Morgunblaðið - 21.12.1985, Blaðsíða 6
6
MÖRGUN&LAÐJÐ, UA'UGARDAGUR 21. DESEMBER1985
3 rit-
stjórar
Og sé ekki ástæðu til að fjalla
frekar um fimmtudagsleikrit-
ið að þessu sinni þar sem verkið
er endurflutt og það í þriðja sinni
en þess í stað vil ég minnast á
fimmtudagsumræðuna á rás I sem
var ansi athyglisverð því þar var
spjallað um framtíð hinna svoköll-
uðu vinstri blaða á íslandi. Til
leiks í þularstofu hjá Hallgrími
Thorsteinssyni mættu að sjálf-
sögðu ritstjórar vinstri blaðanna
á Islandi, þeir Árni Gunnarsson
frá Alþýðublaðinu, Helgi Péturs-
son frá NT og Össur Skarphéðins-
son frá Þjóðviljanum. Þeir félagar
voru hvergi bangnir og hrutu
spaugsyrði af vörum sérstaklega
þeirra Helga og Össurrar — já það
hlýtur að vera gaman að vera rit-
stjóri. Árni var öllu alvarlegri og
ábyrgðarfyllri í máli enda ekki af
„fyndnu kynslóðinni" Eldjárns og
Péturs Gunnarssonar. Undirritað-
ur er víst af þeirri kynslóð þótt
hann hafi ekki ætíð náð að greina
fyndnina hjá þeim fóstbræðrum
enda ekki fóstraður innan Hring-
brautar þar sem þinglýsing
brandaranna fer fram.
Samfylking?
Að öllu gamni slepptu þá var
þeim þremenningum mikið niðri
fyrir. Ossur: Það hefir verið rætt
um þrjá leiðara í blaðinu og ég hef
viljað nefna þetta geðklofa
ófreskju eða þríhöfða þurs...
Þjóðviljinn á sér merka sögu ald-
argamall og það er ekki til umræðu
að leggja hann niður, þetta er
mikið tilfinningamál, við höfum
fundið það hjá lesendum blaðs-
ins ... Við teljum að það þurfi að
stemma stigu við ofurveldi íhalds-
ins í fjölmiðlum. Sjónvarpið er
orðið útibú frá íhaldinu eða hvað
um borgarstjórnarkjörið haldið
fyrir opnum tjöldum í sjónvarp-
inu. Helgi: Dagblaðsrekstur er
viðkvæmur atvinnuvegur. Hér er
annars um að ræða 20 ára gamla
hugmynd, spurningu um samein-
ingu sem alltaf kemur upp við og
við þegar erfiðleikar í rekstri gera
vart við sig. Þjóðviljinn er til
dæmis rekinn með happadrætti
(Össur býður alþjóð miða. Fyndna
kynslóðin!) Árni: Vinstri flokkarnir
eru sundraðir þessa stundina en ég
held að sameining blaðanna verði
hluti þeirrar þróunar sem á eftir
að verða. Að hér verði styrkara
og öflugra þingræði þegar tveir
sterkir flokkar takast á um völdin.
En menn verða að gera sér grein
fyrir því að tími flokkspólitísku
blaðanna er liðinn. Morgunblaðið
varð fyrst það stórveldi i blaða-
heiminum sem það er í dag þegar
menn á þeim bæjum gerðu sér
grein fyrir þessari staðreynd. Fé-
lagshyggjufólk þarf að sameinast
um að gefa út stórt og vandað blað
opið fyrir flestum skoðunum svona
álíka og Morgunblaðið.
Mat undirritaðs
Eins og ég sagði þá fannst mér
býsna fróðleg umræða ritstjór-
anna þriggja um framtíð vinstri-
blaðanna enda er hér aðeins um
einn anga af fjölmiðlaþróuninni
að ræða en mér fannst dálítið
hvimleitt þetta stagl um íhaldið.
Ég veit ekki betur en að íhaldssem-
in blómstri hvergi eins og í aust-
antjaldslöndunum þar sem ailt er
keyrt niður á klafa miðstýringar-
innar. Sennilega er frjálshyggjan
róttækasta stjórnmálaaflið í dag
en hún boðar í raun ekkert annað
en stjórnleysi eða anarkisma þegar
til lengri tíma er litið. Vandamál
dagsins í dag er náttúrulega fyrst
og fremst valdssöfnunin. íhalds-
söm öfl til hægri og vinstri vilja
halda sem fastast um valdatau-
mana hvað sem það kostar og það
er gegn slíkum öflum sem róttækir
menn til vinstri og hægri verða
að berjast — því valdið spillir
jafnvel hinum bestu mönnum.
ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP/SJÓNVARP
Jómfrúarfæðing
20
1B „Jómfrúarfæð-
3Q ing“ — smásaga
I— eftir Færeying-
inn Heinesen verður flutt
í útvarpi, rás 1, kl. 20.30 í
kvöld. Þorgeir Þorgeirsson
þýddi. Steinunn Sigurðar-
dóttir les.
