Morgunblaðið - 02.03.1975, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 02.03.1975, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR2. MARZ 1975 47 Jón M. Baldvinsson, listmálari við eina mynda sinna. Kjarvalsstaðir: Jón M. Baldvins- son opnar sýningu Fæðispeningar I FRASÖGN Morgunblaðsins f gær af fundi þingfararkaups- nefndar með fréttamönnum féll niður af tæknilegum ástæðum einn kafli frásagnarinnar. Morg- unblaðið biðst velvirðingar á þessum mistökum, en kaflinn fer hér á eftir í heild. Aðspurður um það, hvort þing- fararkaupsnefnd hefði tekið til endurskoðunar greiðslu fæðis- peninga til þingmanna, sem búa í næsta nágrenni Reykjavikur, sagði Sverrir Hermannsson, að ákvörðun um fæðispeningana hefði upphaflega verið tekin 1953 og hefði því ekki komið til ákvörðunar i þeirri nefnd, sem nú situr. Hann sagði siðan, að gerður hefði verið samanburður á launum þingmanna hér og í Dan- mörku. Komið hefði í ljós við þá könnun, að þingmenn búsettir í Kaupmannahöfn fengju greiddar í laun 10 þúsund danskar krónur HÁTEIGSKIRKJA í messutilkynningu frá Háteigs- kirkju í blaðinu í gær var fundið upp nýyrði innan kirkjumálsins er talað var um að ungmenni læsu pistil og „ritningarspjall“, hér átti auðvitað að standa pistil og guðspjall. Æskulýðsguðsþjón- ustan í Háteigskirkju verður kl. 2 síðd. í dag. Flateyri, 27. feb. VEGNA frétta I útvarpi og blöð- um um 6 klukkutíma töf læknis að vitja slasaðs manns á Flateyri s.l. sunnudag er rétt að segja ferðasögu læknisins frá Þingeyri þar sem hann býr, til Flateyrar. Vegurinn í Önundarfirði hefur litið verið ruddur í vetur en troð- in slóð svo bændur kæmu afuró- um frá sér. Vegurinn í Önundar- firði var ófær á sunnudeginum og einnig vegurinn í botni Dýrafjarð ar. Hjúkrunarkona, sem býr i Holti var sótt á bát og kom á vettvang eftir tæpan klukkutima. Læknirinn fékk sig fluttan á bát yfir Dýrafjörð en áleiðis yfir Gemlufallsheiði flutti hann bill og síðan traktor. Síðasta áfangann — Mjólkurbland Framhald af bls. 48 bændur gætu þá auðveldlega vit- að hvenær mjólkin frá þeim kæmi til mælinga og athugunar. Þá daga gætu þeir gætt þess að mjólkin væri eðlileg en aðra daga gætu þeir blandað mjólkina án þess að nokkur yrði þess var nema þeir væru þá hreinlega staðnir að verki. Þess vegna væri ákaflega mikið undir heiðarleika bændanna sjálfra komið. Loks hafði Morgunblaðið sam- band við Ásgeir Pétursson, sýslu- mann í Borgarnesi, og spurði hann hvort nokkur kæra hefði borizt út af þessu máli. Hann kvað svo ekki vera en hins vegar hefði sér borizt bréf frá Mjólkursamlag- inu þess efnis, að hann lögskipaði sérstakan eftirlitsmann til að taka sýnishorn af mjólkinni hjá bænd- um á svæðinu. Ásgeir bætti því við, að sér væri heldur ekki kunn- ugt um að öðrum sýslumönnum hefðu borizt kærur út af þessu máli. þingmanna og launin færu síðan hækkandi eftir því, sem þingmenn byggju fjær Kaupmannahöfn. Sverrir Hermannsson tók síðan fram, að þessar greiðslur yróu teknar til athugunar í nefndinni. Rétt væri þó að taka fram, að ýmsir þingmenn eins og t.d. fjár- veitingarnefndarmenn væru svo önnum kafnir allt haustið, að þeir ættu þess engan kost að borða heima hjá sér. Hvar draga ætti línuna í þessu efni væri mikið vafamál. Sverrir sagðist vilja leggja áherslu á, að þessar auka- tekjur hrykkju ekki langt til að mæta kostnaði vegna þeirra feiknalegu umsvifa, er alþingis- menn hefðu. Vinnutími þeirra væri lengri en hjá bænum. (Þing- maðurinn mun hafa tekió þessa viðmiðun vegna blaðaskrifa þar um.) Vegna samanburðar við kjör danskra þingmanna spurði Morg- unblaðið nefndarmenn að þvi, hvort þeir hefðu gert samanburð á fæðispeningum þingmanna, er búsettir væru í nágrenni Reykja- víkur og styrkjum til elli- og Örorkulifeyrisþega. Sverrir Her- mannsson sagði, að svo hefði ekki verið, og spurði á móti, hvort blaðamenn hefðu gert slikan samanburð. Þá sagði Sverrir Her- mannsson, aó þingmenn yrðu fyr- ir kjararýrnun eins og aðrir