Morgunblaðið - 23.06.1960, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 23.06.1960, Blaðsíða 1
24 siður 47. árgangur 139. tbl. — Fimmtudagur 23. júní 1960 Prentsmiðia Morgunblaðsins Soustelle sker upp heror gegn de Gaulle Agreiningur meðal skæruliða París og Algeirsborg, 22. júní. ANDSPYRNÁN gegn áform- um de Gaulle um sjálfs- ákvörðunarrétt til handa Alsír fer nú vaxandi, bæði heima fyrir og meðal frönsku landnemanna og afkomenda þeirra í Alsír. Bak við tjöldin er nú unnið að því að sam- eina alla flokka og öfl, sem berjast fyrir „franskri Alsír“ til eilífðar. Og það er Sou- stelle, fyrrverandi bandamað- ur de Gaulle, sem þar er fremstur í flokki og hyggst nú reyna að kollvarpa áform- um de Gaulle með sameigin- legu átaki allra andstæðinga hans. ALSÍRSKA „Þjóðernishreyf- ingin“ hefur nú krafizt þess að fá aðild að vopnahlésvið- ræðunum í París. „Þjóðernis- hreyfingin“ er keppinautur „Þjóðfrelsishreyfingarinnar“, en sú síðarnefnda stendur að útlagastjórn uppreisnar- Varnarsáttmál- inn fullgiltur WASHINGTON, 22. júní. _ Öldungadeild Bandaríkjaþings fullgilti í dag varnarsamning Bandaríkjanna og Japans. Að- eins tveir þingmenn greiddu atkvæði gegn sáttmálaroum, en 90 með honum. Verður samn- ingurinn nú sendur með flug- vél til Hawaii þar sem Eisen- hower mun undirrita hann, en síðan til Japan. — Þingmenn- irnir tveir, sem mótatkvæði greiddu voru suðurríkja demo kratarnir Long frá Eousiana og Russell frá Georgiu. manna og fulltrúum þeirrar stjórnar hefur de Gaulle boð- ið til Parísar til að reyna að binda endi á hálfs sjötta árs bardaga í Alsír. Vill ekki nota flugvél Frakka „Þjóðernishreyfingin" til- kynnti jafnframt, að hún hefði Framkald á bls. 23. Veitir ríkisstjórnin aðstoð til oð byggja bændahöllina og leysa hótelvan damálib? MORGUNBLAÐIÐ hafði í gær tal af Þorvaldi Guðmundssyni, for- stjóra, og spurði hann frétta af hótelmálum og hvaða ráðagerðir hann hefði á prjónunum í þeim efnum. Fékk blaðið eftirfarandi upplýsingar hjá honum: Teikningar hafa verið gerðar af hótelinu í Aldamótagörðunum og eftir nákvæma áætlun kemur í ljós, að það þarf 2ja til 3ja ára undirbúning, áður en hægt verð- ur að hefjast handa um byggingu hótelsins. Ríkisábyrgðin er feng- in og lóðin er hin heppilegasta, en samt verður ekki hægt að byrja á byggingu hótelsins fyrr en að þessum tíma liðnum. Vill hraða málinu Þorvaldur hefur aftur á móti mikinn áhuga á því að koma upp góðu hóteli fyrir mitt næsta ár og hefur átt marga viðræðufundi við forráðamenn Búnaðarfélags- byggingarinnar á Melunum um það mál. Forráðamenn bænda- samtakanna hafa spurt Þorvald, hvort hann vilji ekki hafa við þá samvinnu um hótelrekstur í hinu nýja Búnaðarfélagshúsi, en á þremur efstu hæðum hússins er gert ráð fyrir gistiherbergjum. Nú eru allar líkur til að úr því verði, að Þorvaldur reki hótel í þessu húsnæði, svo framarlega sem ríkisstjórnin veitir marg- háttaða aðstoð til þessara fram- kvæmda m. a. með lánveitingu, en án hennar er útilokað að þessi framkvæmd komist á. Tekur ríkisstjórnin afstöðu til þess máls næstu daga. Þorvaldur sagði, að byggingu hótelsins yrði hraðað eftir föng- um strax og málið hefði fengið afgreiðslu hjá ríkisstjórninni og kvaðst hann vona að hótelið gæti m. a. hýst þá gesti, sem heim- sækja ísland næsta ár í tilefni 50 ára afmælis Háskóla íslands, en þá er í ráði að mikil hátíðahöld fari fram hér í bæ. 150 