Morgunblaðið - 12.02.1984, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.02.1984, Blaðsíða 1
88 SÍÐUR STOFNAÐ 1913 35. tbl. 71. árg. SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 1984 Prentsmiðja Morgunblaðsins Challenger snýr aftur ( anaveralhöfða, 11. febrúar. AP. GEIMFARARNIR um borð í geimferjunni Challenger voru að leggja síðustu hönd á undirbúning fyrir lendingu ferjunnar er Morg- unblaðið fór í prentun í gær. Laust fyrir hádegið hleyptu þeir af sérstökum eldflaugum til þess að draga úr ferð ferjunnar, þar sem hún var stödd hátt yfir Indlandshafi. Lending ferjunnar var áætluð í Flórída síðar í dag. Challenger hefur verið á braut umhverfis jörðu undanfarna átta daga. Allt virtist til reiðu fyrir lendinguna í Flórída, en síðast, en þá var jafnframt fyrsta til- raun til lendingar geimferju þar, varð að hætta við vegna veðurs. Veðurskilyrði voru hag- stæð í morgun. Beirút, 11. febrúar. AP. SKYNDILEGT sprengjuregn í Beirút kom í morgun í veg fyrir frekari brott- flutning bandarískra borgara frá Beirút. Ein sprengjanna féll skammt frá þjóðveginum, þar sem þyrlur sjóhersins hafa haft bækistöövar og flutt fólk í herskipin úti fyrir strönd Líbanon. Stöðug skothríð var í alla nótt í höfuðborginni, en hlé var gert á bardögum um stundarsakir undir morgunsárið. Það var í kjölfar þessa bardagahlés sem sprengju- regnið dundi á Beirút. Italska varnarmálaráðuneytið staðfesti seint í gærkvöldi, að fimm herskip hefðu lagt upp frá Róm áleiðis til Líbanon „til þess að að- stoða gæsluliðana við störf sín“, eins og það var orðað af hálfu talsmanns ráðuneytisins. Þá verða þrjú kaupskip send áleiðis með birgðir innan fárra daga. Talsmaður ráðuneytisins neitaði alfarið að tjá sig um hvort ætlunin væri að koma hinum 1400 ítölsku gæsluliðum fyrir á herskipunum fyrir utan strönd Líbanon, en talið er að sú verði raunin. Háttsettur ónafngreindur emb- ættismaður Bandaríkjastjórnar sagði í nótt, að Reagan forseti „gæti og ætti“ að kalla alla banda- rísku gæsluliðana, að 200 undan- skildum, heim frá Beirút innan mánaðar. Ummæli hans fylgdu í kjölfar áætlunar Caspar Weinbergers, varnarmálaráðherra Bandaríkj- anna, að hluti gæsluliðanna verði kallaður heim frá Líbanon. Reagan hefur féngið áætlunina í hendur. Þrýstingur á hann um að kalla gæsluliðana heim hefur farið mjög vaxandi að undanförnu. Ástandið í Beirút, höfuðborg Líbanon, er hörmulegt um þessar mundir. örvæntingu íbúanna. Myndin að ofan er e.tv. táknræn fyrir Challenger sína. heldur upp í ferð Qvissa um valdastöður í Sovétríkjunum, en Chernenko mjög f sviðsljósinu: Samvirk forysta líkleg niðurstaða Bríissel, Moskvu, Prag, Washington, 11. feb. AP. SÉRFRÆÐINGAR í höfuðstöðvum Atlantshafsbandalagsins í Briissel telja sennilegt að samvirk forysta taki við völdum í Sovétríkjunum nú þegar Yuri Andropov er allur. Hinn látni leiðtogi gegndi bæði embætti forseta landsins og aðalritara kommúnistaflokksins, eins og Bresnjef fyrirrennari hans, en ólíklegt er talið að nokkur einn maður fái stuðning til slíkra áhrifa á næstunni. Konstantin Chernenko fór í morgun fyrir sendinefnd fulltrúa í stjórnmálaráði kommúnista- flokksins að líkbörum Andropovs, og hefur það styrkt þá skoðun margra fréttaskýrenda að hann taki við einhverjum, ef ekki öllum, embættum leiðtogans. í Brússel var jafnframt talið að1 ekki væri von á snöggum breyting- um á stjórnarstefnu Sovétríkj- anna, s.s. á afstöðu í vígbúnað- armálum, en bent á að fráfall Andropovs kynni að gefa Sovét- mönnum tækifæri til að taka á ný upp þráðinn í viðræðum um fækk- un kjamorkuvopna, en þeir slitu þeim sem kunnugt er í fyrra. George Bush varaforseti Banda- ríkjanna verður fulltrúi lands síns við útför Andropovs á þriðjudag. Ýmsir hafa orðið til að hvetja Reagan forseta til að verða við út- förina, m.a. keppinautur hans um foretastól, Walter Mondale, en aðrir, þ.á m. Henry Kissinger, fyrrum utanríkisráðherra, hafa lagst gegn því og talið það bráð- læti. Indira Gandhi forsætisráðherra Indlands hefur tilkynnt að hún verði viðstödd útförina, en Ind- land hefur verið það lýðræðisríkja sem mest og best samskipti hefur átt við Sovétríkin á undanförnum árum. Þá er vitað Turgul Ozal for- sætisráðherra Tyrklands verður við útförina. Öryggisgæsla var mjög hert í Moskvu í gær og í morgun, en í dag liggur lík Andropovs á við- hafnarbörum í Kreml, og er búist við að mjög margir muni koma og votta hinum látna leiðtoga virð- ingu sína. Rétt áður en Mbl. fór í prentun var skýrt frá því að Thatcher for- sætisráðherra Bretlands yrði við útför Andropovs. Hún var ekki við útför Bresnjefs fyrir 15 mánuðum. Breyttar baráttuaðferðir sovéska innrásarhersins í Afganistan: Leggja ofurkapp á að hrekja fólk úr landi Wa.shington og Islamabad, Paki.stan, 11. febrúar. AP. SVO VIRÐIST sem sovéskir hermenn í Afganistan reyni með öllum tiltæk- um ráðum að neyða afganska borgara til að flýja land svo betur gangi í baráttunni við frelsissveitirnar. Það voru tveir meðlimir hóps franskra lækna, sem fara huldu höfði við rannsóknir í Afganistan, sem skýrðu frá þessu seint í gærkvöldi. „Ég held að stefna sovéska hers- ins í Afganistan sé ekki sú, að ná landinu á sitt vald heldur að hrekja íbúa þess á brott með öll- um tiltækum ráðum," sagði dr. Pascal Mathey, annar læknanna. Mathey fór ásamt öðrum lækni til Afganistan á vegum Alþjóða- læknahjálparinnar. Þessi alþjóða- samtök hafa sent hópa lækna og hjúkrunarkvenna til Afganistan allt frá því að Sovétmenn gerðu innrásina i landið. Foringjar frelsissveitanna, sem hafa bækistöðvar í Islamabad í Pakistan, létu í dag í Ijósi þá von, að ástandið í heimalandi þeirra, Afganistan, færi batnandi í kjöl- far andláts Yuri Andropv, leiðtoga Sovétmanna. „Sovétmenn hljóta að gera sér grein fyrir því, að friður kemst ekki á í landinu með núverandi hætti," sagði Azim Nasser-Zia, einn foringja frelsissveitanna. „Þeir hafa barist við okkur í meira en fjögur ár og hefur ekkert orðið ágengt. Við vonum að afstöðu- breyting verði við leiðtogaskipt- in.“ Fimm herskip ítaia af stað til Líbanon

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.