Morgunblaðið - 28.01.1982, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 28.01.1982, Blaðsíða 1
48 SIÐUR 21. tbl. 69. árg. FIMMTUDAGUR 28. JANUAR 1982 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Haig og Mubarak ræðast við í dag Jerusalcm, 27. janúar. Al\ HAI(i utanríkisráðherra Bandaríkjanna átti í dag við- ræður við ísraelska ráða- menn um leiðir til að leysa deilu ísraelsmanna og Eg- ypta um sjálfstjórn Palest- ínuaraba á herteknu svæðun- um í Israel. Burg innanríkisráðherra Isra- els, sem er helzti samningamaður ísraels í þessu máli, sagði eftir viðræður við Haig, að sumt af því sem fram hefði komið í tillögum Bandaríkjamanna væri gagnlegt, annað ekki. Bandarískir embættismenn sögðu eftir viðræðurnar, að það virtist afar fjarlægur möguleiki, að samkomulag takist fyrir 25. apríl, en þá eiga ísraelsmenn að afhenda Egyptum síðasta skikann af Sínaískaga, sem þeir ráða yfir. Haig fer til Kaíró á morgun, fimmtudag, og mun eiga þar við- ræður við Mubarak forseta Egyptalands um stöðu þessara mála. Koivisto tekinn við forsetaembætti Mauno koivisto sver embættiseið sem næsti forseti Finnlands. Við hlið hans er Johannes Virolainen, forseti finnska þingsins. Koivisto er nú sem forseti einnig æðsti yfirmaður herafla Finnlands. Hér sést forsetinn kanna heiðursvörð framan við finnska þinghúsið að lokinni embættistöku í gær. Til vinstri á myndinni er Lauri Sutela hershöfðingi, yfirmaður finnska hersins. (Simamyndir ai>.) Erfid stjórnar- myndun framund- an í Finnlandi Helsinki, 27. janúar. Krá llarry (•ranher, fréltarilara Mhl. MAUNO KOIVISTO sór í dag embættiseið sinn sem næsti forseti Finnlands. í ræðu er hann flutti við þetta ta>kifæri sagðist hann mundu standa fyrir utan og ofan við stjórnmálaflokkana. Hann sagðist mundu standa vörð um þá utanrík- isstefnu, sem fyrirrennarar hans Kekkonen og Paasikivi hefðu markað og stuðla að sem beztu samstarfi við nágrannaríki Finnlands. Eitt af fyrstu embættisverkum Glemp erkibiskup fer til viðræðna við páfa í Róm Varsjá, Páfagarði, 27. janúar. Al\ JöZEF Glemp erkibiskup, yfir maður kaþólsku kirkjunnar í Póllandi, er væntanlegur til Róm- ar í næstu viku þar sem hann mun eiga viðræður við Jóhannes Pál páfa 2. Kirkjunnar menn í Pól- landi skýrðu frá þessu í dag. Tveir aðrir biskupar verða í föruneyti Glemps, og að auki Macharski kardináli, sem tók við af páfa sem erkibiskup í Kraká. Evrópuráðið fordæmdi í dag harðlega valdatöku hersins í Pól- landi og skoraði á Evrópuríki að Segir stjórn írlands af sér? Duhlin, 27. janúar. Al\ ALLT benti til þess í kvöld, að Garret Fitzgerald, forsætisráðherra írlands, mundi segja af sér eftir að þingið hafði fellt fjárlagafrumvarp stjórnar hans. Stjórn Fitzgeralds hefur aðeins verið við völd í sex mánuði. í at- kvæðagreiðslunni í þinginu brugð- ust nokkrir óháðir þingmenn for- sætisráðherranum þannig að frum- varp hans féll með eins atkvæðis mun. Búizt er við að Fitzgerald leggi til við Hillery, forseta lands- ins, að boðað verði til nýrra kosn- inga. grípa sameiginlega til pólitískra og efnahagslegra aðgerða gegn Póllandi og Sovétríkjunum. í ályktun ráðsins er jafnframt skor- að á aðildarríkin að veita Pólverj- um neyðaraðstoð en þó ekki fyrir milligöngu herstjórnarinnar í Varsjá. Ljóst er nú að nokkrir pólskir listamenn munu taka þátt í sjón- varpsdagskránni bandarísku, sem helguð verður Póllandi á sunnu- dag og sjónvarpað verður um víða veröld, M.a. mun nóbelsverðlauna- skáldið Czeslaw Milosz lesa úr verkum sínum og píanóleikarinn Adam Mackowicz leika eigin verk. Stjórnmálaforingjar frá fjölda landa munu koma fram í þættin- um. Koivistos var að biðja starfsmenn ' forsetaembættisins í tíð fyrirrenn- ara