og þeir myndu ekki njóta launajöfn- unarbóta. á Holtsbryggju varð hann að fá snjósleða. Bátur beið við Holts- bryggju og flutti lækninn til Flat- eyrar. Meðan á ferð læknisins stóð annaðist hjúkrunarkonan hinn slasaða eftir fyrirsögn lækn- isins og sérfræðings á Borgarspit- alanum í Reykjavik. Átta klukku- stundum eftir slysið var hinn slas- aði kominn i umsjón lækna á Borgarspítalanum. Læknirinn fylgdi hinum slasaða á sjúkrahús. Komst læknirinn á þriðjudegi heim aftur, en ekki var flugveður á mánudag. Vegna erfiðleika við að komast á flugvöll hefur verið erfitt að halda uppi flugsamgöngum hing- aó í vetur. Hefur oft ekki verið hægt að fljúga hingað nema tekist hafi að tengja flugið ferð djúp- bátsins frá isafirði, en þaðan kemur hann tvisvar í viku og hef- ur þá um einnar klukkustundar viðdvöl við Holtsbryggju en flug- völlurinn er rétt upp af byrggj- unni. Er það frekar tilviljun að veðráttan fyrir flug og koma djúpbátsins fari saman. Telja menn hættu á, að flugsamgöngur í Holt leggist niður ef ekki tekst að halda uppi betri samgöngum við flugvöllinn en verið hefur i vetur. —Gunnhildur. Mót Votta Jehóva VOTTAR Jehóva gangast fyrir tveggja daga móti hér í Reykjavík um helgina. Mótið hófst i gær, en lýkur i dag. Kl. 4 flytur Laurits Rendboe fyrirlestur er hann nefnir „Nánustu framtíðarhorf- ur“. Mótið er haldið í samkomusal samtakanna að Sogavegi 71. JON M. Baldvinsson listmálari opnaði málverkasýningu ( Kjarvalsstöðum laugardaginn 1. marz kl. 3 og verður sýningin opin til 11. marz. Á sýningunni eru 90 olíumálverk, en flestar myndirnar eru málaðar á tímabil- inu frá 1970—1975, fyrst í Dan- mörku en slðan hér heima eftir 1972. „Ég sæki fyrirmyndirnar", sagði Jón „í skógana í Danmörku og hér heima i grjót og hraun, en hugmyndirnar sæki ég í mig sjálfan." Jön vinnur svo til eingöngu við oliumálun, en hann er með mjög góða vinnustofu við Borgartún. Hann er fæddur i Reykjavík 1927, en 18 ára gamall flutti hann til Hafnar til náms og dvalar. Þar hóf hann nám í söng og ætlaði sér að gerast óperusöngvari og einnig nam hann söng hér heima og jafn- framt söngnáminu nam hann teikningu. Siðar hætti hann söng- Dánartalan hækkar enn London, 1. mars AP — Reuter. TALA þeirra sem fórust i neðan- jarðarlestarslysinu mikla í Lond- on í gær kann að vera allt að 50, að því er björgunarmenn sögðu 1 dag. Enn er unnið við að skera sundur vagnana og I morgun var tala þeirra sem vitað er að hafa látizt orðin 31, og talið var að um tveir tugir lika væru enn i vögn- unum. „Hinir látnu kunna að vera um 40 og jafnvel allt að 50,“ sagði talsmaður björgunarmanna í morgun. — Trúi ekki Framhald af bls. 1 fjárfestingarvarningi. Olíufram- leiðslurikin gætu aukið innflutn- ing sinn meira en upphaflega hefði verið talið og öll ríki Aust- ur-Evrópu sæktust í verulegum mæli eftir vestrænum fram- leiðsluvörum. Þá væru ráðstaf- anir hinna ýmsu ríkja til að efla efnahagslífið farnar að segja til sín. Dr. Klasen varaði hinsvegar við kæruleysi, sagói, að fara yrði að öllu meó gát; ef farið væri of geyst í þenslu, gæti það haft nei- kvæð áhrif á verðbólguþróunina. Dr. Karl Klasen, sem er 63 ára að aldri, hefur haft mikil afskipti af viðræðum fjármálasérfræðinga heims vegna hinna margvíslegu erfiðleika í fjármálum og efna- námi, en hélt áfram að mála i frístundum, aðallega olíumyndir. Árið 1971 hóf Jón nám við Mynd- sýn og þar var Einar Hákonarson aðalkennari hans, en einnig fór hann í námsferóir tii Hollands og Frakklands, en árið 1972 hóf hann nám við Det Jyske Kunst- akademi í Árósum og lagði sér- staklega stund á modelteikningu. Jón hefur sýnt bæði hér heima og erlendis og nú á hann t.d. nokkur verk á samsýningu jóskra list- málara, sem haldin er á vegum danskra fræðsluyfirvalda. Myndirnar á sýningu Jóns M. i Kjarvalsstöðum spanna nokkur timabil á ferli hans sem list- málara, en nokkrar myndir eru t.d. frá 1958, en í suðurhluta sýn- ingarsalarins eru nýjustu myndir