Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2004, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.2004, Blaðsíða 31
DV Síðast en ekki sist FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ2004 31 Ástandið í Abu Ghraib „Ástandið í írak er orðið verra en það var hjá Saddam Hussein," segir Jónas Kristjánsson í leiðara 27.5. í kjölfar umræðu um illa meðferð fanga í Abu Ghraib. Ekki dreg ég úr því, að misþyrmingar, nauðganir og dráp fanga, sem nú hefur komizt upp um, eru þungur áfellisdómur yfir bandarískum fangavörðum og yfir- völdum sem ábyrgð bera á þeim mál- um. Umheimurinn krefst þess að refjalaust verði refsað fyrir þá stríðs- glæpi, sem og er að vænta. Illvirki Saddams Þó andmæli ég orðum Jónasar hér ofar. Svo vill til að um daginn rak ég augun í gamalt fréttablað, þar var minnzt á Abu Ghraib. í The Times 3.3. 2003 vísar W. Rees-Mogg í ræðu þingkonu úr vinstraarmi Verka- mannaflokks, Ann Clwyd, í brezka þinginu 26.2. 2003. Þá var hún ný- komin úr ferð meðal Kúrda í írak og upplýsti þingið um þjóðemishreins- anir Saddams sem væru þá enn „í stöðugum gangi". Að sögn ungs íraka sem hún hitti í ferðinni og áður var fangi í Abu Ghraib var „fólk nær dag- lega tekið af lífi í því fangelsi, ekki einn, heldur hundmð manna. Eftir tilræði við Uday Hussein fýrir nokkm vom 2.000 fangar teknir af lffi þann sama dag,“ sagði Clwyd í ræðunni, sem hafði mikil áhrif á þingheim og fjölmiðla. Hún „sagði firá háskóla- kennara, vannærðri konu sem fæddi bam í fangelsi og sárbændi fanga- verði um mjólk handa barni sínu. Þeir neituðu, og bamið dó. Þrjá daga hélt hún því í fanginu, vildi ekki sleppa. Eftir þrjá daga í 60 stíga hita var auðvitað komin lykt af barninu, þá var konan fjarlægð og drepin," segir í frétt í vinstrablaðinu Guardian 27.2. 2003. Þingkonan Nicolson, frjálslyndur demókratí, sagði sama dag frá aðför Saddams að sjía- múslimum og Aröbum á fenjasvæð- unum, sem væri einbert þjóðarmorð. Hún andmæltí ffiðarhyggju (pacifisma) eigin flokks. Clwyd sagði fjölda fólks hafa lent í þjóðemishreinsun fyrir það eitt að vera Kúrdar. „Þannig er veruleikinn í írak Saddams. Þegar ég heyri fólk biðja um meiri frest [á íhlutun], spyr ég: Hver á að hjálpa fómarlömbum JónValurJensson andmælir leiðara Jónasar Kristjánssonar. Kjallari Saddams ef við gerum það ekki?“ Sagði hún íraksstjórn verðskulda dóm fyrir stríðsglæpi, glæpi gegn mannkyni og þjóðarmorð og að mjög væri miður að Bretland hefði ekki mtt veginn fyrir ríkisstjómarskiptí í írak þegar tækifæri bauðst til í Persaflóastríðinu. Fullyrðingar Clwyd um harðstjórn Saddams fá víða staðfestingu í skýrsl- um Amnesty Intematíonal. f júní 1999 vom a.m.k. 60 fangar teknir af h'fi í Abu Ghraib. í sept. a.m.k. 100 pólitískir fangar (þar af 21 kona) teknir af hfi og grafnir í íjöldagröf. 12.10. vom a.m.k. 100 teknir þar af lífi. Seint á árinu leitaði AI upplýsinga hjá ríkisstjóm íraks um fanga sem skv. fregnum höfðu verið teknir af lífi í hundraðatali í Abu Ghraib- og al- Radhwaniya-fangelsunum í des. 1997, þ.