Smásagan gerist seint í
desember árið 1919. Gufu-
skipið Botnía er á siglingu
yfir hafið milli íslands og
Noregs og hreppir vonsku-
veður á leiðinni. Meðal
farþeganna er Einar Ben-
ediktsson. Hann og tveir
aðrir íslendingar og Fær-
eyingar una glaðir við
drykkju og söng á meðan
flestir samferðamanna
þeirra verða sjóveikinni
að bráð. Þá ber svo til að
skipsjómfrúin, 17 ára ís-
lensk stúlka, fæðir son í
káetu sinni á jólanóttina.
Sagan birtist í smá-
sagnasafninu „Fjandinn
hleypur í Gamalíel" sem
út kom hjá Máli og menn-
ingu árið 1978. Hún er
örlítið stytt í flutningi.
Heimurinn hans Áka
— sænsk bíómynd
■ „Heimurinn
jj hans Áka“, ný
— sænsk bíómynd
gerð eftir þekktri barna-
bók eftir Bertil Malmberg,
er á dagskrá sjónvarps kl.
21.15 í kvöld. Leikstjóri er
Allan Edwald og með
aðalhlutverk fara Martin
Lindström, Loa Falkman
og Gunnel Fred.
Áki er sex ára snáði,
sem elst upp í smábæ í
Svíþjóð þar sem faðir hans
er læknir. Móðir Áka,
systir, geðbiluð frænka,
nágrannar og amma, sem
segir hrollvekjandi sögur
og ævintýri, koma einnig
við sögu. Þetta er heimur-
inn, sem Áki reynir að
gera sér grein fyrir og
stundum hleypur ímynd-
unaraflið með hann í gön-
ur.
Þýðandi er Jóhanna Jó-
hannsdóttir.
Stundin okkar
■I Meðal efnis í
0Q barnatíma
— sjónvarpsins,
Stundinni okkar, á morg-
un kl. 18.00, verða úrslit í
spurningakeppni. Teikni-
myndasagan Móði og
Matta eftir Guðna Kol-
beinsson verður lesin en
myndir eru eftir Aðal-
björgu Þórðardóttur. Þá
verður lesin sagan Flugan
eftir Guðrúnu Kristínu
Magnúsdóttur. Hún hefur
einnig gert teiknimyndir
við söguna. Sigurður
Skúlason segir jólasögu og
túlkar hana á táknmáli.
Ragnhildur Gísladóttir
syngur lagið um litla
trommuleikarann, Gísli
Guðmundsson syngur lag
af Óla prik-plötunni sem
heitir Börn, og krakkar úr
dansskóla Sigurðar Há-
konarsonar sýna dans og
fleira.
Barbara Stanwyck í hlutverki Thelmu og Wendell Corey sem saksóknarinn.
Sagan af Thelmu Jordan
■I Bandaríska
00 sakamála-
— myndin „Sagan
af Thelmu Jordan" er
seinni bíómynd kvöldsins
og hefst hún í sjónvarpi
kl. 23.00. Myndin er frá
árinu 1949. Leikstjóri er
Roberd Siodmak og með
aðalhlutverk fara Barbara
Stanwyck og Wendell
Corey.
Sambad aðstoðarsak-
sóknara eins við fagra
konu kemur honum í erf-
iða aðstöðu þegar morð er
framið og grunur beinist
að ástkonu hans. Kvik-
myndahandbókin gefur
myndinni tvær og hálfa
stjörnu af alls fjórum.
Þýðandi er Kristmann
Eiðsson.
ÚTVARP
7
LAUGARDAGUR
21. desember
7.00 Veöurtregnir. Fréttir.
Bæn.
7.15 Tónleikar, þulur velur og
kynnir.
7.20 Morguntrimm.
7.30 islenskir einsöngvarar og
kórar syngja.
8.00 Fréttir. Dagskrá.
8.15 Veðurfregnir. Tónleikar.
8.30 Lesiö úr torustugreinum
dagblaöanna.
9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir.
Oskalög sjúklinga. Helga Þ.
Stephensen kynnir.
11.00. Bókaþing. Gunnar Stet-
ánsson stjórnar kynningar-
þætti um nýjar bækur.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.45 Veöurfregnir. Tilkynning-
ar. Tónleikar.
15j40 Fjölmiðlun vikunnar.
Esther Guðmundsdóttir tal-
ar.
15.50 Islenskt mál. Gunnlaugur
Ingólfsson flytur þáttinn.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Tilkynningar. Tónleikar.
16.40 Listagrip. Sigrún Bjðrns-
dóttir kynnir hátlðardagskrá
Rlkisútvarpsíns, hlóðvarps
og sjónvarps, um jólin.
17.00 Leikrit barna og unglinga:
.Dreki á heimilinu" eftir Birg-
itte Bohman. Leikritið er
byggt á sögu eftir Mary
Catheart Borger. Þýðandi:
Ingibjðrg Jónsdóttir. Leik-
stjóri: Stetán Baldursson.
