Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1995, Blaðsíða 20
20
LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 1995
Bgjifl
Á toppnum
Topplag íslenska listans á
breska söngkonan Dusty Spring-
field en hún er sína aöra viku á
toppnum meö hið 26 ára gamla
lag Son of a Preacher Man sem
finna má í myndinni Pulp Fict-
ion.
Nýtt
Hæsta nýja lagið eiga Verslun-
arskólanemendur. Lagið kalla
þeir Steinar í vegg, en það var
upprunalega flutt af Pink Floyd.
Þeir ráðast ekki á garðinn þar
sem hann er lægstur og hafa sett
upp söngleik sem heitir Múrinn,
en það er Þorvaldur B. Þorvalds-
son úr Tweety sem útsetur tón-
listina.
Lífsmark
með Guns
N' Roses
Gilby Clarke hefúr tilkynnt op-
inberlega um brottför sína úr
Guns N' Roses en hún hefur leg-
ið í loftinu um nokkurt skeið.
Ýmsar getgátur eru á kreiki um
hver taki við af Clarke og reynd-
ar hefur framtíð Guns N' Roses
verið talsvert á reiki en nýjustu
fregnir herma að sveitin sé kom-
in saman og hafi æft að undan-
fömu með gítarleikaranum Zakk
Wylde. Sá ágæti maður hefúr upp
á síðkastið leikið í hljómsveit
Ozzys Osboumes en að sögn
Wyldes er ekkert frágengið um
inngöngu hans í Guns N' Roses.
Hástökkið
Hástökk vikunnar á söngkona
frá Atlanta. Alicia Bridges er
númer 10 og tekur undir sig 14
sæta stökk með lagið I Love Night
Life. Lagið kom fýrst út árið 1978
og varð eitt vinsælasta diskólag-
ið það ár. Lagið er tekið úr bíó-
myndinni Priscilla, Queen of the
Desert.
Lagið
týndist!
Hjjómsveitin L7 hefur neyðst
til að fresta útgáfu á nýrri smá-
skífu vegna þess að lagið sem
vera átti á bakhlið plötunnar er
týnt! Upptakan með laginu var
send frá Los Angeles til London
með flugi en kom aldrei fram og
hefúr ekki fúndist.
Þokkaleg
plötusala
Bandaríska útgáfufyrirtækið
Geffen Records hefiir fyllstu
ástæðu til að fagna þessa dagana
því fyrirtækið sló öll fyrri met í
plötusölu á síðasta ári. Ails seldi
það plötur fyrir 505 milljónfr doil-
ara eða kringum 35 milljarða ís-
lenskra króna!!
I BOÐI GOGA-COLA A BYLGJUNNII DAG KL. 16.00
VI KIJIVA 11.2 '95 - 17.2 'í)5
-
82 Ss SlÐASTA VIKA FYRIR 2 VIKUM VIKURÁ LISTANUM 1 m 1 »4 l P 46
-Á TOPPNUM1TVÆR VIKUR-
G) 1 2 4 SON OF A PREACHER MAN DUSTY SPRINGFIELD
G 6 11 4 THE MAN WHO SOLD THE WORLD NIRVANA
G 8 2 DANCING BAREFOOT U2
4 3 4 6 WHATEVER OASIS
5 4 9 4 CRUSH WITH EYELINER R.E.M.
6 2 1 9 ODE TO MY FAMILY CRANBERRIES
7 5 13 3 THANK YOU FOR HEARING ME SINEAD O'CONNOR
CD 11 19 6 HIBERNACULUM MIKE OLDFIELD
cd1 15 17 4 GLORY BOX PORTISHEAD
- HÁSTÖKK VIKUNNAR ~ j
<5cD 24 - 2 1 LOVE THE NIGHT LIFE . ALICIA BRIDGES
11 19 24 3 FELL ON BLACK DAYS SOUNDGARDEN
(5) 23 - 2 BASKET CASE GREEN DAY
(5) 22 - 2 THE BALLAD OF PETER PUMKINHEAD CRASH TEST DUMMIES
14 7 8 4 FREAK OUT JET BLACK JOE
- NÝTTÁUSTA~ j
<3> - - 1 AÐEINS STEINAR i VEGG NEMENDUR V.í.
16 12 5 6 ÁST f VIÐLÖGUM UNUN
17 14 14 8 WE HAVE ALL THE TIME IN THE WORLD LOUIS ARMSTRONG
18 10 7 6 SYMPATHY FOR THE DEVIL GUNS N'ROSES
19 16 18 4 THE REASON IS YOU NINA
20 20 28 3 SCATMAN SCATMAN JOHN
(S) - ■- 1 THESE BOOTS ARE MADE FOR WALKING SAM PHILLIPS
(5) - - 1 THIS COWBOY SONG STING & PATO BANTON
(2) 28 - 2 EVERLASTING LOVE GLORIA ESTEFAN
24 9 3 11 ABOUT A GIRL NIRVANA
25 30 34 3 STRONG ENOUGH SHERYL CROW
26 17 20 3 ÞANNIG ER NÚ ÁSTIN BUBBI
27 13 6 6 BETTER MAN PEARL JAM
(2) 29 36 3 TELL ME WHEN HUMAN LEAGUE
29 18 15 8 TAKE A BOW MADONNA
30 27 V 2 THAT'S JUST WHAT YOU ARE AMIEE MANN
31 32 2 BETTER DAYS AHEAD TYRELL CORPORATION
(2) AF 2 SHE'S A RIVER SIMPLE MINDS
33 31 32 6 DON’T DONT TELL ME NO SOPHIE B. HAWKINS
(5) 36 - 2 IN THE HOUSE OF STONE AND LIGHT MARTIN PAGE
35 21 10 11 LÖG UNGA FÓLSINS UNUN
(5). ■ - - 1 IF 1 WANTED TO MELISSA ETHERIDGE
© - - 1 CHANGE LIGHTNING SEEDS
38 26 27 6 THINK TWICE CELINE DION
(29) - - 1 NO MORE 1 LOVE YOUS ANNIE LENNOX
(áffl) - 1 CONQUEST OF PARADISE VANGEUS
Kynnir: Jón Axel Ólafsson
Islenski listinn er samvinnuverkefni Bylgjunnar, DV og Coca-Cola á Islandi. Listinn er niöurstaða skoðanakönnunar sem er framkvæmdaf markaösdeildDVíhverri viku.