á m. 288 nafngreindir; sumir þeirra biðu þá lausnar eftír afþlánun dóma. Stjórnin beittí undanfærslum, svaraði ekki. Áfellisdómur í nóv. 1998 vom yfirvöld skv. AI sögð hafa fyrirskipað aftökur hund- mða póhtískra fanga sem flestir til- heyrðu stjómarandstöðuhópum og höfðu verið dæmdir til dauða eða lífstíðarfangavistar. í okt. 2001 var enn verið að taka af lífi 21 sjía í Abu Ghraib skv. AI, auk fjölda annarra af- taka í landinu á því ári. Árið 2000 vom hundmð manna, m.a. sam- vizkufangar, sjíar og tugir foringja í Lýðveldisverðinum, teknir af lífi. Þá vom f okt. s.á. tylftír kvenna (þ.á m. fæðingariæknir sem gagnrýndi spih- ingu í heilbrigðisþjónustu) háls- höggnar með sverðum án dóms og laga íyrir utan heimili sín, sakaðar um vændi. „Sum fórnarlambanna vom að sögn drepin af pólitískum ástæðum" (AI 2001). Elztí sonur Saddams, Uday, stjórnaði drápum kvennanna. Hér er þó aðeins fjallað Athugasemd frá íþróttaálfinum íþróttaálfurinn skrifar í tilefiii af Pressupistii Illuga Jökulssonar á dög- unum: Sæh Ulugi. Um leið og ég vil þakka þér fýrir góðar ábendingar í síðasta helgar- blaði DV um nauðsyn endurnýjunar innslaga í Útvarpi Latabæ þykir mér vænt um að sjá að þú og þínir em í hópi fjölmargra dyggra hlustenda út- Lesendur varpsins. Það er alltaf gott að fá góð- ar ábendingar, sérstaklega frá fólki eins og þér sem hefur vit á því sem það er að tala um. Undirbúningur uppfærslu er hafinn og munu hlust- endur verða varir við breytingar í sumar. Fyrst ég er byrjaður að skrifa þér finnst mér rétt að taka ffarn að Út- varp Latíbær var á sínum tíma sett á laggimar þar sem okkur fannst al- gjörlega vanta útvarp fýrir yngstu hlustenduma. Það hefur líka komið berlega í ljós að þörfin var svo sann- arlega fýrir hendi því skv. Gallup könnun sem gerð var í október 2003 hlusta hvorki fleiri né færri en 36% fólks á aldrinum 30-39 ára reglulega á Útvarp Latabæ. Þar sem ekki má gera slíkar kannanir á meðal bama vitum við ekki nákvæmlega um hlut- fah þeirra en óformlegar kannanir sýna að í aldurshópnum 2-5 ára er Uvarp Latíbær með meira en 70% hlustun hjá þeim bömum sem em í bíl. Eina útvarpsefhið, sem sérstak- lega var ætlað börnum áður en Út- varp Latíbær var sett á laggimar, var þátturinn Vitinn á Rás 1. Hann var ætlaður börnum á aldrinum 0-14 ára, sem að okkar mati var alltof breitt aldurssvið. Við höfum því reynt að vanda okkur sem best og í því skyni framleitt á milli 200-300 stutta leikþættí sem er meira en margar stærri útvarpsstöðvar hafa gert. Varðandi lagaval skal upplýst að í Útvarpi Latabæ höfum við safnað saman á einn stað öhum íslenskum barnalögum sem við höfum komist yfir. Síðan sér tölva um að velja af handahófi lög tíl spUunnar hverju sinni en yfir lengri tíma á sphun lag- anna að vera jöfh. Varðandi athuga- semd þína um „vemmUeg popplög" vU ég segja að með tiUiti tU þess hversu margir foreldrar hlusta á út- varpið fannst okkur rétt að hafa á dagskránni gömul og góð lög sem þeir þekkja. Með því mótí gætí t.d. skapast grundvöhur fyrir samræður á milh foreldra og bama um lögin sem voru vinsæl þegar foreldramir vom yngri. Þegar kvöldsagan er búin breytíst lagavalið á stöðinni þannig að popplögin fá meiri spUun enda öU góð og þæg börn komin í rúmið þeg- ar sögunni lýkur. Þar við bætíst að við vitum að Útvarp Latíbær á stóran hóp traustra hlustenda í hópi þeirra sem þurfa að dvelja á sjúkrahúsum, fyrst og fremst vegna ánægju þeirra með „vemmUegu