Morgunblaðið - 26.03.1980, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. MARZ 1980
31
r
• Símon Ólafsson og Kristinn Jörundsson bitast um knöttinn. í
gærkvöldi voru þeir samherjar og voru í hópi beztu manna íslenzka
liðsins.
Valur vann Þór
VALSSTÚLKURNAR brugðu sér
norður á Akureyri um helgina og
unnu góðan sigur á stöllum
sínum í Þór. í fyrstu deild,
16 — 14, eftir að staðan hafði
verið 9—7 fyrir Val í hálfleik.
Valsstúlkurnar höfðu ávallt
frumkvæðið í leiknum en þó náðu
Þórsararnir að jafna í seinni
hálfleik 11 — 11. En þá sigu Vals-
ararnir aftur framúr og sigur
þeirra varð staðreynd. Leikurinn
í heild var ekki vel leikinn og
ekki beint fyrir augað. En þó
kom tími í seinni hálfleik sem
lifnaði örlítið yfir leiknum en sú
dýrð stóð ekki lengi og féll allt í
sama farið á ný. Bestar hjá Þór
voru þær Harpa Sigurðsdóttir og
Magnea Friðriksdóttir. Hjá Val
var Erna Lúðvíksdóttir best.
Dómarar voru þeir Halldór
Rafnáson og Ingvar Viktorsson og
áttu þeir slæman dag og setti það
talsverðan svip á leikinn.
Mörk Vals: Erna Lúðvíksdóttir
6 (lv), Harpa Guðmundsdóttir 4,
Ágústa Ragnarsdóttir 3, Karen
Guðmundsdóttir 1, Sigrún Berg-
vinsdóttir og María Jónsdóttir 1.
Mörk Þórs: Harpa Sigurðsdóttir
7 (3), Þórunn Sigurðsdóttir 3,
Valdís Hallgrímsdóttir 2, Magnea
Friðriksdóttir 1 og Guðný Berg-
vinsdóttir 1.
Unglingalands-
liðsmenn í Víking
VÍKINGAR hafa fengið tvo unga
og efnilega leikmenn til liðs við
sig. Þeir Hafþór Sveinjónsson,
unglingalandsliðsmaður úr
Fram og Hermann Jónsson, einn-
ig unglingalandsliðsmaður en úr
KR gengu frá félagaskiptum um
helgina.
Víkingar æfa nú undir stjórn
Pólverjans Bogdans Kowalczyk.
Hinn nýi þjálfari Víkinga, Youri
Sedov er væntanlegur til landsins
á næstu dögum og tekur við
yfirþjálfun hjá meistaraflokki og
einnig 2. flokki. Víkingar fara í
æfingabúðir um páskana til
Englands.
Þrír Ieikmenn Víkings hafa
gengist undir uppskurð nýverið,
— allir á hné. Það eru þeir óskar
Tómasson, sem átt hefur við
langvarandi meiðsli að stríða og
þeir Lárus Guðmundsson og Ósk-
ar Þorsteinsson. H. Halls.
Getrauna- spá M.B.L. 2 ■c s jr C 3 Suc 1- 3 £ Sunday Mirror Sunday People Sundav Kxpress News of the world Sunday Telegraph SAMTALS
1 X 2
Brighton — Nott. Forest 1 2 X 2 X 2 1 2 3
Bristol City — Middlesbr. 1 X 2 2 X 2 1 2 3
Coventry — Wolves 1 X 2 2 X X 1 3 2
C. Palace — Man. Utd. 2 X X X X 1 1 4 1
Ipswich — Derhy X 1 1 1 1 1 5 1 0
Man. City — Bolton X 1 1 1 2 1 4 1 1
Southampton — Norwich 1 1 1 1 1 1 6 0 0
Stoke — Aston Villa 2 X 1 X 1 1 3 2 1
Tottenham — Liverpool 1 2 2 2 2 2 1 0 5
WBA - Leeds 1 X 1 1 1 X 4 2 0
Notts. County — Sunderland 2 2 X X X X 0 4 2
Swansea — West Ham 1 2 2 2 X X 1 2 3
Furðudómur tryggði
Armenum sigurinn
ísland — Sovétríkin
96:98
ÍSLENZKA landsliðið í körfu-
knattleik varð að lúta í lægra
haldi fyrir landsliði Armeníu í
iþróttahúsinu í Njarðvík í gær-
kvöldi í skemmtilegum og geysi-
spennandi landsleik. Lokatölurn-
ar urðu 98:96 Armenum í vil og
skoruðu þeir tvö síðustu stigin úr
vitaskotum þegar aðeins voru
eftir 2 sekúndur af leiknum. Rétt
áður hafði verið dæmd mjög
umdeild villa á islenzka liðið af
sovézka dómaranum Sarkisscan
og vildu margir meina að hann
hefði þar verið að tryggja sínum
mönnum sigurinn.
