Morgunblaðið - 17.10.2013, Blaðsíða 48
FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 290. DAGUR ÁRSINS 2013
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Játaði á sig morð við aftökuna
2. Ein flottasta verönd í Fossvogi
3. Fá augnablikið aldrei aftur
4. Ófeimnir afbrotamenn
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Gradualekór Langholtskirkju hefur
komið víða við á undanförnum miss-
erum í Biophiliu-tónleikaferð Bjarkar
Guðmundsdóttur. Kórinn er kominn
heim og heldur tónleika í kvöld kl. 20
í Langholtskirkju með dönskum kór,
Viborg Domkirkes Ungdomskor. Jette
Haslund Birch stýrir danska kórnum
og Jón Stefánsson Gradualekórnum.
Kórarnir syngja hvor í sínu lagi en
einnig saman í lögunum „Sofðu unga
ástin mín“ og „Sensommervise“.
Meginverk tónleikanna er „A Little
Jazz Mass“, eða Litla djassmessan,
eftir John Rutter frá árinu 2004 sem
var frumflutt í New Orleans það ár.
Litla djassmessan er samin við hinn
sígilda latneska messutexta Kyrie,
Gloria, Sanctus, Benedictus og Agn-
us Dei og sýnir hver kafli mismunandi
stíltegundir djassins svo sem
„groove funk“, rokk, ballöðu og blús.
Í danska kórnum eru ungmenni á
svipuðum aldri og þau sem eru í Gra-
dualekórnum. Tómas Guðni Eggerts-
son píanóleikari og Gunnar Hrafns-
son bassaleikari leika með kórunum
á tónleikunum í kvöld.
Tveir ungmennakór-
ar í Langholtskirkju
Tónleikaröðin Sérfræðingar að
sunnan! hófst í Hofi á Akureyri í sept-
ember með tónleikum kimono og
Buxnaskjóna. Aðrir tón-
leikar raðarinnar verða
haldnir í kvöld kl. 20.30
og að þessu sinni troða
upp sérfræðingarnir í
hljómsveitinni Leg-
end. Hljómsveitin
Mafama hitar upp.
Legend á Sérfræð-
ingum að sunnan!
Á föstudag, laugardag og sunnudag Fremur hæg austlæg eða
breytileg átt, bjart með köflum og yfirleitt þurrt, en skýjað að
mestu eystra. Hiti kringum frostmark.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Fremur hæg suðaustlæg átt, skýjað að
mestu og yfirleitt þurrt, en smá væta um landið vestanvert. Hiti 2
til 8 stig, mildast við suðurströndina.
VEÐUR
Fyrri umspilsleikur Íslands um
sæti í lokakeppni heimsmeist-
aramóts karla í fótbolta fer
fram á Laugardalsvellinum
föstudaginn 15. nóvember.
Svo seint hefur aldrei verið
spilað á vellinum og vall-
arstjórinn segir að nú fari í
hönd mikil vinna þar sem
koma þurfi í veg fyrir jarð-
vegsfrost í vellinum á þess-
um tíma. Ef ekki verður hægt
að spila á vellinum þarf að
flytja leikinn úr landi. »1
Þurfa að hindra
frost í vellinum
Þór/KA er úr leik í Meistaradeild
kvenna í fótbolta eftir 4:1-ósigur
gegn Zorkij í Rússlandi í gær. Jó-
hann Kristinn Gunnarsson, þjálfari
Akureyrarliðsins, segir
lið sitt geta sjálfu sér
um kennt að hafa
ekki fengið hagstæð-
ari úrslit úr leiknum.
Arna Sif Ásgríms-
dóttir skoraði og
hefur gert mörk í
báðum útileikjum
Þórs/KA í keppn-
inni. »4
Við getum sjálfum
okkur um kennt
„Ég greip bara boltann undir körfunni
og þá þýddi ekkert annað en að
skora,“ sagði Bryndís Guðmunds-
dóttir, fyrirliði Íslandsmeistara Kefla-
víkur, eftir að hún tryggði liði sínu
eins stigs sigur á Val, 86:85, í Dom-
inosdeild kvenna í körfuknattleik í
gærkvöldi. Íslandsmeistarar Keflavík-
ur hafa farið vel af stað, eru einir á
toppnum eftir þrjár umferðir. »2
Keflavíkurliðið eitt í
efsta sæti í körfunni
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Við erum að semja ljóð,“ segir Þórð-
ur Helgason, dósent við Háskóla Ís-
lands og leiðbeinandi ljóðahóps eldri
borgara, sem hefur komið saman
vikulega á veturna í Gjábakka í Kópa-
vogi síðan haustið 1999.
