Morgunblaðið - 19.08.1986, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 1986
REYKJAVÍK 200 ÁRA
þýska flughernum, sýna flugyöll-
inn í Vatnsmýrinni og flugvélakost
hemámsliðsins. Borgarskipulagið
sýnir samþykkt aðalskipulag fyrir
Reykjavík á mismunandi tímum
og kynnt er aðalskipulag fyrir
tímabilið 1984 til 2004.
Við opnunina var leikþátturinn
„Flensað í Malakoff“, sem Brynja
Benediktsdóttir og Erlingur Gísla-'
son settu saman, frumsýndur.
Leikaramir sem fram koma eru:
Edda Þórarinsdóttir, Saga Jóns-
dóttir, Karl Ágúst Úlfsson og
Erlingur Gíslason. Auk þeirra
koma fram Grétar Skúlason, Eyþór
Amalds, Benedikt Erlingsson og
Kristín Guðmundsdóttir. Tónlist
fyrir leikþáttinn útsetti og samdi
Finnur Torfi Stefánsson en bún-
inga og leikmynd gerði Margrét
Magnúsdóttir. Leikþátturinn verð-
ur sýndur á virkum dögum kl.
21:00 og á laugardögum og sunnu-
dögum kl. 16:00.
Sýningin er opin alla daga frá
kl. 14:00 til 22:00 og stendur til
28. september. Á laugardögum og
sunnudögum kl. 15:00 er boðið upp
á sérstaka dagskrá, „Reykjavíkur-
spjall". Fyrsti fyrirlesarinn var frú
Auður Auðuns fyrrverandi ráð-
herra, borgarstjóri og forseti
borgarstjómar. Seinna munu einn-
ig flytja erindi Gerður Magnús-
dóttir, Guðni Guðmundsson, Bragi
Kristjónsson, Valgerður Tryggva-
dóttir, Ludvig . Hjálmtýsson,
Jóhanna Sveinsdóttir, Pétur Sig-
urðsson, Ingibjörg Benediktsdóttir,
Þórarinn Þórarinsson og Álfheiður
Kjartansdóttir.
Saga borgarinnar í máli
og mynd á Kjarvalsstöðum
„Á 200 ára afmæli borgarinnar
er ekki undarleg sú árátta okkar
að líta yfír það sem liðið er og líta
yfír farinn veg,“ vom upphafsorð
Davíðs Oddssonar borgarstjóra í
ávarpi sem hann flutti við opnun-
ina. Hann sagði að sýningin væri
náma af fróðleik um sögu höfuð-
borgarinnar í máli og myndum og
að skoða sýninguna væri að fara
yfir 200 ára sögu hennar á skömm-
um tíma. „Sýningin kostar mikla
vinnu og fé, sem ekki er á glæ
kastað,“ sagði Davíð. Hann þakk-
aði þeim sem unnið höfðu að
sýningunni og opnaði hana í trausti
þess að gestir ættu eftir að njóta
hennar.
Sýningin er byggð upp á göml-
um og nýjum Ijósmyndum af
borgarlífínu, málverkum og líkön-
um frá ýmsum tímum. Þar getur
að iíta sýnishom af efnisbútum
ásamt upplýsingum um hvað ein
alin kostaði um það leyti sem versl-
un hófst í Reykjavík. Eftirlíking
af krambúð hefur verið reist innan-
dyra og er þar boðið upp á bolsíur
og kandís, gráfíkjur, rúsínur og
sveskjur. Reist hefur verið virki
sem minnir á stríðsárin og dagsett-
ar loftmyndir, sem teknar voru af
HÁTÍÐARHÖLD vegna 200 ára
afmælis Reykjavíkur hófust sl.
laugardag með opnun sýningar-
innar, „Reykjavík í 200 ár;
svipmyndir mannlífs og byggð-
ar“, á Kjarvalsstöðum.
Lúðrasveit verkalýðsins tók á
móti sýningargestum og lék nokk-
ur lög fyrir framan Kjarvalsstaði
í góða veðrinu. Þegar inn var kom-
ið ávarpaði Þorvaldur S. Þorvalds-
son, forstöðumaður Borgarskipu-
lagsins og formaður sýningar-
nefndar, gesti. Rakti hann
aðdraganda að sýningunni og lýsti
helstu verkþáttum um leið og hann
þakkaði þeim sem unnu að undir-
búningi og uppsetningu hennar.
Knútur Zimsen borgarstjóri ræðir við Odd sterka af Skaganum áður en hann vindur sér í að stjóma
umferðinni á horai Pósthússtrætis og Austurstrætis. Álengdar stendur Erlingur Pálsson yfirlögreglu-
þjónn. Loftur Guðmundsson tók myndimar um 1920.
Aðalstræti séð til norðurs. Hvíta húsið við enda göcunnar er spítalinn og klúbburinn
á neðri hæðinni. Þar voru haldnir dansleikir. Hægra megin eru hús innréttinganna
og lengst til hægri Sunchenberg verslun, sem seinna varð verslun Fischers kaup-
manns. Myndin er frá árunum 1865 til 1870 og er ein af elstu myndum sýningarinnar.
Ljósmyndari er ókunnur.
Frá Austurvelli kvenréttindadaginn 19. júní 1919. Ljósmyndari Magnús Ólafsson.