Það var vissulega sorglegt að
tapa þessum leik fyrir sovézka
100. lands-
leikurinn í
körfuknatt-
leik í kvöld
SÍÐASTI . leikur armenska
landsliðsins i þessari heimsókn
hingað verður i Laugardalshöll
í kvöld klukkan 20. Þá mætir
það islenzka landsliðinu. Leik-
urinn í kvöld verður 100. lands-
leikur íslands í körfuknattleik
og verður væntanlega mikið um
dýrðir. Munu landsliðsmenn
okkar leggja allt í sölurnar til
þess að vinna sigur í þessum
afmælisleik.
landsliðinu. íslenzka liðið kom
nefnilega mjög ákveðið til leiks og
hafði náð öruggri forystu um
miðjan fyrri hálfleikinn, mest
þrettán stiga mun. En þá urðu
afdrifarík mistök í innáskipting-
um, öllu byrjunarliðinu skipt útaf
og óreyndari menn settir inná. Og
áður en menn höfðu áttað sig var
staðan orðin jöfn en í hálfleik var
staðan 55:52 Islandi í vil.
Seinni hálfleikurinn var gífur-
lega jafn allan tímann. Oftast var
jafnt en aldrei skildu meira en 3
stig liðin. Undir lokin náðu Arm-
enarnir þriggja stiga forystu en
Guðsteini Ingimarssyni tókst með
þrautseigju að jafna metin 96:96
þegar 12 sekúndur voru eftir. En á
lokasekúndunum tróðst gamli
skipperinn Zactuchov upp að Guð-
steini og landi hans með flautuna
var ekki lengi að blása í hana og
dæma vítaskot. Sannarlega um-
deildur dómur.
Islenzka liðið lék á köflum
skínandi vel og átti sigur skilið.
Vafalaust mun það standa sig vel
á Polar cup í Noregi. Beztp menn
liðsins voru Pétur, Símon, Krist-
inn og Guðsteinn og Flosi sýndi
góða takta.
Stig íslands: Pétur Guðmunds-
son 28, Símon Ólafsson 21, Krist-
inn Jörundsson 15, Guðsteinn
Ingimarsson 11, Flosi Sigurðsson
7, Jón Sigurðsson 6, Jónas Jóhann-
esson 6, Gunnar Þorvarðárson 2.
Stigahæstir Armena voru Tuch-
ikian með 31 stig, Agadianian með
23 stig og Zactuchov með 20 stig.
Kristbjörn Albertsson og fyrr-
nefndur Sarkisscan dæmdu leik-
inn. Sovétmaðurinn dæmdi yfir
höfuð vel en einstaka dómar á
mikilvægum augnablikum voru
vafasamir og vöktu furðu.
-SS.
Handknatt-
leikur
í kvöld
ÞRÍR leikir fara í kvöld fram i
íslandsmótinu í handknattleik,
einn í 1. deild karla, einn í 2.
deild karla og sá þriðji í 1. deild
kvenna.
í Hafnarfirði eigast við FH og
Haukar í 1. deild klukkan 20.00
og strax að þeim leik loknum
leika Haukar og KR í 1. deild
kvcnna. Þá eigast við Aftureld-
ing og Þróttur að Varmá og hefst
leikurinn klukkan 19.15.
12 ítalskir knattspyrnu-
menn settir í steininn
12 ítalskir knattspyrnumenn
hafa verið handteknir á Ítalíu
síðustu dagana. meðan dómsvald-
ið þar í landi rannsakar eitthvert
mesta hneykslismál sem upp hef-
ur komið á Ítalíu og þótt víðar
væri leitað í knattspyrnuheimin-
um.
