Þjóðviljinn - 09.05.1976, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 09.05.1976, Blaðsíða 9
Sunnudagur 9. mai 1976. ÞJóÐVILJINN — SÍÐA 9 Farþeginn Farþeginn (The Passenger) eftir Michelangelo Antonioni. Leikarar: Jack Nicholson, Maria Schneider, Jenny Runacre Að visu mun ekki ætlast til að lesendur Þjóðviljans leggi leið sina i Gamla bió — forráðamenn þess sjá ekki ástæðu til að aug- lýsa i blaðinu — en ég gat ekki stillt mig i þetta sinn. Ég hafði ekki séð mynd eftir Antonioni siðan ég sá Rauðu eyðimörkina i gamla daga, missti bæði af Blow- up og Zabriskie Point. A þessum árum hafði minningin um eldri myndir hans dofnað i huga min- um og ég hugsaði stundum um Antonioni sem „borgaralegan nöldursegg sem gerir myndir um lifsleiða fina fólksins.” Endurfundirnir við Antonioni nú urðu mér undrunar- og fagnaðarefnii Reyndar er hann ennþá að taia um það sama: firr- inguna. Hann hefur ekki fundið lausn á neinum vanda. En ég var rækilega minnt á þá staðreynd, sem ekki verður umflUin, að An- tonioni er einn af snillingum sam- tiðarinnar. Lokasenan i Far- þeganum verður áreiðanlega sýnd i kvikmyndaskólum fram- tiðarinnar sem dæmi um þann galdur sem aðeins kvikmynda- vélin getur framið. Af öllum firrtum nútimamönn- um eru þeir sennilega firrtastir sem fást við fréttamennsku og fjölmiðlun Uti hinum stóra heimi. Menn eins og David Locke, aðal- persónan i Farþeganum (leikinn af Jack Nicholson). Einhvern- tima var hann það sem kallað er „góður fréttamaður,” en nú er hann uppurinn, kominn Ur sam- bandi. Hann þvælist um Afriku i leit að efni i kvikmynd án þess að komast nokkurntima til botns i þeim veruleika sem umlykur hann. Gjaldþrot hans sem manneskju er á næsta leiti, og hann veit það sjálfur. Þessvegna gripur hann tækifæri sem honum gefst til að gerast farþegi i annars manns lifi, flýja frá sjálfum sér, og þykjast vera annar. Tilraunin er dæmd til að misheppnast — enginn getur flUið sjálfan sig — i staðinn fyrir að hefja nýtt lif fær Locke aðeins örstuttan gálga- frest. Endalók Lockes verða svipuö og Robertsons, mannsins sem hann þóttist verá. Báðir gefa þeir upp öndina i hótelræksnum sem eru eins og kalkaðar grafir mitt i eyðimörkinni, annar i Af- riku, hinn á Spáni, en báðir deyja Utlendingar, báðir hafa lifað sem Það kemur i ljóst að þetta er hættulegur leikur. Robertson var nefnilega ekki allur þar sem hann var séður. Erindi hans til Afriku var að selja skæruliðum vopn. Stundum er m.a.s. látið i það skina að hann hafi trUað á baráttu skæruliðanna. Fyrir tilstilli minnisbókar hins látna Robert- sons kemst Locke i samband við fulltrUa skæruliðanna og fær hjá þeim peningafUlgu. Fundir þeirra verða þó ekki fleiri, þareð full- trUarnir lenda i höndunum á Ut- sendurum stjórnar þeirrar i Af- riku sem þeir berjast gegn. Locke veit ekkert um það og heldur áfram að mæta samviskusam- lega á öllum stefnumótum, sem Robertson hafði skráð i minnis- bókina sina. A þessu tilgangs- lausa flakki sinu kynnist hann ungri stUlku nafnlausri, en leikinni af Mariu Schneider. HUn er sam- bland af hippa, heimskonu og barni, og gagnrýnendur segja að hUn komi með lifið til Lockes, það Utlendingar. Við kynnumst Ro- bertson ekki mikið — hann deyr i upphafi myndar — og ironian i öllu saman er, að Locke kynnist honum ekki heldur, ekki einu sinni við að „leika hlutverk hans”. Firring Lockes er full- komnuð þegar hann hefur af- neitað eigin persónuleika og flæk- ist um heiminn I gervi annars manns, manns sem hann þekkir ekki