rúm í hðtelinu verða allt að 90 gistiherbergi eða 150 rúm með WC og baði í hverju herbergi, auk þess góður veitingasalur fyrir gesti, fundarsalir bæði stór- ir og litlir, svo þarna verður Þorvaldur Guð- misndsson vill reka 90 herbergja hótel í Bœndahöllinni mjög heppilegt húsnæði fyrir al- þjóðaráðstefnur. — Eins og fyrr greinir verða herbergin á þrem- ur efstu hæðum hússins og er útsýni þaðan hið fegursta. Þá má geta þess, að komið verður fyrir sjálfsafgreiðslu matsölu á neðstu hæð eftir ný- tízkusniði, þannig að gestir hót- elsins og aðrir geta valið á milli. í húsinu verða ennfremur ferða- skrifstofa, banki, blómaverzlun, hárgreiðslustofa, rakarastofa, herra- og dömuverzlanir, ásamt ýmsum öðrum verzlunum. 1. flokks hótel Þorvaldur Guðmundsson sagði, Framhald á bls. 23. Þessi mynd var tekin í gær í vinnustofu Ásmundar Sveinssonar, myndhöggv- ara. Listamaðurinn stendur á milli efri hluta og neðri hluta af risastórri mynda- styttu af skáldinu, sem reist verður hér í Reykjavík. Á baksíðu er sagt nánar frá þessu í frétt. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.) Stœrsta pósthús í Evrópu • MOSKVU-ÚTVARPIB heftff skýrt frá því, að byrjað sá að byggja 14 hæða pósthús í Moskvu Muni þetta verða stærsta póst- hús í Evrópu. Vaxandi ágreiningur BÚKAREST, 22. júní. — Komm- únistaforingjar leppríkjanna í A-Evrópu stóð sem einn að baki Krúsjeffs á þingi rúmenska kommúnistaflokksins í dag. Sagði Krúsjeff að hluti kenninga Len- ins væri úreltur. Er þetta túlkað á þá lund, að Krúsjeff ætli ekki að láta í minni pokann fyrir kín- verskum kommúnistum, en þeir halda fast við hvern bókstaf í Leninismanum. Er almennt áSitið að þessi yfirlýsing Krúsjeffs verði því sízt til að jafna deil- urnar milli forystunnar í Kremi og kínverskra kommúnista. Óþarfi Það var á fundi þingsins í gær, að Krúsjefý hélt ræðu sína. Frétta mönnum frá Vesturlöndum var þá ekki heimilaður aðgangur. Kjarni ræðunnar var sá, að kenn ing Lenins um að styrjöld milli kommúnistaríkjanna og lýðræðis- ríkjanna væri óumflýjanleg — væri úrelt kenning. Sagði Krús- Framhald á bls. 23. Ekkert samkomulag í afvopnua rmálunum RáSstefnan er nú að fara út um búfur GENF, 22. júní: — I dag var haldinn tveggja mínútna fundur á 10-veldaráðstefnunni um af- vopnum. Var þetta stytzti fund- urinn, sem haldinn hefur verið á ráðstefnunni, en að honum lokn- um birtu kommúnistaríkin 5 sameiginlega yfirlýsingu þar sem Vesturveldin voru sökuð um að vera að spilla fyrir árangri af viðræðunum. Megininntak yfirlýsingarinnar var það, að Vesturveldin hefðu ekki fengizt til að ræða tillögur Rússa og hefðu ekki lagt fram neinar raunhæfar tillögur sjálf. Talsmenn Vesturveldanna sögðu síðar í dag, að enn væri beðið eftir svörum Rússa við spurn- ingum, sem skiptu megm máli í sambandi við eftirlit með af- vopnum. Rússar hefðu ekki gefið svar — og virtust ekki líklegir til að ætla að svara: Þykir ýmislegt benda til þess, segja talsmenn Vesturveldanna, að Rússar vilji nú engan árang- ur af viðræðunum, en vilji, eins og að líkum lætur skella skuld- inni á Vesturveldin. Það þykir athyglisvert, að Rússar gefa þessa yfirlýsingu meðan bæði Eaton, aðalfulltrúi Bandaríkjanna, og Jules Moch, fulltrúi Frakka, eru fjarverandi. Þeir eru að ráðfæra sig við stjórn ir sínar, en kommúnistar hafa ekki séð ástæðu til að bíða þeirra.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.