ar eftir að ég hef störf í haust þar Pétur Magnússon tekur við starfi útibússtjóra Höfðabakkaútibús Bún- aðarbankans i haust. sem mikið starf bíður mín í Höfða- bakkaútibúinu. Mér finnst áhuga- vert að taka við svona nýju og ómótuðu útibúi, það er t.d. ekki búið að ráða starfsfólk þar enn. Maður á eftir að kjmnast nýjum viðskiptavin- um sem koma eflaust að stórum hluta út Grafarvoginum. Það er ág- ætt að breyta til og fylgja nýrri starfsemi úr hlaði.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.