Morgunblaðið - 30.10.1965, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 30.10.1965, Blaðsíða 2
MORGUNBLABIB Laugardagur 30. október 19(5! L Magnús Á. Arnuson við eitt ai málverkum sínum á sýningunni. Afmælissýning Magnúsar A. Arnasonar 1 GÆ3R var oprtuð í Lisíamanna- skálanum yfirlitssýning á verk- um Magnúsar A. Árnasonar list- máiara, en það er Félag íslenzkra myndlistarmanna, sem gengst fyrir þeirri sýningu í tilefni sjö- tugs afmaelis listamannsins. Á sýningunni eru 80 myndir, nær allt olíumálverk nema þeir allra elztu sem eru vatnslitamyndir og kaffi- og blekteikningar. Þá eru einnig 10 höggmyndir úr bronzi, gipsi, sandsteini og mó- bergi. Myndirnar eru nær ein- göngu landslagsmyndir og flestar frá íslandi, en einnig nokkrar frá Sviss, Frakklandi og Mexico, leru í einkaeign en hinar allar til auk þess ntu andlitamyndir. 38 sölu. Verkin eru frá því 1917 og verkanna sem á sýningunni erujallt fram á þennan dag. Peningum og skóm stolið á Akureyri Akureyri, 29. október. INNBROX var framið í nótt í gosdrykkjaverksmiðjuna Flóru við Kaupvangsstræti, sprengdur upp peningakassi og stolið úr honum 300 krónum. Þjófurinn mun.hafa farið inn í húsi'ð úr geymsluporti að húsa- baki í gegn um dyr, sem munu hafa verið illa lokaðar. Venja er að loka þeim með slagbrandi innan frá, en annaðhvort mun hafa gleymzt að setja slagbrand- inn fyrir í gærkvöldi eða þjóf- urinn hefur laumazt inn rétt fyrir lokun og tekið slagbrand- inn frá svo lítið bar á. Einhvern tíma í sl. viku, þ. e. frá fimmtudegi til fimmtudags, var farið inn í loka'ða vöru- geymslu á bak við skóbúð KEA í Hafnarstræti 95 og þaðan stolið 5 pörum af skóm. Á þessum tíma Sigfús Haildórsson heldur málverkasýningu f DAG kl. 4 opnar Sigfús Hall- ^dórsson málverkasýningu í neðri sal Félagsheimilisins í Kópavogi. Hann sýnir þar 45 myndir og eru þær allar frá Kópavogi, mál- aðar á sl. tveimur og hálfu ári, auk þess sem hann sýnir þarna einnig leikmyndalíkön úr Fjalla- Eyvindi, sem hann gerði fyrir Leikfélag Kópavogs í fyrra. Myndirnar eru allar til sölu. Sýningin mun standa til 8. nóv- emtber og verður opin daglega frá því kl. 4-11.30, nema á sunnu- dögum verður hún opin frá þvi kl. 10. fór starfsfólkið aldrei inn i geymsluna og því ekki vitað, hvenær innbrotið var framið. Ekki hefur tekizt a'ð upplýsa neitt af þeim þjófnaðarmálum, sem hér hafa komið upp undan- farna daga, en unnið er að rann- sókn þeirra óslitilega. — Sv. P. Björn Ólafsson formaður banka ráðs Útvegs- bankans SAMKVÆMT bréfi viðskipta- málaráðuneytisins, dags. 26. þ.m. hefur viðskiptamálaráðherra þann sama dag skipað Björn Ólafsson, fyrrverandi ráðherra, formann bankaráðs Útvegsbank- ans frá 22. sept. s.l. að telja, í stað Guðmundar 1. Guðmunds- sonar, sendiherra, sem hefur sagt sig úr bankaráðinu. Þá hefur ráð herrann ennfremur skipað Hálf- dán Sveinsson, kennara, varafor- mann bankaráðsins frá sama tíma að telja í stað Björns Ólafs sonar. Gilda báðar þessar skip- anir til ársloka 1968. (Frá banksistjórn Útvegsbanka Íslands). VINDUR var hægur um allt á Hveravöllum og Hólsfjöll- land í gær, og víðast hvar var um. léttskýjað. Vægt frost var inn Lægðin suður af landinu til landsins, einkum norðan var á hreyfingu ANA, og mun