Morgunblaðið - 22.06.1980, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 22.06.1980, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ1980 FÁGUN OG ATORKA Punktar á yfirlitssýningu Gerðar Helgadóttur Gerður Helgadóttir Hugurinn reikar rúma þrjá áratugi aftur í tímann er sá er hér ritar sest niður til að fjalla um yfirlitssýningu Gerðar Helgadóttur. Honum er í fersku minni, er Gerður varð fyrst á vegi hans neðarlega á Laugaveg- inum og beygði svo inn í Ing- ólfsstræti í átt að Grundarstígn- um, þar sem Handíða og Mynd- listarskólinn var til húsa á þeim árum. Fyrir dularfulla tilviljun endurtók þetta sig alloft, og ég veitti einhverra hluta vegna þessari ungu stúlku sérstaka athygli. Þótti hún skera sig úr fjöldanum og horfa mikið og af athygli í kringum sig. Ég held, að hún hafi einnig tekið eftir mér, því að við mættumst svo oft á þessum slóðum og áttum það sameiginlegt að rýna mikið á fólk og umhverfið. Ég uppgötv- aði fljótlega, að þessi ákveðna, kraftalega en þó um leið fín- gerða stúlka stundaði nám í framhaldsdeild myndlistar við Handíða og Myndlistaskólann og væri býsna efnileg. Ekki minnk- aði forvitni mín á persónunni við þær fréttir því að ég bar andukt- uga virðingu fyrir þeirri stofnun, er þá var að slíta barnskónum, og öllum þeim, er höfðu náð þeim mikla áfanga að vera teknir í framhaldsdeildina og yfirhöfuð í skólann sjálfann. Svo atvikaðist það, að ég var tekinn í smíðadeild eins og til að kanna listræna hæfileika mina. Þá vildi svo til, að Gerður gekk oft ca. 20 metrum á undan mér Ingólfs strætið á morgnana á leið í skólann, en ég þorði ekki fyrir mitt litla líf að reyna að stofna til persónulegra kynna, til þess var ég alltof feiminn og ófram- færinn á þeim árum og bar að auki svo ómælda virðingu fyrir færni hennar í myndlistinni, — þótti hún sem af öðrum heimi. Þetta var sem sagt forðum daga, er allt var miklu smærra í sniðum en í dag, fjarlægðirnar meiri og heimurinn stórkostlegt ævintýri, auk þess sem að virð- ingin fyrir þeim er fram úr sköruðu, var í hámarki. — Þetta var og löngu fyrir dýrkun meðalmennskunnar, sameinaðs framhaldsskóla, ein- ingakerfis og innrás hálærðra reglustrikafræðinga á öll mögu- leg svið, skólarannsókna, kröfu- gerða nemanda, námslána o.s.frv.... Gerður var mjög bráðþroska á myndlistarsviðinu, svo sem skólavinna hennar er til marks um, en hluti hennar er til sýnis á yfirlitssýningunni að Kjarvals- stöðum. Er næsta ótrúlegt, hví- líka færni sumir sýndu í þá daga eftir tveggja ára nám, sem var skipulagt eftir þörfum, aðstæð- um og hendinni hverju sinni, — námstafla var engin og því síður skriflegar útskýringar á náms- efninu né langar útlistanir fyrir- fram. Menn skyldu upplifa hlut- ina sjálfir og vandamálin voru tekin til meðferðar eftir þeirri röð, er þau komu upp, reynt að greiða úr þeim án nokkurs viður- kennds fræðilegs staðals. Hér skipti meginmáli að þjálfa nem- endur sem best í undirstöðu- atriðum myndlistar og menn náðu jafnvel betri árangri og voru betur undirbúnir fyrir Stúlka, brons, Florens 1948. framhaldsnám erlendis en eftir fjögurra ára nám í dag, Sem þó er þrautskipulagt bak og fyrir. Það mun hafa verið alveg ljóst á námsárum Gerðar, að hún átti öðru fremur heima í skúlptúrlist og atvik höguðu því svo, vegna