hans að gegna störfum áfram. Hefur þetta mælzt misjafnlega fyrir innan flokks Koivistos, jafnaðar- mannaflokksins. Finnska ríkistjórnin baðst í dag lausnar. Viðræður um myndun nýrr- ar stjórnar hefjast í næstu viku, en talið er ólíklegt að takist að mynda nýja stjórn fyrr en eftir fund mið- stjórnar kommúnistaflokksins í lok næstu viku. Almennt hefur verið talið líkleg- ast að sömu flokkar og stóðu að rík- isstjórn Koivistos áður en hann varð forseti myndi nýja stjórn með ann- arri skiptingu ráðuneyta. Þannig hefur verið talið eðlilegt að mið- flokkurinn fengi forsætisráðuneytið en jafnaðarmannaflokkurinn emb- ætti utanríkisráðherra sem mið- flokkurinn hefur nú. Formaður mið- flokksins, Paavo Veyrinen utanríkis- ráðherra, er sagður óánægður með þessa lausn, þar sem hann hefur ekki verið nefndur sem forsætisráð- herraefni. Kommúnistaflokkurinn á einnig við innanflokks vandamál að stríða, þótt formaður hans hafi fengið fyrirmæli frá Moskvu um að halda flokknum fast saman. Afstaða flokksins til væntanlegrar ríkis- stjórnar verður vart ljós fyrr en eft- ir fyrirhugaðan miðstjórnarfund. Tekur afganski herinn að sér „verkefni“ í öðr- um löndum innan tíðar? Ih'lgrad, 27. janúar. Al\ EINN AF æðstu mönnum afganska hersins sagði í dag í Belgrad, að her Afganistans mundi innan tíðar fær um að taka að sér „verkefni“ í öðr Misjöfn viðbrögð við ræðu Reagans Wa.shington, 27. janúar. Al\ REAGAN Bandaríkjaforseti boð- aði viðamiklar breytingar á verka- skiptingu alríkisstjórnarinnar í Washington og einstakra fylkja í stefnuræðu sinni í gærkvöldi. Viðbrögð við tillögum Reagans voru í dag yfirleitt frekar jákvæð meðal þingmanna og ríkisstjóra, en þó spá margir fréttaskýrendur því að erfitt geti reynzt að fá þing- ið til að samþykkja allar tillögur forsetans. Öldungadeildarþingmaðurinn Mark Hatfield, sem er formaður fjárveitinganefndar deildarinn- ar sagði í dag, að ráðagerðir for- setans myndu fara út um þúfur nema efnahagslífið í landinu næði sér á strik á næsta ári. Robert Dole, öldungadeildar- þingmaður, sem var varaforseta- efni republikana 1976, sagðist vera óánægður með þann mikla halla sem áfram væri ráðgerður á fjárlögum. Leiðtogi demókrata í Öldunga- deildinni, Robert Byrd, sagðist ekki geta ímyndað sér að stjórn- málamenn í Bandaríkjunum myndu sitja hjá á meðan efna- hagslífinu héldi áfram að hraka. Fred Harrison, sem er forseti samtaka borga í Bandaríkjun- um, sagði að tillögur Reagans væru mjög djarflegar og mundu mjög einfalda starfsemi stjórn- valda í landinu. Thompson ríkis- stjóri í Illinois tók í sama streng. Blöð í Austur-Evrópu gagn- rýndu í dag mjög þann hluta ræðu Reagans sem fjallaði um utanríkismál. Utvarpið í Varsjá sakaði forsetann um „kalda stríðs hótanir" og í fréttum ann- ars staðar í A-Evrópu var sagt að hugmyndir Reagans um al- þjóðamál væru ógnun við heims- friðinn. Sjá nánar frásögn Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Mbl. í Washington, á bls. 22—23. um löndum. Abdel Qader hershöfðingi sem nú gegnir störfum varnarmálaráðherra Afganistans lét þessi orð falla í viðtali við fréttamann júgóslavnesku frétta- stofunnar Tanjug. „Afganski herinn mun hafa mikilvægu hlutverki að gegna í framtíðinni á líkan hátt og her- ir Kúbu og Víetnams," sagði hershöfðinginn. Her Kúbu hef- ur eins og kunnugt er styrkt marxískar hreyfingar til valda í Eþíópíu og Angóla, en her Víetnams kom Heng Samrin til valda með innrás í Kambódíu, Qader sagði ekki hvenær her hans yrði kominn á þetta stig, en sagði að þangað til svo yrði mundi sovézki herinn verða í landi hans eða veita alla þá að- stoð, sem talin yrði nauðsynleg.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.