Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2003, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.2003, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 5. MAÍ 2003 27 DV Sport leifsdóttir umhverfisráöherra aö ræsa keppendur í fyrsta móti sum- arsins viö Úlfarsfell. Fyrsta endurokeppni ársins fór fram um helgina við Úlfarsfell: Valdimar Þórðarson var með pabba sinn sem aðstoðarmann til að gefa honum upplýsingar á spjaldi um stöðu sína í keppninni. Þórður kom í eitt skiptið heldur nálægt brautinni og munaði minnstu að Valdimar æki yfir pabba sinn, en Þórður vék sér undan stráknum eins og fimur nautabani, en Valdimar ók yfir spjaldið eins og tuddi sem stang- ar rauðan klút nautabanans. Valdimar Þórðarson er nýkominn frá Texas í USA eftir að hafa stund- að æfingar þar um tíma. Eitt er það sem hann hefði mátt læra betur og það er að vita hvað mikið bensin er á hjólinu svo hann þurfi ekki að ýta í mark. Þorvarður Björgúlfsson, mynda- tökumaður á Stöð 2, sem er 41 árs, hefur ekki snert hjól síðan í síðustu motocross-keppni siöasta árs, fyrir utan það að í vikunni sem leið til- keyrði hann nýju Honduna sina, varð í 10. sæti í fyrri keppninni og í því 13. í þeirri seinni. Þeir sem þekkja Varða, eins og hann hefur verið kallaður í gegnum tíðina, sögð- ust aldrei hafa séð hann svona þreyttan eflir keppni. Lióin sem tóku þátt í keppninni voru flest með tjöld fyrir sig og sína starfsmenn og var tjaldborg allnokk- ur á keppnissvæðinu. Einnig voru nokkrir sendiflutningabilar og ein gömul rúta. Það keppnislið sem var einna best útbúið var keppnislið JHM Sport sem ekur á TM-hjólum, en þeir voru með vinnuskúr nokkuð stóran sem komið var með á gáma- flutningabíl frá Hreinsun og flutn- ingum og slakað niður á jörðina á meðan á keppni stóð. Vélhjólaiþróttaklúbburinn rekur vefsíðu, www.motocross.is, og verð- ur að hrósa þeim fyrir hana því um leið og keppendur voru komnir heim til sín voru úrslit dagsins komin á heimasíðu klúbbsins með öllum upp- lýsingum um keppnina. -HJ Það var kuldalegt á laugardagsmorguninn þegar kepp- endur mættu í fyrstu endurokeppni sumarsins - frosnir pollar og frosin jörð og hiti við frostmark undir Úlf- arsfelli. Þetta var það sem blasti við keppendunum 45 sem voru mættir á ráslínu, tilbúnir að takast á við Is- landsmeistaratitilinn í meistara- deild. Það var Siv Friðleifsdóttir, heilladís Vélhjólaíþróttaklúbbsins, sem ræsti keppenduma í fyrri um- ferð dagsins. Það var eins og or- rustuþota sem stingur sér niður undir jörð til orrustu, slíkur var há- vaðinn þegar aliir 45 keppendumir ruku af stað út í vandlega merkta 9,3 km braut sem lá að mestu í væntaniegu vegastæði undir Úlfars- felli. Eftir fyrsta hring var Viggó Viggósson fyrstur á TM-hjóli, annar var Ragnar Ingi Stefánsson á Honda og þriðji var núverandi íslands- meistari, Einar Sigurðsson, á KTM- hjóli. Eftir 55,8 km akstur á tíman- um 96,56 mín. var það svo Einar Sig- urðsson sem sigraði, annar var Ragnar Ingi Stefánsson aðeins 14 sek. á eftir Einari. Þriðji var svo Haukur Þorsteinsson á Yamaha og var hann 1,12 mín. á eftir Ragnari. Viggó varð 4. og Gunnar Þór Gunn- arsson fimmti. í 6. sæti