Morgunblaðið - 20.04.1971, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 20.04.1971, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. APRÍL 1971 Eiríkur Stefánsson kennari: Er lestrarkennslan í lagi? Greln sú, sem Morgunblaú ið birtir hér, kom i Foreldra blaðinu á s.l. ári. Hugh'iðinjí ar liöfundarins eru vissulega orð í tíma töluð. Það er staðreynd, að liörn koma nú í skólana með óþroskaðra málfar og minni orðaforða en áður var. Þess vegna verður að leggja sér- staka rækt við talað mál, frainsögn þess og franiburð. Höfundiir segir m.a.....en mestu varðar að gera hörnin vel talandi og læs.“ Og enn- fremur: „. . . allmörg þeirra harna, sem nú eru að læra að lesa, verða síðar metin eftir Jivi, hvernig Jiau fl.vtja talað orð. Slunduni geta atvinnu- möguleikar Jieirra \erið und ir því koninir og mjög oft al inennar vinsældir." Kiríkur Stefánsson tók kennarapróf árið 1940. Áður liafði liann verið farkennari í Kyjafirði. Kiríkur kenndi við liarnaskóla Húsavíkiir 1940— 43 og við Barnaskóla Akur- eyrar 1943—1958, er hann réðst kennari að Langliolts- skólanum og liefur verið Jiað síðan. G.M. Hún er auðvitað misjöfn og árangur hennar þá einnig. Það er raunaleg staðreynd, að allmargir nemendur hafa alls ekki náð því að verða sæmilega læsir, þegar skyldu námi lýkur, eftir 8 ára nám. Segja má raunar, að það sé nokkuð villandi, að tala um 8 ára skyldu í sambandi við lestrarnám, þar sem raun verulegri lestrarkennslu lýk- ur við endað 6. skólaár. Það er þó eðlilegt að gera ráð fyr ir einhverri framför í lestri á þeim tveimur skyldunáms- árum, sem þá eru eftir, a.m.k. í því að iesa í hijóði. Hvort svo er, veit ég ekki, enda munu engar almennar athug- anir hafa verið á þvi gerð- ar. Að loknu 6 ára námi i barnaskóla er prófað í lestri, og er lágmarkseinkunn 5. Sú einkunn miðast við það, að barnið geti lesið rétt 110 at- kvæði á einni mínútu. Eng- ar kröfur eru gerðar um að vel sé lesið. Stundum er það svo, að barnið gerir ekki bet ur en rétt aðeins að ná þess- um tiiskylda hraða, flutning ur er mjög óáheyrilegur, daufur, hljómlaus og hikandi. Börn, sem ekki hafa náð betri árangri en hér er lýst (sem betur fer eru þau ekki mörg), geta alls ekki talizt læs. Þau hefðu í gamla daga verið talin stautandi. Það er vissulega betra en ekki neitt, enda munu fiest þeirra ná einhverri framför síðar. (Fróðlegt væri að láta fara fram landspróf í lestri við lok skyldunámsins). En hváð þá um þau börn, sem náð hafa þeim hraða að geta lesið 200 atkv. eða meira á mín. og hljóta því einkunnir (samkvæmt próf- reglum) frá 7 10, eru þau læs? Svo er almennt taiið, en þó munu vera skiptar skoðanir um það Hvað er það í raun og veru að vera læs? Þjóð- kunnur leikari, sem jafn- framt kennir framsögn, hefur sagt, að fæstir af þeim, sem til hans leita, séu læsir. Hann gerir vissulega miklar kröfur og aðrar en við kennarar og prófdómendur, sem árlega gefum allstórum hópi 12 ára barna ágætiseinkunn. I þeim fyrirmæhim um lestrarpróf sem við förum eftir, stendur: Eiríkur Stel'ánsson „Hraðaeinkunn þeirra barna, sem lesa 110—200 atkv. rétt á mínútu, má hækka eða lækka uni einn heilan eða brot úr heiluni eftir lestrar- lagi. Lesi barn 200 atkv. eða fleiri rétt á mínútu, gefa próf dómari og kennari því eink- unnir (7—10) eftir lestrarlagi og framsetningu." (Letur- breytingar gerðar hér). Hér á sem sagt að meta, en aldrei verða allir á einu máii, þegar meta skal. Hvernig á lestrarlag að vera og framsetning, til Jiess að barn geti fengið t.d. 9 eða 9,5 í einkunn? Þeir, sem prófa, hafa litið annað að styðjast við en sinn eigin smekk og tilfinn- ingu. Einn leggur ef til vill mesta áherzlu á skýran fram burð orða. Annar gerir jafn- framt kröfu um, að raddblær sé breytilegur eftir því, hvað lesið er. Það kallast að lesa eft ir efni. Prófendur gera mis- jafnar kröfur til raddhæðar o.sifrv. Og svo er hraðinn. Hann er að vísu mældur að viss.u marki. 