Morgunblaðið - 12.02.2002, Blaðsíða 9
KÖRFUKNATTLEIKUR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 2002 B 9
Á Íþróttavef mbl.is er ítarleg umfjöllun
um enska boltann, nýjustu fréttir, úr-
slit leikja, staðan og nöfn leikmanna.
Skjóttu á úrslitin
Á vefnum er einnig netleikur þar sem
hægt er að skjóta á úrslit leikja og eru
veglegir vinningar frá Adidas í boði
fyrir heppna þátttakendur.
FYLGSTU MEÐ ÞVÍ NÝJASTA
enski boltinn
Í fyrsta leikhluta mátti glöggt sjáað taugar leikmanna beggja liða
voru þandar út í ystu æsar. Mikið
var um mistök og
boltinn fór löngum
stundum liða á milli
án þess að annað
næði að skora. Liðin
skiptust þó á að ná forystu en
Njarðvík náði örlitlum undirtökum
og komst mest þremur stigum
framúr KR-ingum. Í öðrum leik-
hluta var svipað uppi á teningnum.
Njarðvík náði þó mest fimm stiga
forskoti án þess þó að ná að hrista
KR almennilega af sér. KR lék ekki
jafnvel og þegar best lætur en náði
samt að halda í Njarðvík.
Í upphafi síðari hálfleiks virtist
sem KR-vélin væri hrokkin í gang.
Liðið náði forystu í fyrsta skiptið í
leiknum og komst mest í þriggja
stiga forystu. Njarðvík sýndi ein-
dæma baráttu og greinilegt var að
liðið var ekki tilbúið til að gefa bik-
arinn auðveldlega upp á bátinn.
Með mikilli þrautseigju náði Njarð-
vík aftur yfirhöndinni og var yfir í
þriðja leikhluta 47:46.
Síðasti leikhlutinn var þrunginn
enn meiri spennu. Njarðvík náði sex
stiga forskoti snemma fjórðungs en
sem fyrr gáfust KR-konur ekki upp
og náðu að skera á muninn. Mjög
slæmur kafli hjá Njarðvík undir lok-
in olli því að liðið skoraði aðeins þrjú
stig á um fimm mínútum. KR nýtti
sér það til hins ítrasta. Er ör-
skammt var til leiksloka var Njarð-
vík einu stigi yfir en þá skoraði
Helga Þorvaldsdóttir úr þriggja
stiga körfu og breytti stöðunni
þannig að KR náði tveggja stiga for-
ystu. Er tvær sekúndur voru eftir
brutu KR-ingar á Helgu Jónsdóttur
sem á ótrúlegan hátt skoraði úr báð-
um vítaköstunum og því þurfti
framlengingu til að skera út um
leikinn.
KR-konur tóku framlenginguna
strax í sínar hendur. Þær skoruðu
fyrstu tvö stigin fljótt og sigu svo
hægt og rólega framúr. Njarðvík-
urkonur virtust vera búnar með allt
sitt þrek, bæði andlegt og líkamlegt
og misstu boltann oft klaufalega og
náðu ekki að verjast af sama krafti
og fyrr í leiknum. Þegar Kristín
Björk Jónsdóttir skoraði þriggja
stiga körfu er um tvær mínútur lifðu
leiks og kom KR í 76:70 má segja að
sigur liðsins hafi verið í höfn.
Hjá hinu unga og óreynda liði
Njarðvíkur stóð hin bandaríska
Ebony Dickenson uppúr. Ásamt því
að skora 27 stig hleypti hún sjálfs-
trausti og krafti í leikmennina í
kringum sig. Allt liðið á þó hrós skil-
ið fyrir mikinn baráttuvilja en ljóst
er að Njarðvík þarf að bíða lengur
eftir bikarmeistaratitli í kvenna-
körfunni.
KR-stúlkur léku vel sem lið.
Helga Þorvaldsdóttir var stigahæst
með 24 stig og á eftir henni komu
Carrie Coffmann og Kristín B.
Jónsdóttir með 17 stig hvor. Mikil
breidd er í liðinu sem skilaði sér
greinilega undir lokin er liðin voru
farin að þreytast. Reynslan reyndist
liðinu einnig dýrmæt og skóp að lok-
um sigurinn.
KR-ingar fögnuðu sigri á Njarðvíkingum, 81:74, í æsispennandi bik-
arúrslitaleik kvenna í körfuknattleik í Laugardalshöll á laugardag.
Njarðvík hafði frumkvæði í leiknum og nauma forystu lengst af. KR-
konur voru þó nærri því að stela sigrinum undir lokin en þá náði
Njarðvík að knýja fram framlengingu. Í henni sýndi KR að reynslan
hefur mikið að segja og seig framúr og sigraði örugglega. KR vann
þar sinn níunda bikarmeistaratitil í körfuknattleik kvenna.
Íris Björk
Eysteinsdóttir
skrifar
Morgunblaðið/Ásdís
Kristín Jónsdóttir, fyrirliði KR-liðsins, kyssir bikarinn.
Reynslan
færði KR
bikarinn
KR-konur unnu tvöfaldan sigur ífyrra, bæði í deild og bikar og
hafa því þónokkra reynslu í leikjum
sem þessum. „Við
þekkjum þessa sig-
urtilfinningu og
höfðum sama hungr-
ið til að sigra og í
fyrra,“ sagði Kristín.
Bjóstu við Njarðvíkurliðinu svona
sterku?
