Morgunblaðið - 29.03.1977, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 29.03.1977, Blaðsíða 45
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1977 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1977 25 VERÐLAUNAHAFAR UM helgina fór fram úrslitakeppnin f 3. deild Islandsmótsins f körfuknattleik og fauk henni með sigri Vestmannaeyinga, sem þar með leika f 2. deild að ári. I úrslitakeppninni sigruðu Vestmannaeyingarnir fyrst UMFS með 83 stigum gegn 80 og sfðan sigruðu þeir Tindastól frá Sauðárkróki með 72 stigum gegn S0. Meðfylgjandi mynd tók Sigurgeir Jónasson af liði IV: Fremri röð frá vinstri: Jóhann Pétur Andersen, þjálfari, Sigurður Davfðsson, Haraldur Júlfusson, Hörður Þórðarson og Tómas Pálsson. Aftari röð frá vinstri: Geir Jón Þórðarson, formaður IV, Friðfinnur Finnbogason, Páll Sveinsson, Haraldur Óskarsson, Sigurður Guðmundsson og Bjarni Gunnarsson. IR-ingar tóku við bikarnum eftir sigur gegn Ármanni í baráttuleik ÍR-ingar urðu fslands- meistarar f körfuknattleik 1977, unnu Ármann í sínum sfðasta leik með 109 stigum gegn 91 í miklum baráttuleik, sem bar þess greinilega vitni að um úr- slitaleik væri að ræða því að leikmenn beggja liða gerðu sig seka um mörg slæm mistök. Þetta er f 16. sinn sem ÍR-ingar verða íslandsmeistarar og ábyggilega ekki sfðasta skiptið. Þorsteinn Hallgrímsson, þjálf- ari ÍR, var að vonum ánægður með titilinn og sagði hann i viðtali við Mbl. að þetta hefði verið dæmigerður úrslitaleikur, mikil barátta hjá báðum liðum, en sömuleiðis alltof mikið af slæmum mistökum. „Ég spáði þessum úrslitum I haust, en því verður ekki neitað að þegar við misstum 3 menn um áramótin bjóst maður ekki við þessu. Mér finnst þetta mót hafa verið jafn- ara en oftast áður og því að vissu leyti skemmtilegra, en hins vegar hefur skipulagningin komið i veg fyrir nægilega aðsókn vegna þes einkanlega hve mótið er leikið á mörgum stöðum og oft á sama tímanum." „Þess má geta að þetta verður liklega síðasta keppnistímabilið mitt í körfuknattleik, mér finnst vera komið nóg.“ I því sambandi er rétt að geta þess að þetta er í 9. sinn sem Þorsteinn verður íslandsmeistari, en auk þess hefur hann orðið Danmerkurmeistari 4 sinnum. ÍR-ingar náðu forystunni 4—2 strax i upphafi leiksins og á 5. minútu höfðu þeir náð 5 stiga forystu, 12—7, og skömmu síðar var staðan orðin 18—11 en Ármenningar voru ekki á því að gefa sig og þeim tókst að jafna 20—20 á 12. mínútu. Það dugði reyndar skammt því að ÍR-ingar náðu forystunni strax aftur og leiddu til leikhiés, og höfðu þá yfir, 54—45. Seinni hálfleikur var svo allur ÍR-inganna og áttu Ármenningar aldrei möguleika gegn baráttu- glöðu ÍR-liði, þó að þeim tækist af og til að minnka muninn nokkuð. Minnsti munur i seinni hálfleik var 9 stig um miðjan hálfleikinn, 71—80 og höfðu Ármenningar þá náð að pressa tR-ingana stíft, en þá fékk Jon Sigurðsson sína 5. villu og þar með má segja að möguleikar Ármanns hafi endan- lega orðið að engu og ÍR-ingar unnu yfirburðasigur 109—91. Sigur ÍR-inga byggðist fyrst og fremst á mikilli baráttu allra liðsmanna og svo á góðum leik þeirra Kristins Jörundssonar og Þorsteins Hallgrímssonar, en auk þess áttu þeir Jón Pálsson og Kolbeinn Kristinsson góðan leik. Af Ármenningum átti Atli Arason beztan leik ásamt Jóni Sigurðssyni og Birni Christiansen. Stigin fyrir ÍR skoruðu: Kristinn Jörundsson 35, Kolbeinn Kristinsson 22, Þorsteinn Hallgrímsson 16, Jón Pálsson 15, Agnar Friðriksson 11, Jón Jörundsson 7, Steinn Logi Björns- son og Stefán Kristjánsson 2 hvor. Fyrir Ármann skoruðu: Atli Arason 28, Jón Sigurðsson 19, Björn Christiansen 16, Björn Magnússon 9, Guðmundur Sig- urðsson og Jón Björgvinsson 6 hvor, Hailgrimur Gunnarsson 4, Erlendur Eysteinsson 2 og Haraldur Hauksson 1 stig. H.G. lR — lslandsmeistari í körfuknattleik 1977. Efri röð frá vinstri: Þorsteinn Guðnason, Hólmsteinn Sigurðsson, Sigurður Gfslason, Jón Jörundsson, Jón Pálsson, Stefán Kristjánsson, Agnar Friðriksson. Neðri röð frá vinstri: Kristinn Jörundsson, Kristján Sigurðsson, Steinn Logi Bjarnason, Þorsteinn Hallgrfmsson og Kolbeinn