Morgunblaðið - 19.08.1986, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 1986
29
Sr. Sigurbjörn Einarsson, biskup, og
kona hans Magnea Þorkelsdóttir.
Magnús Tómasson myndlistamaður,
Astríður dóttir Vigdísar Finnbogadótt-
ur, Astríður Thorarensen, frú Vigdís
Finnbogadóttir forseti íslands, Davíð
Oddsson borgarstjóri og Steinunn Jóns-
dóttir við opnun sýningarinnar
Reykjavík í 200 ár; svipmyndir
mannslífs og byggða.
Sýningargestir versla í krambúðinni.
Líkan af Grjótaþorpi frá árinu 1886 vakti mikla athygli á sýningunni. Morgunbiaðíð/Emar Faiur
Borgarfull-
trúar predika
Hátíðarguðsþjónustur voru í
kirkjum Reykjavíkur á sunnudag í
tilefni 200 ára afmælisins. Aðstoð-
uðu borgarfulltrúar og fyrrverandi
borgarstjórar við messugjörð. Hér
sést Katrín Fjeldsted, borgarfull-
trúi, í predikunarstól Dómkirkjunn-
ar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tólfhundruð Reykvíkingar þáðu boð Félagsins í Grófinni og Granda
hf. og fóru í siglingu um sundin á laugardag.
Afmælisbarnið skoðað frá sjó
Tólfhundruð Reykvikingar
sigldu um sundin blá með togar-
anum Ásgeiri RE á laugardag í
boði Félagsins í Grófinni og
Granda hf. Fór togarinn þjrár
ferðir með fullt skip af fólki.
Hver sigling var klukkutíma
löng, farið austur fyrir Viðey og
afmælisbamið Reykjavík skoðað
frá sjó. Leiðsögumenn í ferðinni
voru Lýður Björnsson sagnfræð-
ingur, Árni Hjartarson jarð-
fræðingur og Roy Ólafsson
hafnsögumaður. Hafnarstjóri
gaf fyrir þessu sérstakt leyfi og
tveir bátar frá Slysavarnafélag-
inu fylgdu togaranum eftir í
öryggisskyni.
. „Það var gott veður og léttur
sjór og menn glaðir í bragði og
sungu af hjartans list er siglt var
í höfn,“ sagði Einar Egilsson sem
ásamt fleirum annaðist skipulagn-
ingu ferðanna.
• •
EINKATOLVUR
Einkatölvur verða sífellt algengari, og þurfa því æ
fleiri að þekkja undirstöðuatriði er varða notkun
þeirra og meðferð. Reynslan hefur sýnt, að notendur
einkatölva ná betri árangri í starfi, ef þeir hagnýta sér
þetta sjálfsagða hjálpartæki á réttan hátt.
Markmið: Að kynna þátttakendum undirstöðuatriði
vinnu við verkefni sem einkatölvum er ætlað að
vinna úr.
Efni: Hvernig starfar tölvan? - Kynning á vélbúnaði
- Undirstöðuaðgerðir stýrikerfis - Ritvinnsla -
Gagnasafnskerfi - Töflureiknar.
Þátttakendur: Námskeiðið er ætlað starfsmönnum
fyrirtækja sem nota eða ætla að nota einkatölvur.
Tími og sta&ur:
25.-27. ágúst kl. 8.30-12.30
Ánanaustum 15
Leiðbeinandi:
Björn Guðmundsson,
kerfisfræðingur
Stiómunarféiaa Islands
. Ánanaustum 15 Sími: 6210 66
1