„Við erum búnar að vinna þær
frekar auðveldlega í vetur og komum
því kannski ekki alveg tilbúnar í byrj-
un leiks. Síðan sáum við það að við
yrðum að fara að spila eins og menn.“
Hvernig tókst ykkur að taka á
hinni bandarísku Dickenson?
„Hún gefur þeim greinilega mikið
sjálfstraust og passar vel inn í þetta
lið. Þær börðust vel og áttu góðan
leik. Við þurftum bara að stöðva þær
sem lið – ekki bara hana.“
Hvað var mikilvægasta augnablik-
ið í leiknum?
„Tvímælalaust þegar Helga Þor-
valdsdóttir skoraði úr þriggja stiga
körfu undir lok leiksins. Þær voru
með unninn leik í höndunum en þá
komumst við tveimur stigum yfir,“
sagði Kristín sem var svo þotin í
fagnaðarlætin í búningsklefanum.
Helga Þorvaldsdóttir var marka-
hæst KR-inga með 24 stig og var eins
og Kristín í sigurvímu eftir leikinn.
„Við náðum aldrei að hrista þær al-
mennilega af okkur. Þær voru mjög
hungraðar í sigur eins og við. Leik-
urinn var ekki mikið fyrir augað
nema útaf spennunni. Hittnin var
ekki nógu góð og það var mikið um
mistök,“ sagði Helga.
Það leit út fyrir á tímabili að
Njarðvík væri komið með örugga for-
ystu í fjórða leikhluta en þið gáfust
ekki upp?
„Þetta var rosa spenna því hver
einasta karfa var svo erfið. Hverri
körfu var vel fagnað. Við náðum líka
að skora fyrstu körfuna í framleng-
ingunni og ég held að þær hafi aðeins
misst trúna eftir það.“
Hver var ykkar helsti styrkur í
dag?
„Við höfðum trú á okkur og vissum
að við ættum þetta inni. Þær komu
mjög tilbúnar til leiks og Ebony
Dickinson var mjög góð hjá þeim.“
Þið náðuð að halda andlitinu allan
leikinn þrátt fyrir að þær hafi verið
skrefinu á undan lengst af, hvað olli
því?
„Reynslan hefur þar mikið að
segja. Þrátt fyrir að spila ekki vel
lentum við aldrei langt undir.“
Þjálfarinn ykkar, Keith Vassell,
var að þjálfa og fór svo beint að spila
sjálfur. Hafði þetta áhrif á liðið?
„Nei, ekki neitt, kannski á hann.
Ég held að hann hafi verið orðið
stressaður í lokin en þetta truflaði
okkur ekki neitt,“ sagði Helga.
Bjóst enginn við þessu
Hið unga lið Njarðvíkur má vel við
una að hafa sýnt jafngóðan leik og
raun varð á laugardag. „Þetta var
rosa barátta í báðum liðum og hörku
körfubolti. Við ætluðum okkur alla
leið en það tókst ekki í þetta sinn,“
sagði Auður R. Jónsdóttir, fyrirliði
Njarðvíkur.
Þetta var rosaleg spenna allan
leikinn, en svo sigu þær framúr ykk-
ur í framlengingunni, hvernig misstu
þið þær svona framúr ykkur?
„Við stóðum okkur ekki alveg nógu
vel í vörninni, það var kannski þreyta
og reynsluleysi.“
Bjuggust þið við leik sem yrði
svona jafn?
„Það bjóst enginn við þessu nema
við í liðinu og kannski tveir til þrír
aðrir.“
Það var mikið um mistök í leikn-
um, hvers vegna?
„Þetta var bara klaufaskapur.
Skotin úr þessum opnu færum verða
náttúrlega að fara ofan í ef maður
ætlar að vinna svona leik.“
Hversu miklu máli skipti að hafa
Dickenson í liði með ykkur?
„Mjög miklu. Hún skoraði hátt í 30
stig og hjálpaði okkur hinum mikið í
vörn og sókn og því skiptir miklu að
hafa stelpu með jafnmikla reynslu og
hún. Ég held þó að hún hafi verið orð-
in svolítið þreytt undir lokin. Ég held
að það séu allir mjög stoltir af okkur
að hafa staðið svona í þeim. Áhorf-
endur höfðu mikið að segja og stóðu
sig eins og hetjur,“ sagði Auður.
Við vorum hungr-
aðri í sigur
KR-konur voru sigurreifar í kjölfar sigursins á Njarðvík í bikar-
keppni kvenna í körfuknattleik og flæddi kampavínið úr klefa
þeirra langt fram á ganga í Laugardalshöllinni. Kristín Björk
Jónsdóttir fyrirliði brosti út að eyrum og mætti í spjall með
kampavínsflöskuna í hendinni. „Þetta var mjög jafn leikur og úr-
slitin réðust ekki fyrr en á lokasekúndunum. Liðið sem vildi sig-
urinn meira hafði hann. Að vísu höfum við einnig meiri reynslu
en þær og það hefur mikið að segja. Í þessum leik virtist reynsl-
an ekki hjálpa okkur mikið. Þær byrjuðu betur, við vorum eig-
inlega undir allan leikinn en tókum þetta svo í framlengingunni.
Reynslan og viljinn voru kannski helst okkar megin í framleng-
ingunni,“ sagði Kristín.
Eftir
Írisi Björk
Eysteinsdóttur
Kristín Björk Jónsdóttir, fyrirliði bikarmeistara KR