lands. í Aðaldal var 8 stiga spilla veiðiveðri á miðunum frost um morguninn og 7 st. við Austurland í dag. Aðkomumenn farnir frá bræðsl- unni á Raufarhöfn Raufarhöfn, 29. október. SEGJA má að allir aðkomumenn, sem hafa starfað við síldarverk- smíðjuna, séu farnir, en verk- smiðjunni verður haldið opinni, ef einhverjir bátar kynnu að vilja landa síldinni hér. Beðið er með af þessum sök- 'um að gera lagfæringar og end- urbætur á verksmiðjunni. Menn vilja ekki hætta á slíkt, geri verulega aflahrotu. í sumar og haust hefur verk- smiðjan teki’ð á móti 225.500 mál- um, þar með er talinn úrgangur frá söltunarstöðvunum. — Einar. „Leitið og þér munuð flbiiM*^ Bók um Hafslein B;örnsson miðil komin mt í DAG kemur út hjá Skuggsjá bók helguð Hafsteini Björnssyni miðli- Nefnist hún „Leitið og þér munuð finna“.. Fimmtiu karlar og konur eiga greinar í bókinni um Hafstein og miðilsstarfsemi hans. Frú Elinborg Lárusdóttir segir m.a. í eftirmála að bókinni: „Haf steinn Björnsson varð fimmtug- ur 30. október síðastliðmn. Svo vel ber Hafsteinn aldurinn, að fáum datt í hug, að hann væri orðinn þetta gamall- Okkur vin- um hans kom þá í hug að vinna bók, sem túlkaði þökk og við- urkenningu okkar til hans fyrir margs konar fræðslu, huggun og hjálp, sem hann hefur veitt þús- undum manna á umliðnum ár- um“. Þá segir ennfremur: „I þess 120 þús. önglar í sjó 'Akranesi, 29. október. AFLI línubátanna fimm í gær var frá 4 og upp í 5 tonn á bát. Meirihlutinn er ýsa. Sérhver bátur rær 40 bjóð, á hverju bjóði eru 600 önglar. Bátarnir 5 hafa því verið með í gær 120 þúsund öngla í sjó á þessum 200 bjóðum. — Oddur. ari bók eru nýjar sagnir af fyrir- bærum, sem hvergi hafa birzt. Þær hafa gerzt á fundum hjá Hafstein. Sumir kaflar bókar- innar eru harla nýstárlegir. Sé ég ekki hvernig komizt verður hjá að telja suma atburðina, sem sagt er að hafi gerzt, til sannana. Margir telja sig hafa hlotið vissu um framhaldslífið á fundum hjá Hafsteini. Kemur hér greinilega í ljós, að trúin og vonin eru mörgum ekki nægileg- ar- Menn leita vissu og öryggis“. Bókin er 291 bls. að stærð. Hveragerði Landbúnaðarráð- herra á fundi S j álf stæðismanna SJÁLFSTÆÐISFÉLAGIÐ Ingólf ur í Hveragerði, efnir til félags- fundar í Hótel Hverageíði n.k. sunnudagskvöld 31. okt. og hefs-t hann kl. 21,00. Ingólfur Jónsson, landbúnaðar ráðherra mun mæta á fundinum og flytja þar ræðu. Sjálfstæðisfólk í Hveragerði er,- eindregið hvatt til þess að mæta á þessum fundi. Gamli maðurinn á Hcllnum, Kristján Brandsson, með vogmærina. Spriklandi vogmær fannst / flæðarmáli Hellnum, 29 .okt. FISKUR fannst nýlega sprikl- andi í flæðarmálinu við bryggju á Hellnum. Menn sem voru að vinna þar við hafnargerð náðu henum og kom í ljós að um Vog- mær var að ræða. Gamall maður á Hellnum sagði þá fornu sögu í sambandi við fund Vogmærinnar, að samdæg- urs yrði að grafa fiskinn í stór- straumsfjörumáli, en ef siíkt væri ekki gert ætti að verða skipstapi frá þeirri veiðistöð, þar sem fiskurinn fannst. Ef þessum fyrrmæLum væri hins vegar hlýtt átti það að vera fyrirboði um þrjú aflaár. Fiskurinn var að sjálfsö.gðu grafinn eftir fyrirmælum gamla mannsins og hinnar fornu sagn- — K.K,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.