200 atkv. á einni mínútu er talinn vera lág- markshraði, til þess að nem- andinn geti fengið hæstu einkunn. Gerum ráð fyrir, að eitt bam lesi 200 atkv, en hækkar einkunn sína um hálf an (fær 8,5) fyrir gott lestr- arlag. Annað barn dæmist hafa jafngott lestrarlag en les 230 atkv. á min. Á þetta barn að fá hærri einkunn en hitt eða jafna? Islenzkir barnaskólar hafa búið við hraðapróf i lestri í full 40 ár. Fyrst var það þannig, að hraðinn -var svo til eini mælikvarðinn, sem dæmt var eftir. Þá rejmdu kennarar það, að bezt læsu börnin lásu tiltölulega verst á prófum. Þau háðu kapp- hlaup við tímann og voru ekki ánægð, nema þau lykju við biaðið á þeim tíma, sem ætlaður var (2 mín)., en þá tíðkaðist að hafa meira les- mál á prófblaðinu en nú er. Svo sem getið er hér að framan, er sú breyting orðin til bóta, að hraðinn einn ræð ur ekki einkunn. Þó er hann metinn meir en skyldi og leið ir það til þess, að flutningur efnis (raddlesturinn) verður ekki eins áheyrilegur og ann ars mundi vera. En skiptir það svo miklu máli nú á dög- um? Svo spyrja margir og láta það fylgja með, að nú séu þeir fáir, sem lesi upphátt fyrir aðra, kvöldvökur séu úr sögunni. Það hljóti að vera aðalatriðið nú á tímum, að menn séu fljótir að tileinka sér efni blaða og bóka með því að renna augum eftir dálkum og blaðsíðum. Því skipti það mestu máli, að börnin séu þjálfuð vel og æfð i hljóðlestri. Enginn neit ar þvi, að þetta er mikils vert, og gegnir það nokkurri furðu, hve skólarnir hafa lít ið sinnt hljóðlestri um skeið, en það má meðal annars sjá á því, að fyrir löngu var hætt að prófa i hljóðlestri, sem eitt sinn var gert. En þar sem þessu greinar- korni er einkum ætlað að fjalla um raddlestur eða flutning ritaðs máls, verða hljóðlestrinum ekki gerð hér frekari skil. Skal því aftur að því vikið, hvort tími radd lestrar sé hjá liðinn, svo að litlu máli skipti nú um hann. Höfuðnaiiðsyn að liafa góða t'ramsögn Ég skal fúslega viðurkenna að ekki varði miklu hæfni fólks í raddlestri, sé viðmiðunin sú ein, hvort góð it lesarar verði hæfari til þess að vinna sér inn háar tekjur. Það á þá helzt við um útvarpsþuli og leikara, en fleiri þarfnast þess þó, svo sem prestar, alþingismenn og Framh. á bls. 20 lauLrf'TTff'lT^^ xcmai^rfTnTTTymM 11111 rn1 ojxiiaiiiiiim .... _____________________ ■w ■ Við fljúgum með yður til London Já, British European Airways er komið. Við erum fullvissir um að fá þær hlýjustu móttökur, sem nokkurt flugfélag getur vænzt. Sem sagt, frá 7. apríl geta hinar nýju Trident Two þotur okkar flogið með yður frá Keflavík beint til London* ■gzJt| Einu sinni í viku fyrst um sinn. Tvisvar í viku frá byrjun júní. Og frá London getum við veitt yður hina víðtækustu fyrirgreiðslu til nítíu staða í Evrópu. mumn Sannleikurinn er, við fljúgum með fleira fólk til fleiri staða í Evrópu en nokkurt annað flugfélag. Því ekki að reyna flugferð á brezkan máta? t . ♦ 1 samvinnu við Flugfélag Islands. No. 1 í Evrópu ‘ ® ^

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.