Kristinsson. KRISTINN Jörundsson var fyr- irliði íslandsmeistaranna, IR, og var einnig valinn bezti leik- maður ársins af körfuknatt- leikssambandinu auk þess sem útgefendur „Körfunnar" völdu hann „dýrmætasta" leikmann keppnistímabilsins. Kristinn: „Maður getur ekki verið annað en ánægður með þennan árangur, við ÍR-ingar stefnum alltaf hátt og við ætl- uðum okkur að vinna mótið strax i upphafi, en vissulega var maður ekki allt- af viss um að það tækist. Ég tel að við ÍR- ingar getum fyrst og fremst þakkað þennan árangur því hve við höfum marga leik- reynda einstaklinga en auðvitað höfum við einnig æft vel, einkum eftir áramótin. Hvað val mitt varðar sem bezti leikmaður keppnistíma- bilsins lit ég á það sem viður- kenningu, ekki eingöngu á frammistöðu minni, heldur liðs- ins í heild. Maður á aldrei betri leik en félagarnir leyfa og auðvitað leikur maður fyrir lið sitt en ekki sjálfan sig, það byggjast allar flokkaíþróttir á samstarfi og það má segja að allir leikmenn liðsins séu nauð- synlegir hlekkir á þeirri keðju sem tengir liðið saman og gerir það að einni heild. Ég er að sjálfsögðu mjög ánægður með þennan mikla heiður sem mér er sýndur og það að þetta kom mér algjörlega á óvart spillir auðvitað ekki ánægjunni.“ BJARNI Gunnar Sveinsson var að þessi sinni stigahæsti leik- maður mótsins, skoraði hvorki meira né minna en 404 stig eða 28 að meðaltali, sem vissulega er mjög gott. Bjarni: „Ég þakka samherj- um mínum þennan árangur, maður skorar ekki meira af stigum en samherjinn gefur tækifæri til. Þegar leikið er sem miðherji er oft erfitt að koma knettinum inn á mann og þá er það að miklu leyti kom- ið undir hæfi- leikum samherj- anna hvernig það gengur. Einnig ber að at- huga eitt og það er, að ef aðeins er um að ræða einn afgerandi miðherja reynist andstæðingunum mun auðveldara að dekka hann og þeir geta þá frekar sleppt þeim sem eru 'slakari, en við stúdentar höfum mann sem heitir Jón Héðinsson og hann er leikmaður sem aldrei má lita af og góð frammistaða hans hef- ur gert það að verkum að meira losnar um mig og ég fær því fleiri tækifæri til að skora.“ JÖN Jörundsson hlaut verðlaun fyrir beztu vita- hittnina 3. mótið í röð, en auk þess varð hann Islandsmeistari með liði sínu ÍR. Jón: „Ég er vissulega ánægður með þennan árangur, bæði minn og ekki síður með Islandsmeistaratitil- inn. Hvað minn árangur í vita- hittninni snertir þá þakka ég hann að mestu leyti tveimur mönnum, þeim Einari Ólafs- syni og Kent Finnegar, en þeir þjálfuðu mig sérstaklega í þessu atriði þegar ég var yngri, en auk þess leggjum við IR- ingar mikla áherzlu á öll skot og vitahittni er þar ekki undan- skilin, enda erum við með beztu vitahittnina af öllum liðunum." JÓN Otti Ólafsxon var af útgef- endum „Körfunnar" valinn bezti dómarinn á þessu keppnistímabili. Jón Otti: „Ég tel að þrátt fyr- ir þessa útnefningu sé ég ekk- ert betri en hinir, ég hef bara verið meira í sviðsljósinu og dæmt meir en flestir þeirra og hef að sjálfsögðu notið þess. Þá er ég einnig sannfærður um það að við sem höfum leikið körfuknattleik áður en við hóf- um að dæma sé- um betur undir starfið búnir og við þekkjum að sjálfsögðu mjög vel flest þau brögð sem leik- menn beita. Mér finnst ákaflega gaman að hafa hlotið þennan heiður, það sýn- ir að menn hafa áhuga á dómarastarfinu, fylgjast með því og kunna að meta störf okk- ar dómaranna, en lita ekki allt- af á okkur sem eins konar grýlur og kenna okkur um að hafa ekki unnið þennan og þennan leik. Ég tel einnig að þetta hafi þau áhrif á dómara að þeir reyni að bæta sig og gera alltaf sitt bezta og það er ákaflega ánægjuleg þróun að mínu mati og nauðsynleg.“ Frá 1. apríl gilda ný afsláttarfargjöld, sem viö köllum „almenn sérfargjöld”. þau eru 25 - 40% lægri en venjuleg fargjöld og eru eingöngu háð því skilyrði aó dvalartími erlendis sé lágmark 8 dagar og hámark 21 dagur (í flestum tilfellum). „ Almenn sérfargjöld” gilda allt árið á flugleiðum frá íslandi til 57 staða í Evrópu. 25-40% LÆGRI FARGJÖLD SEM GILDA ALLTÁRIÐ FLUCFÉLAC L0FTLEIDIR LSLANDS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.