synjunar um námsstyrk til Kaupmannahafnar, að hún hélt til Flórenz á Italíu, styrkt af samstarfsmönnum föður hennar hjá Sölumiðstöð hraðfrystihús- anna. Hún tekur próf inn í Listaháskólann og „flaug inn“, að því er annálar herma. A sama tíma settist ég í myndlistardeild Handíðaskólans og þangað fóru fljótt að berast frægðarsögur af Gerði, fyrst frá Flórenz, þar sem hún sótti stíft á brattann, vann eins og berserkur þrátt fyrir vetrarkuldann, er nísti í merg og bein í lélegum húsakynnum. Svo hagar til, að iðulega er mjög kalt í Flórenz á veturna vegna mikils skarðs í Apenníafjöllum hátt fyrir ofan borgina en í gegnum það næða óhindrað kaldir, úrsvalir vetr- arvindar ofan úr hálendinu. Gerður tolldi ekki heidur nema í eitt ár í Flórenz en gerði þar ótrúlega margt fagurra mynda, ríkar af yndisþokka og form- rænni fegurð og þá þegar hefur hún öðlast þau fíngerðu persónueinkenni er ganga eins og rauður þráður í gegnum feril hennar allan í hvaða stíl eða efni sem hún vann. Trúlega voru það mistök hjá Gerði, að dvelja ekki lengur á Ítalíu því að á þeim árum var höggmyndalistin þar í rífandi framþróun. Menn eins og Marinó Marini, Giacomo Manzú, Emilio Greco o.fl. höfðu sótt í smiðju hinna merkilegu Etrúska og unnu út frá þeirri reynslu á nútímavísu líkt og Henry Moore í Englandi. Allir lögðu þeir líka mikla áherzlu á teikninguna og frumrissin, sem er atriði sem vantar mikið í íslenzka skúlptúrlist. Mætti jafnvel ætla að þróunarferill Gerðar hefði orðið allt annar ef hún hefði uppgötvað þessa menn, en það er alveg óvíst að Myndllst ef tir BRAGA ÁSGEIRSSON LISTAHATÍO 1980 hún hafi vitað af þeim, og listaháskólinn í Flórenz mun hafa verið mjög íhaldssamur á þeim árum. Yfirfullur af börnum ríkra manna og aðalsfólks er komu skartklædd til kennslu. Piltar jafnvel í röndóttum dípl- ómatfötum og í oddmjóum lakkskóm og stúlkur í módelkjól- um! Þetta hefur auðvitað ekki átt við Gerði, en Flórenz er nú ekki Ítalía öll og menn lifa þar ekki endalaust á fornri frægð frekar en annars staðar. Næst fréttist af henni í París, þar sem hún var orðinn nemandi hins fræga myndhöggvara Ossip Zadkine, er var þá mjög dáður og nú var hún farin að sýna á fínum stöðum líkt og Galerie Saint Placide, Paris, og Salon de Mai Menntaskólinn á Akureyri varð aldargamall nú í vor eins og minnzt hefur verið. Það er ekki lítill aldur, — jafnvel þótt þjóð- arsagan sé höfð til viðmiðunar og óratími borið saman við mannsævina. Á slíkum tímamót- um eru vitaskuld haldnar langar ræður og strangar, — og undir þvílíkum lestri í íþróttaskemm- unni á Akureyri var þessi staka ort á þjóðhátíðardaginn við skólaslitin: Skóli, þú undarleg örlög hlauzt, aldargamall með vetur í tpori. Þú táir til þroika sérhvert haust og sjálfsagt uppskerö stúdent að vori. Á mínum menntaskólaárum héldum við uppi vísnaþætti, sem ég veit ekki betur en hafi verið hinn fyrsti í Munin og var lengi við lýði upp úr því. Við Ari heitinn Jósefsson gerðum það oft að yrkja saman og sjálfsagt höfum við verið ánægðir með sjálfa okkur eftir að hafa böggl- að saman „Búnaðarbálki hinum nýja“ í þriðja bekk og var hver vísa kennd við árstíðirnar. Hin fýrsta var tileinkuð sumrinu: Á kirkjubekknum sálma syngur sveitafólkið velsignað, en úti í hlöðu ástarglingur á sér