Fjöldi svarenda er á bilinu 300 til 400, á aldrinum 18 til 35 ára af öllu landinu. Jafnframt er tekiö miö af gengi laga á erlendum vinsældalistum og spilun
þeirra á íslenskum útvarpsstöövum. Islenski listinn birtist á hverjum laugardegi í DV og er frumfluttur á Bylgjunni kl. 16.00 sama dag. Listinn er birtur, aö hluta, í
textavarpi MTV sjónvarpsstöövarinnar. Islenski listinn tekur þátt i vali "World Chart" sem framleiddur er af Radio Express í Los Angeles. Einnig hefur hann áhrif á
Evrópulistann sem birtur er I tónlistarblaöinu Music & Media sem er rekiö af bandaríska tónlistarblaöinu Billboard.
Yfirumsjón meö skoðanakönnun: Hrafnhildur Kristjánsdóttir - Framkvæmd könnunar: Markaðsdeild DV - Tölvuvinnsla: Dódó - Handrit: Sigurður Helgi
Hlöðversson, Ágúst Héðinsson og ívar Guðmundsson - Tæknistjóm og framleiösla: Þorsteinn Ásgeirsson og Þráinn Steinsson - Útsendingastjórn: Halldór Backman
og Jóhann Garðar Ólafsson - Yfirumsjón meö framleiðslu: Ágúst Héðinsson - Kynnir: Jón Axel Ólafsson
DV
ttgfcP
Zeppelin-
draumur-
inn úti
John Paul Jones, fyrrum
bassaleikari Led Zeppelin, hefúr
að gefnu tilefin sent frá sér yfir-
lýsingu þess efiiis að hann hafi
ekki í hyggju að koma fram með
fyrrum félögum sínum, þeim
Jimmy Page og Robert Plant Þar
með deyja vonir þeirra sem
dreymt hefur um upprisu Led
Zeppelin. Þeir verða því að láta
sér nægja að hlusta á Page og
Plant.
Plötufréttir
Rage Against the Machine hafa
haft hægt um sig um nokkurt
skeið en nú er ný plata í uppsigl-
ingu og er stefiit að því að hún
komi út í apríl... Breska hljóm-
sveitin Gene, sem vakti mikla at-
hygli á liðnu ári, er langt komin
með nýja plötu og kemur hún út
í mars næstkomandi... Hingam-
alkunna hljómsveit The Fall er
að leggja síðustu hönd á 28.! plötu
sína sem kemur út í lok þessa
mánaðar... Radiohead, sem sló
í gegn með plötunni Pablo Hon-
ey og einu athyglisverðasta lagi
síðari ára, laginu Creep, er að
ganga frá nýrri plötu sem er
væntanleg á markaðinn í næsta
mánuði ef guð lofar...
Glerhús
söngvarans
Michael Hutchence, söngvari
og forsprakki áströlsku rokk-
sveitarinnar INXS, hefúr staðið í
ströngu að imdanfömu en þó
ekki á tónlistarsviðinu. Hann
byrjaði á því fyrir nokkm að
kaupa sér húskumbalda í Lund-
únum fyrir litlar 50 milljónir
króna og ætlar að spandera öðm
eins í að breyta honum eftir eig-
in óskum og óskum kærustunn-
ar, dönsku sýningarstúlkunnar
Helenu Christiansen. Þar með er
talið nýtt glerþak á kofann eins
og hann leggur sig svo hægt verði
að gá til veðurs hvar sem er í hús-
inu og glápa á stj ömumar úr bæl-
inu ef því er að skipta.
Skelfing
söngvarans
En þetta er ekki allt og smnt af
Michael Hutchence og spúsu
hans því þau hjúin vom á dögun-
um stödd á næturklúbbi nokkr-
um í Lundúnum þegar frúin upp-
götvaði að hún var búin að glopra
niður forláta rúbínsteini úr hring
sem unnustinn haföi dregið
henni á fingur af einhverju til-
efiii. Fékk söngvarinn vægt áfall
og skreið um öll gólf eins og óður
maður í leit að steininum. Eig-
endur klúbbsins skipuðu öllum
gestum út og síðan lagðist starfs-
fólkið líka í gólfið með
Hutchence. Og það bar árangur,
steinninn góði fannst við dyr
kvennaklósettsins.
-SþS-