Morgunblaðið - 05.09.2006, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 05.09.2006, Blaðsíða 8
8|Morgunblaðið HUGSANLEGA HOLLASTI MORGUNMATUR Í HEIMI Matthildur Lárusdóttir, s: 695 2170 www.heilsufrettir.is/matta netfang: matthildur84@gmail.com Sjálfstæður dreifingaraðili Herbalife GJÖF FYLGIR HVERJUM KEYPTUM PAKKA R ússar hafa lengi æft og keppt í ketilkúlu. Orðið girya, sem er rússneska heitið yfir kúluna, er að finna í heimildum frá því snemma á 18. öld og nú er íþróttin að nema land á Íslandi. „Ég er sú fyrsta hér á landi sem fæ leiðbeinandarétt- indi á lóðin en ég fór nýlega á námskeið í fræðunum í Danmörku. Kennarar þar voru margir af bestu og reynslumestu þjálfurum í heimi í þessari leikfimi, þeir Pavel Tsatso- uline, Steve Maxwell og Steve Cotter. Hvers vegna henta ketilkúlur vel til heilsuræktar? „RKC-kerfið er einfalt æfingakerfi sem byggir á stuttum, hnitmiðuðum æfingum en unnið er með líkamann sem eina heild. Þetta er árangursrík heilsurækt sem byggir upp styrk og úthald auk þess að stuðla að góðri fitubrennslu. Sérsveitarmenn, her- menn, lögreglumenn, bardagalistarmenn og aðrir atvinnuíþróttamenn hafa notað æf- ingakerfið með frábærum árangri og nú eru Hollywood-stjörnur komnar á bragðið, sem og venjulegt fólk. Það nýtist öllum, jafnt þeim sem þurfa að vera í mjög góðu formi starfs síns vegna sem og þeim sem vilja losna við aukakíló, styrkjast og komast í gott alhliða form og vera í því.“ Hvernig eru æfingarnar uppbyggðar? „Æfingakerfið byggist annars vegar á hröðum æfingum sem auka úthald og brenna fitu og hins vegar hægum lyftum sem auka styrk. Það má ná góðum árangri með 30 mínútna æf- ingum 3–4 sinnum í viku. Er hægt að gera æfingarnar heima í stofu, t.d. eftir að hafa farið út að hlaupa? „Það er hægt að nota kúlurnar hvar og hvenær sem er. Við í fjöl- skyldunni tókum t.d. kúlurnar okkar með í hringferð um Ísland í sumar og æfðum mikið úti í náttúrunni. Stofan og garðurinn eru líka tilvalin æfingasvæði.“ Vala segist hafa prófað margar íþrótta- greinar og æfingar í gegnum tíðina en ekki hafa verið í betra alhliða formi en síðan hún byrjaði að æfa með ketilkúlunum. „Það kom mér í raun á óvart hvað ég hef styrkst mikið og bætt þolið, sem fyrir var gott eftir að ég hafði kennt spinning í sex ár. Æfingarnar með ketilkúlunum eru yfirleitt einfaldar en það þarf góða leiðsögn í upphafi svo þær skili sem mestum árangri og fyllsta öryggis sé gætt.“ Hægt að æfa úti í náttúrunni Morgunblaðið/Árni Sæberg Lyftingar Kúlurnar eru ekki ýkja þungar og raunar má gera æfing- arnar hvar sem er. Styrktaræfingar Æfingakerfið byggist á hröðum æfingum sem auka úthald og hægum lyftum sem auka styrk. Vala Mörk iðju- þjálfi og einka- þjálfari lærði ket- ilkúluæfingarnar í Danmörku. Lóðin líta út eins og fallbyssukúlur með handfangi. Á ensku heita þau „Kettlebells“ en þau mætti nefna ketilkúlur á ís- lensku. Þær eru rússneskar að uppruna en njóta vaxandi vin- sælda bæði í Bandaríkjunum og í Evrópu, segir Vala Mörk, RKC-þjálfari (Russian Kettlebell Challenge), iðjuþjálfi og FIA-einkaþjálfari í Árbæjarþreki. TENGLAR ......................................................... www.russiankettlebells.com » Það er hægt að nota kúl- urnar hvar og hvenær sem er. Við í fjölskyld- unni tókum t.d. kúlurnar okkar með í hringferð um Ísland í sumar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.