vísan samastað. Um haustið sögðum við: Svanir þagna, sumri hallar, sól að ægi hnígur rauð. Af blóði fyllast bóndans dallar, blessuð lömbin falla dauð. Einhvern veginn finnst mér á þessu, að við höfum þá þegar verið harðir andstæðingar heimaslátrunar, — og líka ímyndað okkur, að útigangshest- ar væru gjarna brúkunarhross. Þessi vísa er um veturinn: í baðstofunni er bænalestur, bylur úti stormahregg. Dauðasoltinn dráttarhestur drepst á meðan upp við vegg. Og í vorvísunni kennir ríkrar samúðar með hjarninu: Hjarnið grætur, grænka hagar, gægist vor úr hamraþröng. Kuldabólginn kjarrvið nagar kalin vankarollan svöng. Vitaskuld er maður ragur við að endurprenta eftir öll þessi ár vísur frá skólaárunum, ekki sízt eftir gamla vini og félaga, sem eiga sér einskis ills von. En fram hjá manni fer ekki, að þá eins og núna hefur oltið á ýmsu í henni veslu: Að feigaðarósi flýt ég glaður, forsjá gleymi. Andskotinn er yfirmaður alls í heimi. Auðvitað vorum við fullir af heimssorg og kvíða á þeim árum eins og ungir menn eru endra- nær. Eg man ekki hver sagði: Og við kunnum líka að skensa hver annan, eins og þessi vísa ber með sér, sem ort hefur verið um virðulegan dómara og um hríð sýslumann í forföllum, sem er nú búsettur í Hafnarfirði: Dimm er mörkin. Degi hallar, Dapur ág geng um skóg. Dauðinn til mín kaldur kallar: Kom þú hefur lifað nógl En líka bráði af okkur á milli svo að náttúran sagði til sín: Orðin falla á ýmsa vegu eftir ftokksins stundarhöfum. Gleraugun sín gáfulegu gengur hann með á sunnudögum. Hann borgaði aftur vel fyrir sig: Fer úr böndum flimt og níð festu höndin tapar. Stirð er önd við stöku smíð, stjarna Blöndals hrapar. Á þessum árum ortust á nem- endur úr M.A. og M.R. Jón Einarsson orti: Tíminn líður áfram enn, ykkur þrýtur rökin. Ekki þreytast okkar menn eða linnast tökin. Gísli Jónsson menntaskóla- kennari leit inn og leit raunar líka yfir skáldskapinn. Þá varð honum að orði: Dauft er blandað dvergafull, dvínar andagift og snilli. Illa vandað sónarsull sendist landsfjórðunga á milli Mér er orðin mikil þörf á meynni þýöu, verst er aö þurfa að standa í stríöu við stúlkurnar um þeirra blíðu. Og enn fremur: Enginn veit hvað ástin má ef þú leitar hlýju úti í beitarhúsum hjá hýrri sveitapíu. Á eftir svona dýrum skáldskap gjörir maður það ekki af gamni sínu að slá á léttari strengi. Jón L. Halldórsson á Akureyri er fimur smiður glerhúsa: Hvort líkist Loch Ness Helgu Kress eða Guðrúnu frá Lundi á sundi. Hann bregður líka fyrir sig limrunni, ef því er að skipta: Mælti Lyngný litla frá Bakka, „mig langar að eignast krákka með Halldóri Blöndal eða Benedikt Gröndal, því þeim á ég ekkert að þakka.“ Ekki verður meira kveðið að sinni. H.B. Reiðhjól- um stolið TVEIMUR reiðhjólum var stolið frá Hörðalandi 24 fyrir um tveimur mánuðum síðan og þrátt fyrir ítarlega leit hefur aðeins annað hjólið fundizt fram til þessa. Það fannst fyrir um mánuði síðan í Blesugróf og var þá talsvert skemmt. Tveir bræður eiga þessi hjól og annan vantar ennþá sinn farkost. Hjólið, sem saknað er, er appelsínu- rautt á lit, en að öðru leyti eins og það, sem myndin er af. Þeir sem geta gefið upplýsingar um reiðhjólið eru beðnir að hringja í síma 35561. r®

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.