Leikendur: Þóra Friðriks-
dóttir, Þórhallour Sigurðs-
son, Sólveig Hauksdóttir,
Guðmundur Pálsson, Stefán
Jónsson, Kristbjörg Kjeld,
Randver Þorlákssonn og
Valdimar Helgason.
Aðurútvarpað 1976.
17JO Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veöurtregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.40 Elsku pabbi. Þáttur I
umsjá Guðrúnar Þórðardóttir
og Sögu Jónsdóttir.
LAUGARDAGUR
21. desember
14.45 Manchester United —
Arsenal. Bein útsending leiks
I ensku knattspyrnunni.
17.00 Móðurmálið — Fram-
burður.
Endursýndur lokaþátturinn.
17.10 iþróttir.
Umsjónarmaður Bjarni Felix-
son.
Hlé.
19.20 Steinn Marcó Pólós.
(La Pietra di Marco Polo).
Þrettándi þáttur. (talskur
framhaldsmyndaflokkur um
ævintýri nokkurra krakka I
Feneyjum. Þýðandi Þurlður
Magnúsdóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.00 Harmonlkuþáttur. Um-
sjón: Högni Jónsson.
20.30 .Jómfrúfæöing", smá-
saga eftir William Heinesen.
Þorgeir Þorgeirsson þýddi.
Steinunn Jóhannesdóttir les.
21.15 Islenskir tónlistarmenn
a. Olafur Magnússon trá
Mosfelli syngur Islensk og
erlend Iðg. Jónas Ingimund-
arson leikur á planó.
b. Jónas Ingimundarson leik-
ur planólðg ettir Sveinbjörn
Sveinbjörnsson og sónðtu
eftir Baltasarre Galuppi.
c. Kristinn Sigmundsson
syngur jólalög með Mótettu-
20.25 Auglýsingarog dagskrá.
20.40 Staupasteinn (Cheers).
Tlundi þáttur. Bandarlskur
gamanmyndatlokkur. Þýö- ■
andi Guðni Kolbeinsson.
21.15 Heimurinn hans Aka.
(Áke och hans várld). Ný
sænsk bfómynd gerð eftir
þekktri barnabók eftir Bertil
Malmberg. Leikstjóri Allan
Edwald. Aðalhlutverk: Mart-
in Lindström (Aki), Loa Falk-
man og Gunnel Fred.
Aki er sex ára snáði, sem
elst upp I smábæ I Svlþjóð
þar sem faðir hans er læknir.
Móðir Aka, systir, geðbiluð
frænka, nágrannar og
amma. sem segir hrollvekj-
andi sögur og ævintýri koma
einnig við sögu. Þetta er
heimurinn, sem Aki reynir
kór Hallgrlmskirkju og
kammersveit undir stjórn
Harðar Askelssonar.
22.00 Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins.
22.15 Veöurfregnir. Orö kvölds-
ins.
22.25 A ferö með Sveini Einars-
syni.
23.00 Danslög.
24.00 Fréttir.
00.05 Miðnæturtónleikar. Um-
sjón: Jón Orn Marinósson.
01.00 Dagskrárlok.
Næturútvarp á Rás 2 til kl.
03.00.
að gera sér grein fyrir og
stundum hleypur Imyndunar-
afliö með hann I gönur. Þýð-
andi Jóhanna Jóhannsdóttir.
23.00 Sagan af Thelmu Jordan.
(The File on Thelma Jordan)
s/h.
Bandarlsk sakamálamynd
frá 1949. Leikstjóri Roberd
Siodmak. Aðalhlutverk: Bar-
bara Stanwyck og Wendell
Cory.
Samband aöstoöarsaksókn-
ara eins við fagra konu
kemur honum I ertiða að-
stööu þegar morð er framið
og grunur beinist að ástkonu
hans. Þýðandi Kristmann
Eiðsson.
00.50 Daaskrárlok.
LAUGARDAGUR
21. desember
10Æ0—12:00 Morgunþáttur
Stjórnandi: Sigurður Blöndal.
Hlé
14KX)—16:00 Laugardagur til
lukku
Stjórnandi: Svavar Gests.
16:00—17:00 Listapopp
Stjórnandi: Gunnar Salvars-
son.
17.-00—18.-00 Hringborðið
Stjórnandi: Sigurður Einars-
son.
Hlé
20.00—21:00 Hjartsláttur
Tónlist tengd myndlist og
myndlistarmönnum.
Stjórnandi: Kolbrún Hall-
dórsdóttir.
21:00—22:00Dansrásin
Stjórnandi: Hermann Ragnar
Stefásnsson.
22:00—23:00 Bárujárn
Stjórnandi: Sigurður Sverris-
son.
23:00—24:00 Svifflugur
Stjórnandi: Hákon Sigurjóns-
son.
24.-00—03.00 Næturvaktin
Stjórnandi: Jón Axel Ólafs-
son.
SJÓNVARP