lenti svo Valdimar Þórðarson, en hann var kominn á hæla Ragnars þegar hann var fyrir því óláni að verða bensín- laus þegar hann átti um 400 metra eftir í mark. Með aðstoð sinna að- stoðarmanna ýtti hann hjólinu í mark og missti við það 3 keppendur fram úr sér. Sennilegast er þetta sú keppni sem haft hefur lægstan með- alhraða sigurvegara í enduro frá því byrjað var að keppa í enduro til íslandsmeistara 1998. Baldursdeild er keppni fyrir byrj- endur og er kennd við elsta félag- ann í Vélhjólaíþróttaklúbbnum, en í hana voru mættir 22 keppendur. Þeir yngstu voru 13 ára með uppá- skrifað leyfi frá foreldrum sínum um að þeir mættu taka þátt í akst- ursíþróttakeppni. Þeir elstu voru hins vegar tæplega fertugir og ein stelpa, Aðalheiður Birgisdóttir, bet- ur þekkt úr snjóbrettaiþróttum. í Baldursdeild voru eknir 3 hringir í sömu braut og í meistaradeild. Eftir fyrsta hring var Guðni Frið- geirsson fyrstur, annar var Hrafn- kell Sigtryggsson og þriðji Gunn- laugur Karlsson, en hann er sonur Karls Gunnlaugssonar sem lengi hefur verið viðloðandi mótorhjóla- sportið og sér um sjónvarpsþættina Mótor á Skjá 1 og mótorhjólasport hjá Ríkissjónvarpinu. Að loknum þrem hringjum var staðan sú sama og eftir 1. hring, þó svo að Gunnlaugur hefði á tímabili komist upp 1 annað sæti, en hann tapaði því aftur er hann drap á hjól- inu í drullupytti skömmu áður en hann kom í mark. 1. Guðni Friðgeirsson, Kawasaki, 57,03 mín. 2. Hrafnkell Sigtryggsson, Suzuki, 57,16. 3. Gunnlaugur Karlsson, KTM, 57,31. Þá var komið að seinni umferð- inni í meistaradeOdinni, en keppt er tvisvar sama daginn í 90 mín. í meistaradeUd. Brautin var orðin ansi grafm og erfið yfir að fara og sífellt bættust við nýir drullupyttir í brautina með tilheyrandi vandræð- um. Það var Viggó Viggósson sem kom fyrstur eftir fyrsta hring, ann- ar var Einar Sigurðsson og þriðji var Ragnar Ingi. í öðrum hring missti Viggó forustuna tU Einars og Ragnar tók einnig fram úr honum. I fimmta hring komst Ragnar fram úr Einari en Viggó var enn þriðji og þegar 1 hringur var eftir var Ragn- ar með 17 sek. i forskot á Einar og sprungið afturdekk og héldu margir að Einar næði fram úr Ragnari vegna afturdekkjavandræða. Það var eins og Ragnar hefði fundið aukaorku við þetta afturdekkjaloft- leysi og sigraði með 20 sek. mun. Ragnar, sem með þessu vann sinn fyrsta sigur á íslandsmóti í enduro, var að vonum ánægður og var hann spurður um það hvemig honum fyndist brautin. Hann svaraði því tU að á sinn standard væri brautin al- gjört ógeð, hún er lúmsk, það eru mismunandi holur í henni sem eru erfiðar og svolítið af grjóti sem mað- ur sér ekki, en þetta er erfitt og á að vera það. 1. Ragnar Ingi Stefánsson Honda 96,20. 2. Einar Siguröarson KTM 96,40. 3. Viggó Viggósson TM 98,33. Ef samanlagður árangur í keppn- imum tveim væri tekinn saman væri Ragnar með 5 sek. betri árangur en Einar. Mætti því að sönnu kaUa Ragnar Inga sigurvegara dagsins. -HJ Ragnar Ingi Stefánsson, Honda, f miöjunni fagnar sigrinum en honum til beggja handa eru Einar Sigurðsson, KTM, og Viggó Viggósson, TM. DV-mynd Siguröur Jökull

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.