og skilur ekki. Jack Nicholson og Maria Schneider i hlutverkum sinum i Farþeganum. sé bara of seint. Hvort sem hUn táknar „lifið” eða bara einhvern möguleika er það rétt til getið að hUn kemur of seint, hUn getur engu bjargað. En hvað um hana sjálfa? A hUn sér framtiö? Mér virðist Antonioni svara þeirri spurningu neitandi, þegar hann leggur gömlum manni i .munn þessi orð: „Annað fólk horfir á börn og ímyndar sér nýjan heim, en ég sé gamla harmleikinn byrja uppá nýtt. Það er leiðinlegt”. Eins og venjulega þegar lista- verk eru annars vegar, megna engin orð að lýsa Farþeganum. Myndmálið er svo sterkt að hversdagsleg orð hljóta að detta niður máttlaus i samanburði. Sem kvikmynd er Farþeginn næstum þvi fullkominn. Kvik- myndasagan hefur eignast enn einn gimsteininn. Vilji hinsvegar einhver spyrja: Hvað hefur Antonioni sagt okkur nýtt með þessari mynd? — getur verið að okkur vefjist tunga um tönn. Einn ágætur kvikmynda- maður, kUbanskur, komst eitt sinn svo að orði: „fullkomin kvik- myndalist er afturhaldssöm” og átti þá við að þeir sem i raun og veru vilja breyta heiminum hafa yfirleitt ekki efni á að gera „full- komna” mynd. Antonioni er ekki i þeirra hópi. Hann lýsir þvi skelfi- lega villidýri, vestræna milli- stéttarmanninum, á trUverðugan hátt, en af samUð. Hann sér fyrir endalok þessarar dýrategundar, en býður ekki uppá neitt i staðinn. Enda býst enginn við þvi af Antonioni að hann breyti heimin- um. Hitt er svo annað mál, að manni finnst stundum napurlegt að allir þessir hæfileikar og allir þessir peningar skuli ekki notaðir betur. Hugsið ykkur mynd, sem að list- rænum gæðum jafnaðist á við Farþegann, en sem hefði það frammyfir Farþegann að segja okkur allan sannleikann og benda okkur á leið UtUr ógöngunum. Þá fyrst yrði nU gaman að fara i bió. Ingibjörg Haraldsdóttir. STYRKIR til Noregsfarar Stjórn sjóðsins Þjóðhátiðargjöf Norð- manna hefir ákveðið að fyrsta úthlutun styrkja úr sjóðnum fari fram á þessu ári. Samkvæmt skipulagsskrá er tilgangur sjóðsins ,,að auðvelda íslendingum að ferðast til Noregs. I þessu skyni skal veita viðurkenndum félögum, samtökum, og skipulögðum hópum ferðastyrki til Noregs i þvi skyni að efla samskipti þjóðanna t.d. með þátttöku i mótum, ráðstefnum, eða kynnisferðum, sem efnt er til á tvihliða grundvelli. Ekki skal úthluta ferða- styrkjum til einstaklinga eða þeirra sem eru styrkhæfir af öðrum aðilum.” 1 skipulagsskránni segir einnig, að áhersla skuli lögð á að veita styrki, sem renna til beins ferðakostnaðar, en um- sækjendur sjálfir beri dvalarkostnað i Noregi. Hér með er auglýst eftir umsóknum frá þeim aðilum, sem uppfylla framangreind skilyrði. í umsókn skal getið um hvenær ferð, verður farin, fjölda þátttakenda og tilgangfararinnar. Aukþess skal tilgreina þá upphæð, sem farið er fram á. Umsóknir óskast sendar til stjórnar sjóðsins, Forsætisráðuneytinu, Stjórnar- ráðshúsinu, Reykjavik, fyrir 25. mai n.k. Dvöl í Orlofshúsum löju Iðjufélagar, sem hafa hug á að dvelja i orlofshúsum félagsins að Svignaskarði i sumar, verða að hafa sótt um hús eigi siðar en þriðjudaginn 18. mai n.k. kl. 12 á hádegi, á þar til gerð eyðublöð. Þeir félagar, sem dvalið hafa i húsunum 2 undanfarin sumur, koma þvi aðeins til greina, að ekki sé full-bókað. Pöntunum er ekki veitt móttaka i sima. Dregið verður úr umsóknum sem borist hafa á skrifstofu félagsins 18. mai kl. 17., og hafa umsækjendur rétt á að vera við- staddir. Stjórn Iðju.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.