Átta konur stofnuðu hópinn og hef-
ur Þórður verið leiðbeinandi hans frá
upphafi. Hann rifjar upp að þegar
hann kenndi í Verzlunarskóla Íslands
hafi hann stofnað ljóðahópa til þess
að semja ljóð. Hann hafi haldið upp-
teknum hætti þegar hann byrjaði að
kenna við Kennaraháskóla Íslands og
þetta hafi spurst út. Sigurbjörg
Björgvinsdóttir, sem hafi veitt Gjá-
bakka forstöðu, hafi verið með hóp
kvenna sem hafi viljað spreyta sig á
ljóðagerð og hann hafi slegið til.
Auk útgáfu ljóðabóka hefur hóp-
urinn flutt ljóðadagskrá um allt land
og auk þess í Færeyjum í sumar sem
leið. „Það eru sex upplestrar núna á
dagskrá og svo bætast örugglega
fleiri við,“ segir Þórður. „Þetta er
mjög lifandi hópur og það eru ekki
aðrir hópar meira lifandi.“
Þórður segir að einstaklingarnir
hafi verið mjög áhugasamir. End-
urnýjun hafi verið regluleg og um 12
til 15 manns hafi verið virkir á hverj-
um tíma. „Þetta hafa mest verið eft-
irlaunaþegar en við höfum líka fengið
yngra fólk, sem hefur einnig haft
mikla ánægju af þessu.“
Oftast klapp
Konur hafa alla tíð verið í meiri-
hluta í ljóðahópnum. Þórður segir að
þær virðist vera tilbúnari en karlar til
þess að taka þátt í svona verkefni og
hugsanlega hafi vinnusamfélagið
skemmt fyrir körlunum hvað þetta
varðar. Þær séu mjög opnar og það
að yrkja nútímaljóð vefjist ekki fyrir
þeim og reyndar ekki fyrir körlunum
heldur. „Ég hef haft gríðarlega mikla
ánægju af þessu starfi og þetta hefur
gengið alveg einstaklega vel, rétt eins
og þegar maður hefur góða nem-
endur í skóla.“
Þórður segir að uppbygging tím-
anna sé í föstum skorðum. Hann komi
með ljóð sem hann fari yfir, gjarnan
úr mjög nýjum ljóðabókum. „Við höf-
um reynt að fylgja alveg eftir nýrri
ljóðagerð,“ segir hann og bendir á að í
tímanum í vikunni hafi hann verið
með ljóðabókina Árleysi alda, nýjustu
bók Bjarka Karlssonar, sem fékk
Bókmenntaverðlaun Tómasar Guð-
mundssonar í liðinni viku. Þátttak-
endur lesi síðan upp eigin ljóð og hóp-
urinn taki afstöðu til þeirra. „Þeir fá
oft leiðbeiningar en oftast klapp,“
áréttar Þórður og bendir á að ljóð-
unum sé safnað saman í bækur. „Þeir
sem yrkja þarna kunna allar reglur
og eiga ekki í vandræðum, þetta fólk
er orðið bókmenntafræðingar eftir að
hafa verið í tímum öll þessi ár.“
Lifandi hópur ljóðskálda
Hafa komið saman vikulega og farið
með ljóð saman síðan haustið 1999
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ljóðahópurinn í tíma Konur hafa alla tíð verið í meirihluta í hópnum. Aftari röð frá vinstri: Hafsteinn Reykjalín Jóhannesson, Kjartan Trausti Sigurðsson,
Þórður Helgason, Heiður Gestsdóttir, Unnur Guttormsdóttir, Sigurlín Hermannsdóttir, Hulda Jóhannesdóttir, Sigurbjörg Björgvinsdóttir og Ólöf Stefanía
Eyjólfsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Guðrún G. Jónsdóttir, Edda Ragna Guðvarðardóttir, Inga Guðmundsdóttir og Oddný Björgvinsdóttir.
„Við höfum gefið út alls 12 bæk-
ur saman, oft það sem fólk hef-
ur verið að yrkja almennt eða
við höfum tekið fyrir eitthvert
þema og gert það að yrkisefni,“
segir Þórður. Í því sambandi
nefnir hann bók sem gefin var
út þegar 200 ár voru liðin frá
fæðingu Jónasar Hallgríms-
sonar 2007. Auk þess áréttar
hann að einstaklingar í hópnum
hafi gefið út fjölda bóka.
Bækur hópsins eru Gjábakka-
þulur I-IV, Ljóð og litir, Ljóð og
myndir, Í sumardal, Sam-
hljómur, Heimaslóðaljóð, Ljóð
við lækinn, Vor í Gjábakka og
Ýtt úr vör.
Hefur gefið
út 12 bækur
GJÁBAKKAHÓPURINN