popplögin". Að lokum smá leiðrétting. Það er ekki Nenni m'ski sem sem setur súkkulaði í bökuðu kartöflumar heldur Siggi sætí. Það er að okkar matí mjög mikUvægt að menn mgU hvorki þeim né öðrum persónum úr Latabæ saman, frekar en Mikka ref og LUla klifurmús í Dýrunum í Hálsaskógi. TU þess að festa persón- urnar enn betur í sessi virðist þú því þurfa að hlusta enn betur (bara smá grín). Með vinsemd og virðingu íþróttaálfurinn verra en hjá Saddam? um meðferð fanga undir lok valda- tí'ðar Saddams, ekki um þjóðarmorð hans áður. Skýrslur AI um 1999-2002 segja beitingu pyntinga útbreidda og kerf- isbundna á íröskum föngum. Aðferð- irnar, m.a. rafrnagnsstuð og sígar- ettubruni á ýmsum stöðum líkamans, neglur rifnar af, nauðgun, menn látn- ir hanga lengi á útíimum, barðir með snúrum, rörum og vírvöndum, barðir á iljar, borað í hendur með rafmagns- bor og seinustu árin sú nýjung að skera úr mönnum tunguna. Meðal sálrænna pyntinga voru gerviaftökur, langtímasvipting svefns, að láta fanga hlusta á neyðaróp pyntaðra, hótun um handtöku og barsmíðar ættingja fanga eða nauðgun náinnar ættkonu, einkum móður eða eiginkonu, í aug- sýn fangans. Eru þess dæmi, að menn hafi þurft að horfa upp á ættingja pyntaða, knúnir þannig til að játa á sig sök, síðan teknir af lífi. Nægir þetta Jónasi til samanburð- ar við ástandið í refsimálum íraks nú? Að því leytí sem eitthvað af þessum pyntingaraðferðum var notað af Am- eríkönum áður en upp komst um glæpina í Abu Ghraib, er það áfellis- dómur yfir þeim líka. Fáir vilja þó hverfa aftur til valdatíma Saddams. Ekki flýja af hólmi Endurreisnarstarf heldur áfram, þótt torsótt sé, meðan gengur á með hefhdaraðgerðum og mannvígum, en þau má ekki taka sem merki þess að meirihlutí íraka sé andvígur mannréttindum og lýðræði. Um- heimurinn þarf að veita þeirri upp- byggingu jákvætt aðhald, ekki flýja af hólmi undan ofbeldisöflum sem myndu breyta landinu í blóðugri víg- völl en menn geta ímyndað sér. ís- lendingar sem aðrir eiga að virða ályktun Öryggisráðs SÞ frá 16.10. 2003, þar sem hemámsliðinu em fal- in æðstu völd þar til ný stjóm íraka tekur við í sumar. Þættirnir Hljómsveit íslands á Skjá einum vöktu mikla athygli síð- asta sumar en þá fýlgdust áhorf- endur með poppsveitínni Gleðisveit Ingólfs gera víðreist undir þeim for- merkjum að slá í gegn. Umboðs- maður sveitarinnar var Ingólfur Hlynsson sem vann hörðum hönd- um ásamt Hálfdáni Steinþórssyni að því að koma Hljómsveit íslands á toppinn: „Eins og staðan er núna er ég lítið í þessum bransa en hef þó haldið nokkur böl,“ segir Ingólf- ur en gegnir stöðu verslunarstjóra hjá 10-11 í sumar. „Ég er búinn að vera í þessu starfi í fimm ár og líkar vel. Ég er farinn að huga að flutn- ingi til útíanda og mun líklega fara í nám til Danmerkur áður en langt um líður,“ segir Ingólfur Hlynsson. ROKK OG RÓL MEÐ BALDRI í kvöld fimmtudag kl. 20:00 • Baldur kynnir sig • 701 fytur raftónlist • RVK spririts • Dáðadrengir - Sigurvegarar Músíktilrauna 2003 Veitingar í boði Allir velkomnir Stuðningsfólk BALDUR Á BESSASTAÐI - af viröíngu viö land og þjóö Kostningaskrifstofa Baldurs Ágústssonar • Þverholti 11 • 105 Reykjavík • Sími 552 9000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.