Þetta hófst allt á því, að tveir
tipparar úr röðum óbreyttra borg-
ara ásökuðu ýmsa leikmenn um að
reyna ekkert allt of mikið á sig í
leikjum. Gáfu þeir í skyn, að'
mútur væru á kreiki. Þegar orðið
„mútur" fór af stað , varð allt
vitlaust og nú er búið að loka tólf
Hafþór Sveinjónsson, — í
Víking.
fótboltamenn inni meðan þeir eru
yfirheyrðir. Meðal þeirra eru
frægir karlar, svo sem landsliðs-
maðurinn Bruno Giordani hjá
Lazío, Ricardo Albertosi, mark-
vörður meistaraliðsins AC Mílanó,
Felice Colombo forseti AC Mílanó
svo einhverjir séu nefndir. Þá mun
vera ætlun yfirvalda að yfirheyra
sjálft goðið Páolo Rossi miðherja
Perugia og ítalska landsliðsins.
Verði einhverjir sekir fundnir,
verða þeir sömu vafalítið dæmdir í
ævilangt bann frá knattspyrnu-
Reykjavíkurmótið í alpagrein-
um á skíðum fór fram um helgina
og var haldið í Hamragili. Fór
mótið fram í blíðskaparveðri, en
þó í nokkru harðfenni. Fjöldi
keppenda var skráður til leiks og
þó að dálítil brögð væru að því að
menn mættu ekki til keppni varð
yfirleitt fjörug keppni í flestum
flokkum. Röð og timi þriggja
bestu í hverjum flokki varð sem
hér segir:
Stúlkur 13—15 ára, stórsvig: sek.
1. Dýrleif A. Guðmunds Á 128,50
2. Inga Hildur Traustad. Á 129,85
3. Guðrún Björnsdóttir Vík. 130,79
Drengir 15—16 ára, stórsvig: sek.
1. Tryggvi Þorsteinsson Á 115,98
2. Jónas Valdimarsson ÍR 121,42
3. Steingrímur Birgisson ÍR 121,71
Drengir 13—14 ára, stórsvig: sek.
1. Þórhallur Reynisson Á 129,52
2. Baldvin Valdimarsson Á 129,91
3. Hermann Valsson ÍR 129,92
afskiptum. Og verði forseti AC
Mílanó sekur fundinn um að hafa
þegið mútur eða eitthvað slíkt er
talið víst að félag hens verði dæmt
til þess að leika í 2. deild næsta
keppnistímabil. Það er því aug-
ljóst að ítalir líta mál þetta
engum vinaraugum.
Italska deildarkeppnin verður
þó ekki látin líða fyrir hneykslið.
Sex umferðir eru eftir og er
titillinn svo gott sem í höfn hjá
Inter Mílanó, sem á engan leik-
mann bendlaðan við mál þetta.
Stúlkur 13—15 ára. svig: sek.
1. Tinna Traustadóttir A 82,84
2. Rósa Jóhannsdóttir KR 84,61
3. Ásta Óskarsdóttir Á 86,88
Drengir 13—14 ára, svig: sek.
1. Gunnar Helgason ÍR 76,79
2. Hermann Valsson ÍR 82,71
3. Ásmundur Helgason ÍR 85,46
Drengir 15—16 ára, svig: sek.
1. Tryggvi Þorsteinsson Á 78,40
2. Jónas Valdimarsson ÍR 83,00
3. Kristján Jóhannsson KR 83,60
í alpatvíkeppni. stúlkna 13—15
ára sigraði Tinna Traustadóttir
með 26,13 stig, Rósa Jóhannsdóttir
varð önnur með 32,99 og í þriðja
sæti varð Guðrún Björnsdóttir. í
alpatvíkeppni drengja 13—14 ára
sigraði Gunnar Helgason með
27,50, Hermann Valsson varð
annar með 60,31. Loks sigraði
Tryggvi Þorsteinsson í alpatví-
keppni drengja 15—16 ára með
0,00. Jónas Valdimarsson varð
annar með 80,19.
Hart barist á
Rk-móti unglinga