listamannsins. „Mér finnst ég véra í stöðugri þenslu,“ sagði hann, „og ég leita inn á við í túlkun minni, er dulspekisinni og ef til vill er það sterkasta hlið myndanna". hagsmálum að undanförnu. Hann var meðal annars að því spurður, hversu mikil hætta væri á því, að iðnaóarþjóðir heims töpuðu í bar- áttunni við verðbólguna vegna nauðsynlegra ráðstafana til að draga úr atvinnuleysi. Hann svaraði því til, að alltaf væru ein- hverjir þeirrar skoðunar, líka sumir efnahagssérfræðingar, að hægt væri að finna varanlega lausn á atvinnuleysi með aukinni þenslu. En þetta fengi ekki staðizt, Meiri háttar verðbólga mundi á endanum leiða til þess að hió frjálsa efnahagskerfi liðaðist sundur. Dr. Klasen sagói, að ráðamenn þjóðbanka væru oft til þess hvattir að sjá efnahagslífinu fyrir meiri hvatningu en heppilegt væri vegna verðbólgunnar, — en í fjölmennum ríkjum gerðu menn sér svo glögga grein fyrir orsök- um og afleiðingum, að fyrr eða síðar komi aó því að þeir lokuðu eyrunum fyrir slíkum ráðum. Hann væri þvi bjartsýnn og hefði ekki trú á, að heimskreppa væri yfirvofandi. — Heimatilbúin Framhald af bls. 1 Samkvæmt upplýsingum PBS hóf stúdentinn smiðina s.l. haust, og lauk henni á fimni vikum. Sér- fræðingur i sænska varnarmála- ráðuneytinu, sem fékk teikningar og útreikninga stúdentsins til um- sagnar, segir að þetta sé i hæsta máta óhugnanlegt, hvort sem sprengjan sé virk eða ekki. Sovézk gagnrýni á FIDE Moskvu 28. febr. AP STARFSMAÐUR sovézka skák- sambandsins hefur gagnrýnt ráðagerðir um sérstaka FIDE- ráðstefnu 18. marz til að f jalla um heimsmeistaraeinvígi Bobby Fischers og Anatoly Karpovs. Boris Rodunov, sem á sæti í stjórn alþjóðaskáksambandsins, segir í grein í blaðinu Sovetsky Sport: „Við leggjumst eindregið gegn hvers konar tilraunum til að knýja fram einhliða ákvarðanir og virðá að vettugi skoðanir og hagsmuni áskorandans." Rodinov segir, að FIDE hafi þegar sett skilyrði fyrir heims- meistaraeinvíginu og Fischer hafnað þeim. Forseti B'IDE, Max Euwe, vill að haldin verði sérstök ráðstefna til að endurskoða leik- reglur. Tryggingamál á Búnaðarþingi BUNAÐARÞING ákvað í gær að fela stjórn Búnaðarfélags íslands að gera hið allra fyrsta athugun á þvi, með hvaða skilmálum yrði hægt að fá eftirfarandi trygging- ar, bæði sem eina heild og sund- urliðaðar á eftirfarandi hátt: a) í formi hóptrygginga, b) í formi skyldutrygginga. 1. Brunatryggingar á heyi. 2) Brunatryggingar á búfé. 3) Brunatryggingar á útihúsum. Niðurstöður þessarar athugunar verði kynntar hreppabúnaðarfé- lögunum strax og þær liggja fyrir. Ekki aðilar að rækjusamkomulaginu MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi athugasemd frá odd- vitum fjögurra hreppa við Húnaflóa: Vegna framkominnar fréttar í dagblaði fimmtudaginn 27. febrúar um samkomulag það, sem væntanlegt var milli sjávarút- vegsráðuneytisins og útgerðar Nökkva á Blönduósi vegna veiða í Húnaflóa, þá viljum við undirrit- aðir oddvitar lýsa yfir að við erum ekki aðilar að því samkomulagi sem gert hefur verið við útgerð Nökkva, enda hefur ekki verið til okkar leitað við lausn þessa máls. Undir þetta rita oddviti Kaldrananeshrepps, oddviti Hólmavíkurhrepps, oddviti Hvammstangahrepps og oddviti Höfðahrepps. Grafíksýning í Grindavík OPNUÐ VAR í gær sýning á grafikverkum Önnu Sigriðar Björnsdóttur i húsi Kvenfélags Grindavíkur, þar sem Tónlistar- skólinn er starfræktur. Þetta er farandsýning, sem fyrst og fremst var ætluð til kynningar á grafík. Myndirnar eru allar unnar í kopar og sink. Eru þær alls 39 að tölu unnar á sióustu sex árum. Áhugi á þessari listgrein fer vaxandi hér á landi, bæði meðal ungra listamanna og listunnenda. Erlendis er hún mikils metin. Sýningin verður einnig opin á sunnudag kl. 14 til 18. Að gefnu tilefni: Ferðasaga læknisins frá Þingeyri til Flateyrar Handknattleikslandsleikur í Laugardalshöll þriðjudagskvöld kl. 20.30 ISUND - TEKKÖSLÚVAKM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.